Morgunblaðið - 13.05.1984, Side 15

Morgunblaðið - 13.05.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984 63 „Ég vaknaði til Iffsins . . . fyrir tveimur árum. Það var þegar ég frétti að til tals hefði komið að láta morðingja dóttur minnar lausan til reynslu SJÁ: Framboö VAGESTIR MANSON: Hann og „ fjðlakyldan“ eru enn undir lás og slá. aö morðingjar sem úrskuröaöir eru veilir á geösmunum séu vistaö- ir á sérstökum deildum fyrir geö- sjúka, þar sem öryggisvarzla sé lít- il. Og fyrir bragöiö takist þeim oft aö strjúka. „Mér rennur blóöiö til skyldunn- ar," segir hún. „Þess vegna vil ég reiöa til höggs hér í Kaliforníu. Veröi ég kjörin á þing gæti ég rétt hlut þeirra, sem eiga um sárt aö binda vegna glæþaverka. Menn taka mark á þingmönnum." — WILLIAM SCOBIE Ulfar angra Svíann Úlfar hafa að nýju tekiö sér bólfestu í Svíþjóö og leita stööugt lengra suöur á bóg- inn. Hefur þetta valdiö harövít- ugum deilum milli háttsettra aöila, er aöhyllast náttúru- vernd og svo íbúa á afskekkt- um stööum, sem eru skelfingu lostnir yfir þessum vágestum og krefjast þess aö þeim veröi útrýmt. Fyrir skömmu sást úlfaslóö í tæplega 20 mílna fjarlægö frá Stokkhólmi. Dýrin höföu bersýni- lega reikaö suöur á bóginn frá Vermalandi í Mið-Svíþjóö, sem er fremur strjálbýlt héraö, en þar eru um 30 úlfar í hóp, íbúunum til mikill- ar hrellingar. Nokkrir fullvaxnir elgir hafa fund- izt dauðir i skógunum skammt frá þorpinu Bjurberget, og þykir Ijóst að úlfar hafi drepiö þá. Þeir höfðu verið bitnir á barkann. Þá hafa rúmlega 60 kindur verið drepnar og dregnar á burt í skjóli myrkurs, og úlfaspora hefur oröiö vart aðeins nokkra tugi metra frá híbýlum fólks. D-dagur, innrásardagur- inn. Nú er Ijóst aó fleiri fórust af slysförum viö æfingar en fyrir byssu- kjöftum fjandmannanna þegar alvaran hófst. leysi og misskilningur", aö mann- falliö viö æfingarnar hafi veriö meira en þegar loksins var ráöist gegn byssukjöftum Þjóöverja á Utah-strönd í Normandí. I myndinni er vitnaö til opinberra skjala og sagt, að herlæknarnir, sem könnuöu valinn, hafi fengið þessa fyrirskipun: „Spyrjiö einskis, skráiö ekkert hjá ykkur. Sá, sem lætur eitt einasta orö falla um þessa atburöi, mun veröa dreginn fyrir herrétt." Heimildamyndin var fyrst sýnd fyrir fólk á þeim slóöum þar sem þessir atburöir geröust og varö þaö til þess, aö 63 ára gömul kona, Dorothy Seekings aö nafni, skýröi frá þVí, aö voriö 1944 heföi hún séð „heilu bílfarmana af líkum banda- riskra hermanna grafna i ómerkt- um fjöldagröfum". Ken Seymour, framkvæmda- stjóri og framleiöandi myndarinnar, segir, að hún sé byggð á opin- berum skýrslum og samtölum við þá sem þarna komu viö sögu, meö- al annars við Harry Butcher, ráö- gjafa Eisenhowers hershöföingja í flotamálum. I skýrslu til Eisenhow- ers var hann ómyrkur í máli um aumingjaskap foringjanna, sem stjórnuöu æfingunum. „Ungu foringjarnir, sem ég sá ... virðast halda, aö stríöiö sé ein allsherjaræfing. Hvernig munu þeir standa sig í orrustu? Margir hinna háttsettari valda mér einnig áhyggjum. Þeir eru feitir, grá- muskulegir og gamlir. Flestir skarta þeir marglitum einkennismerkjum úr fyrra stríði — og baráttuaöferöir þeirra eru þær sömu og þá tíökuð- ust." Skipherrann á breska herskipinu segir í viötali, aö ef hann heföi reynt aö skjóta á þýska tundur- skeytabátinn heföi hann átt á hættu aö hitta landgöngupramm- ana, og ástæöan fyrir því, aö hann reyndi ekki aö bjarga hermönnun- um úr sjónum, var sú, aö ekki mátti reyna slíkt fyrr en árás var yfirstaö- in. Hans Schirren, skipherra á þýska tundurskeytabátnum, er nú 65 ára gamall og býr í Wientapper í Vestur-Þýskalandi, þáöi ekki boö um aö koma fram í heimildamynd- inni en i bréfi frá honum segist hann „furöu sleginn" yfir mannfall- inu i árásinni fyrir 40 árum. „Ég vona, aö mér leyfist að segja, aö ég er harmi lostinn vegna þessa mikla mannfalls, sem viö höfum ekki haft hugmynd um fyrr en nú.“ —JOHN EZARD Óboóinn geatur: náftúruverndarmenn himiniifandi, bændur æfir. Ibúar á þessu svæöi hafa mynd- aö meö sér samtök til aö knýja stjórnmálamennina í Stokkhólmi til aö aflétta friðun af úlfum. Joachim Hellquist er tæplega fertugur bóndi i Vermalandi og býr þar ásamt konu sinni, Evy, og tveimur börnum þeirra, Idu og Anti, sem eru sjö og fjögurra ára. Á hverjum morgni fylgja hjónin börnum sínum til viö- komustöövar skólabílsins í útjaöri Bjurberget, vopnuö byssu, skot- færabelti, tveimur stórum veiöi- hnífum eins og Samar nota og langri, oddhvassri stöng. Þegar skólabíllinn kemur aftur síödegis, sækja þau börnin á viökomustaö- inn og fylgja þeim heim. Úlfahjörðin hefur grandaö 21 kind úr bústofni Hellquist, og hann kveðst gefa dauðann og djöfulinn í fyrirmæli stjórnvalda. „Ef þeim er svona óskaplega annt um úlfa, ættu þeir bara aö koma hingaö og reyna að temja þá. Viö þurfum aö gæta búfénaöar okkar, en þó umfram allt barnanna. Við tökum enga áhættu. Ef einhver af þessum skepnum kemst í ná- munda viö mig og fjölskyldu mína, skal ég koma henni fyrir kattarnef aö mér heilum og lifandi," segir hann. En vistfræöingar og dýravinir þykjast hafa himin höndum tekiö og streyma til Bjurberget og nágrennis til aö sjá úlfahjöröina og reyna aö ná Ijósmyndum af henni. Sérfræð- ingar telja, aö úlfarnir geti hæglega oröiö um 100 talsins á næstu tveim- ur árum. Þótt ferðamannastraumur á þessum slóöum hafi aukizt og þaö hafi haft í för meö sér auknar tekjur í verzlun og viöskiptum, fer því fjarri að þorpsbúar séu ánægöir. Þeir skella líka skolleyrum viö niöur- stööum nýjustu rannsókna, sem eru á þá lund, aö úlfar ráöist yfirleitt ekki á menn. í kirkjubókum Bjur- berget-kirkju hafa þeir sannanir fyrir því gagnstæöa. Á árunum 1821 — 1825 er þess þrisvar getið aö úlfar hafi oröið börnum aö bana. Börnin voru fjögur talsins á aldrin- um 8—11 ára, þar á meöal tvíbur- ar. Meðan hart var deilt um úlfa- hjöröina í Vermalandi, sást slóö eft- ir úlf skammt frá bænum Södertalje í 20 mílna fjarlægö frá Stokkhólmi. Þá fundust einnig spor eftir úlf viö Himmelsjö, sem er aðeins 15 mílur frá borginni. Aö undanförnu hafa þær fréttir borizt frá úthverfum borgarinnar, aö gæludýr hafi horfiö þaöan meö dularfullum hætti. Ennfremur hafa allmargir skýrt frá því, að „stórir hundar" hafi velt um koll ruslatunnu í úthverfum Stokk- hólms. Samkvæmt þessu er ekki loku fyrir það skotiö aö Svíar standi frammi fyrir nýstárlegu samfélags- vandamáli — landnámi borgarúlfs. — UHRIS MOSEY ÞETTA GERÐIST LIKA . Vitfirrtur leiðtogi Kamal Hassan, utanríkisráöherra Egyptalands, hefur greint frá því að Mo- ammar Khadafy, leiötogi Líbýumanna, sem mikiö er í fréttum þessa dagana vegna hryöjuverka sem erindrekar hans hafa unn- iö á Vesturlöndum, hafi um tveggja mán- aöa skeiö á árinu 1969 dvalist á geöveikra- hæli í Egyptalandi. Hann haföi þá þjáöst af geövillu og geölægö. Þetta var skömmu eftir aö byltingin í Libýu, sem færöi Khad- afy völdin, var gerö. Upplýsingar Hassan koma ekki á óvart því lengi hefur veriö vitaö um kynlega hegöun Khadafys. Hann fer reglulega einsamall út í eyöimörkina til aö tala viö anda og telur sig heyra raddir, sem aörir geta ekki numiö. Egypski ráö- herrann segir aö án vafa sé Khadafy brjálaöur og veröldinni stafi ógn af honum. Þingmenn í banni Samtök gleöikvenna í Astralíu hafa hvatt félagsmenn sína til aö veita þarlendum þingmönnum enga þjónustu á næstunni. Þetta gera þær til aö mótmæla rannsókn sem nefnd, sem eingöngu er skipuð körlum, er aö gera á vændi í Nýja-Suöur-Wales aö boöi fylkisstjórn- arinnar þar. Fullvíst er taliö aö niöurstaöan veröi sú aö blíðusala veröi eingöngu leyfö á sérstökum „nuddstofum", en bönnuö á göt- um úti. Á þaö mega gleöikonurnar ekki heyra minnst og vilja geta valsaö um og boöiö þjónustu sína á almannafæri svo sem hingað til. Boy George eða hvað? Aödáendur söngvarans Boy George í Puerto Rico þóttust heldur betur hafa dott- iö í lukkuþottinn þegar maöur sem leit nákvæmlega eins út og hann og kvaöst vera söngvarinn frægi skaut þar allt í einu upp kollinum. Aödáendur streymdu aö og maöurinn gaf eiginhandaráritanir í griö og erg, leyfði blaöamönnum viö tvö dagblöð í San Juan aö taka viö sig viötöl og birtist loks í sjónvarpsþætti á eynni. Þá fóru loks aö renna tvær grímur á menn og á daginn kom aö hinn raunverulegi Boy George — George O’Dowd — var staddur i Atlanta í Georgíuríki í Bandaríkjunum. Tuttugu þúsund krókódílar Framkvæmdir viö heimsins stærsta krókódílabú eru nú í fullum gangi og er áætlaö aö þeim Ijúki innan tveggja ára. Búiö er skammt frá Mombasa í Afríkuríkinu Kenýa og þar munu veröa 20.000 krókó- dílar. Á ári hverju veröa 3.000 þeirra flegnir og er talið aö útflutn- ingsverömæti skinnsins muni nema um tveimur milljónum ísl. króna. Ekki pláss fyrir konur Karlmenn í Ausser-Rhoden í Sviss komu saman til heföbundins vorþings undir beru lofti á bæjartorgi staöarins fyrir skömmu og samþykktu þar meö miklum meirihluta atkvæöa að veita konum í héraöinu ekki kosningarétt. Þetta er í fimmta sinn á hálfum öörum áratug sem tillögu um kosningarétt kvenna er hafnað á vorþingi karlanna. Helsta röksemd þeirra er sú aö bæjartorgiö sé ekki nógu stórt til aö rúma svo fjölmennan kjósendahóp. SI1T LITIÐ AF HVERJU Margrét, fyrrum eiginkona Pierre Trudeau, forsætisráöherra Kanada, gekk á dögunum aö eiga kaupsýslu- mann frá Ottawa, Fried Kemper aö nafni . . . Konum í forstjórastööum hjá bandarískum fyrirtækjum fjölg- aöi úr 18,5% í 30,5% á árunum 1970—1980 . . . Styttan „Krista" sem sýnir Frelsarann sem kven- mann hefur veriö fjarlægö úr dóm- kirkju heilags Jóhannesar i New York . . . Dagblað í Pietersburg í Suöur-Afríku hefur neitaö aö birta Ijósmynd af tveimur rokksöngvur- um, öörum hvítum og hinum svört- um, sem haldast i hendur. Segir rit- stjórinn aö slík mynd kynni „aö mis- bjóöa sómatilfinningu lesenda".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.