Morgunblaðið - 13.05.1984, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.05.1984, Qupperneq 8
56 ~ MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984 þeir nota margvíslega miðla í verkum sínum, vídeó, ljósmynd, málverk, ljóðlist o.s.frv. og margir þeirra starfa í anda Fluxus. Splunkuný verk Sýning Hreins samanstendur af sex splunkunýjum verkum, fjórum titillausum, „A Folded Star“ og „Cliffs and Whispers" (en einhver hvíslaði því að mér að titillausu myndverkin yrðu skírð síðar). Að mínu mati gefa nafnlausar mynd- ir ímyndunarafli skoðandans oft meira svigrúm en titlaðar myndir, þó að það sé ekki endilega ætíð til góðs. Titlar geta reyndar oft auðg- að verkið, orðið hluti af því — (án þeirra væri þá verkinu ólokið) og beint skoðandanum inn á rétta braut. J.L. Godard veltir þessari spurningu skemmtilega fyrir sér ásamt öðrum í nýjustu mynd sinni „Prénom Carmen", þegar hann spyr: „Hvað köllum við hlutina áð- ur en við gefum þeim nafn?“ Og öll munum við það úr íslensku A Folded Star. Þann 7. mars síðastlið- inn opnaði Galerie Bama í París einka- sýningu á verkum Hreins Friðfinnsson- ar. Hreinn var lengi félagi i Súm- hreyfingunni svonefndu, tók þátt í samsýningum á vegum félagsins og starfar nú sem kunnugt er í Amsterdam. Eins og flestir listunnendur ef- laust muna var Hreini ásamt þeim bræðrum Sigurði og Kristjáni Guðmundssonum og Þórði Ben Sveinssyni boðið að sýna við opnun Pompidou-safnsins í byrjun ársins 1977. Ári síðar bauðst HREINN FRIÐFINNSSON SÝNIR í PARÉS eftir Laufeyju Helgadóttur Hreini að halda einkasýningu í Galerie Bama og sýnir hann nú þar í annað skipti í boði aðstand- enda gallerísins. Galerie Bama er eitt af fáum galleríum í París sem opnar dyr sínar nær eingöngu fyrir erlend- um listamönnum. (Listskoðendur Parísarborgar koma þangað til þess að anda að sér fersk-erlendu lofti.) Meðal þeirra listamanna sem sýna þar með reglubundnu millibili má nefna t.d. W. Vostell, G. Brecht, D. Roth, D. Spoerri, R. Hamilton, D. Higgins, J. Beuys, J. Gerz, E. Dietman, S. Polke, R. Filliou, Baruchello, Tom Philips og marga fleiri mætti telja. Þessir listamenn sem Galerie Bama teflir fram virðast í fljótu Verk no. 3 bragði eiga það sameiginlegt að i ii é % %új*\±l• %,á * \ . mí Verk no. 5 þjóðsögunni Gilitrutt að um leið og bóndakonan veit nafn skess- unnar fær hún vald á henni. Sumarbúðir Hlíðardalsskóla Aldur: 8—12 ára. Tímabil: Hópur I. 6. júní—15. júní. Hópur II. 18. júní—27. júní. Hópur III. 29. júní—18. júlí. Sundlaug, sögustundir, leikfimisaiur, föndur, kvöldvökur, leikir. gönguferöir, Eigum ennþá laus pláss fyrir drengi. Uppl. og innritun í síma 91-13899. SUMARTÍMI Frá 14. maí til 1. september veröa skrifstorur okkar opnar frá 8.30 til 16.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.