Morgunblaðið - 13.05.1984, Side 11

Morgunblaðið - 13.05.1984, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAl 1984 59 menn tilbaka til Danmarkshavn. Mylius-Erichsen reiknaði með því að geta kannað ströndina þarna vestur af á nokkrum dögum. Eftir hættulega 2.000 km langa ferð á 88 dögum komst hópur Kochs loks til Danmarkshavn 23. júní. En Mylius-Erichsen og hans menn komu ekki fram. Örlagarík gleymska Strax og ísinn var aftur tekinn að frjósa héldu nokkrir sleðaleið- angrar af stað að leita, en sneru til baka án þess að finna þá í nóv- ember. Eftir aðra vetrarsetu héldu Koch og Tobias aftur 1 leit að týndu mönnunum þremur 10. mars 1908. Níu dögum siðar kom- ust þeir að raun um örlög félaga sinna, er þeir fundu við birgða- stöðina á Lambert Land á 79. gráðu norðlægrar breiddar lík Jörgen Brönlunds, nokkra af kortauppdráttum Höeg Hagens og dagbók Brönlunds, sem upplýsti um síðustu ferð leiðangursins, vistina í búðum við hungur, óveð- ur og skort á útbúnaði og hörmu- ieg dauðsföll. Fætur Brönlunds voru vafðir tuskum. Grænlensku stígvélin voru uppslitin og fyrir hörmulega gleymsku höfðu mennirnir ekki tekið með lífsnauðsynlega saum- nál til viðgerða á þeim þegar þeir skildu við leiðangur Kochs. Uppdrættirnir sýndu að sleða- teymi Milius-Erichsens hafði komist á áfangastað, en neyddist til að bíða af sér sumarbráðnun- ina við Danmarksfjörð í bakaleið- inni. Um haustið höfðu þeir á ný leitað út að ströndinni og reynt að komast yfir á ísnum. En Mylius- Meðan allt lét í lyndi. Skipið Danmörk liggur í Danmarkshavn og mennirnir búa sig af stað með hunda og sleða til að setja upp birgðastöðvar. Um síðustu aldamót var norð- austasti hluti Grænlands að- eins hvítur flötur á landakortum. Aðeins höfðu farið þar fram til- viljanakenndar kannanir enskra, þýskra; belgískra og bandarískra heimskautafara. Mylius-Erichsen hafði leitt svokallaðan „bók- mennta-Grænlandsleiðangur" 1902-1904, þegar hann ásamt Knud Rasmussen er síðar varð svo frægur, ferðaðist um alla vestur- strönd Grænlands allt norður til Thule-eskimóanna við Kap York. Hann fékk því öflugan stuðning er hann í Danmörku viðraði ráða- gerðir sínar um dansícan leiðangur til norðausturhluta Grænlands. Gömlum norskum hvalfangara var breytt í heimskautafarið „Danmark" og sumarið .1906 lagði það upp með 28 menn, 90 sleða- hunda og af einhverjum furðu- legum ástæðum einn bíl.Auk þess hlaðið vistum til þriggja ára. Eftir nokkra erfiðleika tókst skipinu að brjóta sér leið gegnum ísbreiðuna lengra norður með austurströndinni en nokkurt danskt skip hafði fyrr komist. Um miðjan ágúst 1906 lagðist Dan- mark til vetrarsetu rétt innan við Kap Bismarck — í Danmarks- havn. Lagt upp með 10 sleða Hinn 28. mars 1907 hélt glæsileg sleðalest með 10 drekkhlöðnum hundasleðum og 90 hundum af stað frá Danmarkshavn í áttina norður með ströndinni. Jörgen Brönlund ók forustusleðanum og Mylius-Erichsen var lei$angurs- stjóri. Eftir því sem br'otist var lengra áfram, var komið upp birgðastöðvum og tómu sleðarnir sneru við til Danmarkshavn, þar til aðeins tveir þeirra héldu áfram norður. Áformað var að Mylius- Erichsen, Höeg Hagen og Jörgen Brönlund skyldu bijóta sér leið þar sem talið var vera Peary- sundið að Glacier-höfða við botn i Independence-fjarðar, en á meðan skyldu liðsforinginn J.P. Koch, málarinn Aage Bertelsen og Grænlendingurinn Tobias Gabri- elsen halda yfir „sundið" og kanna Peary Land. Báðir hóparnir brut- ust áfram í norðurátt, en leiðin til norðaustasta odda Grænlands (rétt þar sem Norðurstöð er nú) reyndist næstum 300 km lengri og miklu erfiðari en reiknað hafði verið með. Á höfðanum þar sem norðaust- urströndin sveigir aftur inn í landið skildu hóparnir. Koch hélt áfram til Peary Lands, en hópur Mylius-Erichsens fylgdi strand- lengjunni.sem menn þá héldu með röngu vera sund þvert í gegnum Grænland. Þess í stað lentu þeir í botni hins 200 km langa Danmerk- urfjarðar og urðu að brjótast aft- ur út að ströndinni. Þegar þeir náðu á ysta höfðann út með firðin- um, Rigsdagshöfða, rákust þeir 27. maí 1907 eins og fyrir kraftaverk á sleða Koch-leiðangursins, sem var á leið til baka heim til Danmarks- havn eftir að hafa lokið sínu verk- efni. Þeim talaðist í fyrstu svo til að báðir hóparnir skyldu halda heim saman, en um nóttina skipti Mylius-Erichsen um skoðun. Ákvað að halda áfram lengra í vestur til að ganga örugglega úr skugga um að Independence- fjörður væri fjörður en ekki sund, en Koch skyldi halda með sína Erichsen og Höeg Hagen höfðu farið niður um nokkrum mílum áður en þeir náðu birgðastöðinni við Lambert Land. Brönlund tókst að dragast áfram að birgðastöð- inni, svo að umheimurinn fékk vitneskju um árangur leiðangurs- ins og hörmulegan dauða mann- anna þriggja. Harmleikurinn á Norðaustur- Grænlandi vakti ekki aðeins sorg í Danmörku heldur um allan heim. f Danmörku kom upp efi um að Koch hefði leitað nægilega mikið að líkunum og dagbókum og upp- dráttum sem vantaði. Og gagnrýni á að Koch hafði snúið við um leið og hann hafði fundið lík Brön- lunds en ekki haldið áfram þessar 2'k mílu sem Brönlund hafði sagt að væru að staðnum þar sem lík hinna væru. 1908 fékk ungur danskur kapt- einn og leiðangursmaður, Ejnar Mikkelsen, tilboð frá enskum blaðakóngi um að stýra leitarleið- angri gegn einkarétti blaðsins Daily Mail á fréttinni. En Mikk- elsen kaus heldur að fá danskan styrk til að leggja í miklu um- fangsminni leiðangur. Það var „Alabama-leiðangurinn" svokall- aði 1909—12. Um borð í Alabama komst þessi litli leiðangur að norðausturströndinni, en vegna íssins urðu þeir að fara í land nokkur hundruð kílómetrum sunnar en áformað var. Eftir níu daga sleðaferð tókst þeim að finna staðinn þar sem lík Jörgen Brön- lunds fannst. Refaspor sáust að klettaskorunni. En ekki tókst að finna nein ummerki um Mylius- Erichsen og Höeg Hagen og snúið var við í desember eftir 84 daga sleðaferð. Skilaboð í skothylki Alabama-leiðangurinn hafði vetursetu á skipinu og 3. mars 1910 lögðu Ejnar Mikkelsen og vélstjóri skipsins, Iver P. Iversen, upp í 1.900 km langa sleðaferð, sem átti að leiða þá á spor hinna horfnu manna. Þetta var einhver glæfralegasti leiðangur sem nokkru sinni hefur verið farinn. Þeir héldu yfir rekísinn í norður- átt. í Danmarksfirði"fundu þeir í vörðu skiiaboð frá Mylius- Erichsen í skothylki, skrifuð 12. september 1907. Það veitti ofurlít- ið meiri vitneskju um þennan harmleik. M.a. að mennirnir höfðu orðið að slátra nokkrum af hund- unum þar sem^þeir neyddust til að hafa sumardvöl við Danmarks- fjörðinn, en að nú hefðu þeir næg- ar birgðir og reiknuðu með að ná aftur til skipsins á 5—6 vikum. Seinna fann Mikkelsen enn ein skilaboð í vörðu, skrifuð 8. ágúst sen og Peter Freuchen, sem höfðu verið með í Danmarks-leiðangrin- um, á hendur hraðferð með hjálp tveggja heimskautaeskimóa frá Thule til Danmarks-fjarðar, til að ná til Mikkelsens og Iversens. Leiðin var 1.000 km löng og lá þvert yfir jökulbreiðuna. Þeir könnuðu Independece-fjörðinn og víkur inn úr honum og gengu úr skugga um að Peary-sund er ekki til. Mylius-Erichsen og Höeg Hag- en höfðu komist að raun um það sama, en þeirra uppgötvun var þá ekki enn kunn. Leyndardómurinn um hvarf þeirra var enn óleystur og er enn. Þrátt fyrir hörmuleg endalok náði Danmark-leiðangurinn veru- legum árangri. Rannsóknir þeirra á þessu svæði urðu beinlínis til þess að Danmörk fékk með úr- skurði alþjóðadómstólsins yfirráð- in yfir öllu Grænlandi. Ástæðan fyrir því að nýr dansk- ur leiðangur gerir sér vonir um að geta kannski leyst þessa 77 ára gömlu gátu, kann að vera sú að hingað til hefur verið gengið út frá því að upplýsingar Jörgen Brönlunds í dagbókinni megi túlka þannig að Mylius-Erichsen og Hoeg Hagem hafi farist á hafísn- um í 79-firði. Fyrir áratug setti Eske Brun, fyrrverandi deildarstjóri í Græn- landsmálaráðuneytinu, fram nýja kenningu. Hann taldi ekki að Grænlendingur, sem talaði illa dönsku og gat enn síður skrifað hana rétt, mundi nota orðið „omkom" fyrir að farast, heldur ætti það að skiljast sem: fórum um 79-fjörðinn. Það gefur allt aðra möguleika. Þannig liggur Rannsóknir Myliusar Erichsens i Norðaustur-Grænlandi urðu beinlínis til þess að alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði Danmörku yfirráðaréttinn yfir öllu Grænlandi 1933. Þau yfirráð markast m.a. af hinum hefðbundnu Sir- iusar-leiðöngrum um Norðaustur-Grænland. sama ár. Þar er sagt frá því að Peary-sundið sé alls ekki til og að Independence-sund sé falsfrétt. Grænland sé bara ein stór eyja. Með þetta urðu Mikkelsen og Iversen að snúa við og halda í suð- urátt meðfram ströndinni. Þeir urðu að skilja eftir útbúnað sinn, sleða, dagbækur, kortauppdrætti og fara fótgangandi þar til þeir náðu til Alabama 25. nóvember. Alabama hafði þó farist 13. mars en annað skip sótti leiðangurs- mennina, sem höfðu orðið að haf- ast við yfir veturinn í kofa sem byggður var úr brakinu af skipinu. Um veturinn fóru þeir gangandi til baka og sóttu útbúnaðinn sem þeir höfðu skilið eftir, svo og dagbækurnar. Og það var ekki fyrr en eftir eina vetrarsetuna enn að Mikkelsen og Iversen var bjargað af norsku skipi sumarið 1912, nokkrum dögum áður en danskt eftirlitsskip komst á stað- inn. Sama ár tókust Knud Rasmus- önnur skýring á skilaboðum Jörg- en Brönlunds til umheimsins að baki nýja leitarleiðangrinum til Norðaustur-Grænlands í sumar. Vonandi tekst þessum leiðangri að varpa nýju ljósi á harmleikinn og upplýsa hvað gerðist á tímabil- inu frá síðustu tilkynningu Myli- us-Erichsens frá 12. september 1912 og þar til Jörgen Brönlund skrifaði síðustu orðsendingu sína á dönsku í dagbókina. Því á tíma- bilinu frá 12. september þar til Brönlund dó, er aðeins ein stutt- orð orðsending í dagbókinni hans. (Hún er geymd í Konunglega danska bókasafninu í þýðingu Chr. Rasmussens, föður Knud Rasmussens.) Hún er dagsett 19. október og þar segir að mennirnir þrír hafi komið upp á jökulísinn, að það hafi tekiö fjóra daga að komast þar upp og svo: „Fimmti hundurinn af þeim sem eftir voru er nú líka dauður, stangaður til bana af moskusuxa. Sólin er hætt að koma upp.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.