Morgunblaðið - 13.05.1984, Page 3
•*
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
51
Boltoblatt
Forsíða dagblaðs FramfaraDokks-
ins. „Upphaf nýs tímabils í sögu
vors lands“ sagði í fyrirsögn 28.
mars 1984. Blaðið kom fyrst út ár-
ið 1878.
ilts in der (ieschichte unseres l andes
fjalla um ný lög og lagabreyt-
ingar; alþjóðasamþykktir; fjárlög
þjóðarinnar og skattamál og hafa
yfirumsjón með rekstri ríkisins.
Tveir stjórnmálaflokkar, Föður-
landsfylkingin og Framfaraflokk-
urinn, keppa um þingsætin. Þeir
eru álíka stórir og báðir íhalds-
samir. Þeir hafa unnið saman í
samsteypustjórn síðan 1938.
Framfaraflokkurinn var yfirleitt í
meirihluta en Föðurlandsfylking-
in vann nokkuð á á 8. áratugnum
og hefur haft forsæti í ríkisstjórn-
inni síðan 1978.
Ríkisstjórnin er skipuð fimm
mönnum sem þingið tilnefnir.
Ráðherrarnir sjá um daglegan
rekstur ríkisins. Það er skylda for-
sætisráðherrans að ráðfæra sig
við furstann. Hans Brunhart, for-
sætisráðherra, hefur haft stöðugt
samband við Franz Josef II, heim-
sótt hann regulega í kastalann og
talað við hann í síma. Enn er ekki
ákveðið hvernig samstarfinu við
Hans Adam verður háttað. Þó er
ekki búist við miklum breytingum
þótt hann taki við. Erfðaprinsinn
lætur forsætisráðherrann vænt-
anlega um að stjórna landinu og
kemst að samkomulagi við hann
þegar þá greinir á um eitthvað.
Móðir erfðaprinsins, Gína furst-
ynja, og kona hans, Marie Aglae,
erfðaprinsessa, voru viðstaddar
þegar hann setti þingið. Ávarp
hans var stutt og mjög almennt.
Hann rifjaði upp erfiðleika og fá-
tækt landsins fram á þessa öld og
minntist á virka þátttöku föður
hans í uppbyggingu og þróun þess
í 46 ára stjórnartíð hans. Hann
sagði að íbúar Liechtenstein gætu
litið framtíðina björtum augum.
fámennið hefði marga kosti. „Við
erum hreyfanlegri og getum
brugðist hraðar við nýjum að-
stæðum," sagði hann, og átti við
aðrar stærri þjóðir. Hann sagði að
Liechtenstein ætti að taka þátt í
alþjóðasamstarfi þar sem fjallað
er um málefni sem snerta framtíð
þess þótt röddin sé veik og smá.
Samstarf er mjög mikilvægt í
Vestur-Evrópu," sagði erfðaprins-
inn. „Ekkert landanna er nógu
sterkt til að tryggja friðinn í Evr-
ópu né til að komast hjá áhrifum
heimsstyrjaldar." ai,_
Þinghúsið í Vaduz, Liechtenstein.
Hans Adam setur landsþingið í Liechtenstein í fyrsta sinn. Aldursforseti þingsins og ráðherrarnir fimm standa hjá honum.
iiniíISSSIS
VERÐLISTAVERÐ OKKAR VERÐ
Kr. 25.700 Kr. 19.990
SÆNSK-fSLENZK
VERDBYITING
Á ELECTROLUXbw2oo
UPPÞVÖTTAVÉLUM
Við fengum verulegan afslátt fyrir þig med því að kaupa í
einu lagi 166 Electrolux BW 200 uppþvottavélar.
Fullkomin uppþvottavél á afsláttarverði, ein hljóðlátasta vélin
á markaðnum - frábær þvottakerfi (með sparnaðarrofa) - öfl-
ugar vatnsdælur sem þvo úr 100 ltr. á mínútu - þrefalt yfirfalls-
öryggi - Ryðfrítt 18/8 stál í þvottahólfi - Barnalæsing á hurð -
Rúmar borðbúnað fyrir 12-14 manns.
Fullkomin Electrolux BW 200 uppþvottavél á tilboðsverði sem
þú trúir tæpast - og ekkert vit er í að hafna.
Vörumarkaðurinn hf.
ÁRMÚLA ÍAS 86117