Morgunblaðið - 13.05.1984, Side 12
r»
60
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
'EIsAlvn
rðir við erfiðar aðstæður
N. Heitgalvaniseraöristarefniúrgæðastáli. Bættvinnu-
aðstaða og aukið öryggi starfsfólks er allra hagur.
Ristarefni
ogþrep
NyjungS
Þrep meö serslakri hálkuvörn.
Aukiööryggí við erfídar ^
aöstæöur
S&jfss
SINDRA
STALHF
Pósthólf 881. Borgartúni 31, 105 Reykjavík, símar: 27222 & 21684
Hemlar og hemlakerfi er mikilvægasti öryggisþátturinn í öllum akstri
og meðferð ökutækja og vinnuvéla. Þetta vita allir.
í því sambandi skiftir mestu, sé fyllsta öryggis gætt; að vel sé séð fyrir
viðhaldi og umhirðu allri. Þetta vita líka allir.
Við erum sérfræðingar í allskyns hemlum og hemlakerfum.
1. flokks varahlutaþjónusta. Við bjóðum orginal varahluti, beint frá
framleiðendum, - á ótrúlega góðu verði.
Yfir 20 ára þjónusta fagmanna tryggir öryggið.
LLING ”,
Sérverslun með hemlahluti.
Skerfunni 11 Sími: 31340,82740,
»
Samvinnuskólinn
fær tölvubúnað
Samvinnuskólinn á Bifröst tekur
tölvubúnaó frá IBM til notkunar í
haust. í frétt frá skólanum segir
ennfremur, að í sumar verði allar
kennslustofur og kennsluhúsgögn
Samvinnuskólans endurnýjuð,
bókasafn skólans sé í endurmótun
og í haust verði matvælageymslur
mötuneytis Samvinnuskólans
endurbyggðar. Þá segir að Sam-
vinnuskólinn sé í mjög auknum
mæli að taka myndbönd í notkun
jafnt í reglulegri kennslu sem á
starfsfræðslunámskeiðunum og
næsta vetur verði sú nýjung í
kennslu Samvinnuskólans að heila
viku munu nemendur sjálfir starf-
rækja tilraunafyrirtæki til þess að
öðlast raunhlíta reynslu af atvinnu-
rekstri.
Þetta hafi meðal annars komið
fram í yfirlitsræðu skólastjóra
Samvinnuskólans á Bifröst, Jóns
Sigurðssonar, við skólaslit 1. maí
síðastliðinn, en þá lauk 66. skóla-
ári Samvinnuskólans og 29. árinu
á Bifröst í Norðurárdal. Umsókn-
arfrestur um skólavist næsta
vetur er til 10. júní næstkom-
andi.
122 nemendur stunduðu nám
við Samvinnuskólann í vetur og
luku 38 Samvinnuskólaprófi. I
hópi nemendanna voru 45 í
Framhaldsdeild Samvinnuskól-
ans sem starfar í Reykjavík, og
af þeim gangast 24 undir stúd-
entspróf nú í vor.
Við skólaslit nú höfðu alls
7.101 sótt starfsfræðslunámskeið
Samvinnuskólans frá því að þeim
var hrundið af stað 1977, en nú í
vetur höfðu þar af 343 sótt slík
námskeið skólans. Nú í vor verða
38 námskeið á 36 stöðum í öllum
landshlutum auk Bifrastar.
Framhaldsdeild Samvinnu-
skólans verður slitið laugardag-
inn 12. maí næstkomandi í
Holtagörðum í Reykjavík, og út-
skrifast þá tíundi stúdentaár-
gangurinn.
Hæstu einkunn á Samvinnu-
skólaprófi hlaut þessu sinni
Hildur Árnadóttir frá Keflavík
- 9,27.
Spænsk kvik-
myndasýning í
Norræna húsinu
SPÆNSKA sendiráðið og
spænskudeild Háskóla ís-
lands gengst fyrir sýningu á
spænsku kvikmyndinni
„Las verdes praderas“ (hin
grænu engi) í Norræna hús-
inu þriðjudagskvöldið
næstkomandi kl. 20.30.
í fréttatilkynningu sem Mbl.
hefur borist segir m.a.: „Leik-
stjóri myndarinnar, José-Luis
Garci, oft nefndur fulltrúi
yngstu kynslóðar kvikmynda-
gerðarmanna á Spáni, er fyrsti
spænski kvikmyndaleikstjór-
inn, sem fengið hefur hin eftir-
sóttu Óskarsverðlaun fyrir
bestu erlendu kvikmynd ársins
1982, „Volver a empezar", (Að
byrja aftur.)
Kvikmyndina gerði Garci
árið 1979 og var hún sýnd í níu
mánuði samfleytt í Madrid.
Myndin er fyrst og fremst
gamanmynd þó að undirtónn
hennar sé alvarlegri."
Með aðalhlutverk í mynd-
inni fer Alfredo Landa, en
hann lék ennfremur aðalhlut-
verkið i E1 Crack I og E1 Crack
II eftir Garci, sem sýndar voru
á kvikmyndahátíðinni í
Reykjavík í vetur.
Myndin er í lit og með
spænsku tali. Aðgangur er
ókeypis.
Leikstjóri myndarinnar „Las
verdes praderas", José-Luis
Garvi. Þessi mynd var tekin við
afhendingu Óskarsverðlauna ár-
ið 1983, en hann fékk verðlaunin
fyrir mynd sína „Volver a emp-
ezar“.
Innflytjandi —
Gaffallyftarar
j samvinnu viö yfirvöld í Kóreu og vegna einkaum-
boös okkar í Evrópu á gaffallyfturum frá Kóreu, leit-
um viö aö innflytjanda fyrir íslenskan markaö.
Lyftararnir eru raf- og dieselknúnir, í hæsta gæöa-
flokki, glæsilega hannaöir og á mjög góöu verði.
Lyftararnir hafa í mörg ár veriö á Bandaríkjamarkaði
meö mjög góöum árangri. Innflytjandinn á íslandi
veröur aö hafa góöa þekkingu á markaöinum.
Eingöngu skriflegum umsóknum veröur sinnt. Skrifið
á norsku eöa ensku. Fariö veröur meö umsóknir sem
trúnaöarmál.
Erro-Maskin A/S, Dunihagen alle 20,
3070 Sande, Norge.