Morgunblaðið - 13.05.1984, Page 9
Cliffs and Whispers.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
57
ans? Eitthvert óskiljanlegt letur
með innsiglisvaxi í holuðum end-
unum, og er engu líkara en að sá
einn sem brotið fær innsiglið eigi
greiðan aðgang að innihaldi verks-
ins.
Óður til Thanatosar
Náttúran örvar ennþá hugar-
flug Hreins og hann virkjar hana í
tveimur verkum; „Cliffs and
Whispers" og verki no. 3. „A
Folded Star“ og verk no. 4 eru
sérkennilegustu verk Hreins á
þessari sýningu og afar frábrugð-
in öllu því sem ég hef séð eftir
hann áður. Verk no. 4 er sneisa-
fullt af Ijóðrænu líkingamáli. Það
fær sérsal undir sig og nýtur sín
því sérstaklega vel á þessari sýn-
ingu. (Mér finnst mjög líklegt að
sýning þessi hafi einmitt verið
hugsuð með skipan gallerisins í
huga.) Helst dettur mér í hug að
hér sé um óð til Thanatosar að
ræða. Hreinn teflir hér saman
mjög ólíkum efnum, frumstæðum
og dýrkeyptum flögusteinum, við-
arbútum, kryplefni, glertárum og
kvæmni og vandvirkni og virðist
mér sem hin efnislega útfærsla
skipti meira máli hjá honum nú en
áður. í verkinu „A Folded Star"
eru efnið, hugmyndin og titillinn
svo nátengd hvert öðru, samspilið
svo sterkt að ógjörningur er að
taka eitt fram yfir annað. En það
, er einmitt eitt af leynivopnum
konseptlístarinnar að hún getur
tekið á sig mynd bókstaflega í
hvaða formi og efniviði sem lista-
maðurinn kýs að nota.
Mannveran er ávallt fjarstödd í
verkum Hreins, en hún skilur eftir
spor sín eða enduróm þeirra, setur
mark sitt á umhverfið hvort sem
það er brennandi harpa, „frott-
age“ á pappír, rispur í málm eða
særingar í tré. Bak við yfirborðs-
reglu myndverkanna ríkja rugl-
ingslegar svipmyndir tilfinn-
inganna, óskapnaður mannshug-
ans, margbreytileiki listsköpunar-
innar.
Hreinn er einn af frumkvöðlum
konseptlistar á íslandi, en eins og
. flestir muna var konseptlistin alls
ráðandi í byrjun áttunda áratug-
arins. Honum tekst að sanna fyrir
Þessar hugsanir læddust ósjálf-
rátt að mér þegar ég gekk um sali
gallerísins og reyndi að festa fing-
ur á verkum Hreins, reyndi að lesa
á milli formanna og út frá því
mynda mér eigin hugarheim.
Ljóðrænn plúralismi
Við fyrstu skoðun virðast verkin
öll mjög ólík hvað form og efni
varðar. En við nánari athugun
kemur í ljós að það eru sterk inn-
byrðis tengsl og vissan skyldleika
er að finna í innihaldi þeirra og
eðli. Ljóðræn margræðni einkenn-
ir þau öll. Þó er hvert verk sér-
heimur, innhverft ástand, ljóðmál
útaf fyrir sig.
I verki no. 5 notar Hreinn á
blekform, litfyllinga sem hann
nær eflaust fram með samþrykk-
ingaraðferð og raðar síðan saman
í þríhyrning á mjög rökrænan og
skipulegan hátt. Þríhyrningslaga
„tiburtinus“-kalksteinn hvílir á
gólfinu og myndar harða, sterka
andstöðu við þessi mjúku fljótandi
bláu form sem einnig minna á
kynfæri kvenna. Það er eitthvað í
þessu verki sem minnir okkur á
fæöingu listarinnar, dropasteins-
og handþrykkimyndirnar á hell-
isveggjunum í Altamíra og Lasc-
aux.
Verk no. 1 er samsett af ljós-
mynd, málmplötu (endurspeglun-
um) og rúnum, táknmerkjum eða
galdrastöfum? Tákn hverfulleik-
Séð yfir sýninguna.
gullbryddingum og málar þetta
fegursta lit allra lita, svarta litn-
um — nema viðarfjalirnar níu
sem mynda eins konar geislabaug
um verkið.
Á mörkunum
Hreinn er sem listamaður illa
útreiknanlegur, kemur stöðugt á
óvart. Þó heldur hann sínu striki,
heldur áfram að vera sjálfum sér
samkvæmur, víkkar svið sitt,
stendur alltaf innan ramma kon-
septlistarinnar. Myndverk hans
eru öll útfærð hér af mikilli ná-
okkur, þrátt fyrir stórorðar yfir-
lýsingar ýmissa fræðimanna og
listamanna um það að konseptlist-
in sé uppþornuð og komin inn á
miðju naflans, að enn er hægt að
búa til fersk og nýstárleg verk í
anda þeirrar stefnu.
Listskoðarar Reykjavíkurborg-
ar fá tækifæri til þess að kynnast
þessum verkum Hreins á sýningu
„Utangarðsmálara“ sem haldin
verður í tengslum við næstkom-
andi Listahátíð, en þar verða sam-
ankomin verk eftir nokkra ís-
lenska listamenn búsetta erlendis.
Sýningunni í París lauk 21. apr-
íl.
FURUHILLUR
Útsölusta&ir: REYKJAVlK: Liturinn Síðumúla 15, KÓPAVOGUR: Byko
Nýbýlavegi 6, HAFNARFJÖRÐUR Málur Reykjavlkurvegi 10, KEFLAVlK: Dropinn, AKRANES:
Verslunin Bjarg, BORGARNES: K.B. Borgarnesi, HELLISSANDUR. K.B., ÓLAFSVlK: Verslunin
Lára, STYKKISHÓLMUR: Húsið, PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jónasar, BOLUNGARVlK: Jón Fr.
Einarsson, ISAFJÖRÐUR: Húsgagnaverslun Isafjarðar, HVAMMSTANGI: Versl. Sig Pálmas.,
BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga, SAUÐARKRÓKUR: Hátún, SIGLUFJÖRÐUR: Bólsturgerðin,
ÓLAFSFJÖRÐUR: Versl. Valberg, DALVlK: Versl. Sogn, AKUREYRI: Grýtan Sunnuhllö, HÚSAVlK:
Kaupfélag Þingeyinga, EGILSSTAÐIR: Verslunarfélag Austurlands, SEYÐISFJÖRÐUR: Versl. Dröfn,
NESKAUPSTAÐUR: Nesval, REYÐARFJÖRÐUR: Lykill, FASKRÚÐSFJÖRÐUR: Versl. Þór, VlK,
Kaupfélag V-Skaftfelling, VESTMANNAEYJAR: Þorvaldur og Einar, SELFOSS: Vöruhús K.A.
vernda lakkið -varna ryði
Svartir og úr stáli. Hringdu í síma 44100 og pantaðu, ásetning á staðnum
Eigum einnig GRJÓTGRINDUR
Sendum i póstkröfu.
BUKKVER
Skeljabrekka 4. 200 Kópavogur. Sími 44100