Morgunblaðið - 13.05.1984, Side 16
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
Listmunauppboö nr. 123.
Málverkauppboö
mánudaginn 14. maí 1984 kl.
20.30 aö Hótel Sögu (Súlna-
sal).
Nafn
ferming-
arbarns
VIÐ fermingu í Selfosskirkju í
dag, sunnudag kl. 14, verður
fermdur Tómas Ellert Tómas-
son, Heimahaga 1, Selfossi.
Hún slær allt út
og rakar líka
Þú slærð betur með LAWN BOY
Rafeindakveikja tryggir örugga gangsetningu
3.5 HP sjálfsmurð tvígengisvél.
Hún er hljóðlát.
Hún slær út fyrir kanta og upp að vegg.
Auðveldar hæðarstillingar
Fyrirferðalítil, létt og meðfærileg.
BalsamShanipoo
Med Collagén
Glimor shampó
fyrir alla íjölskylduna:
Glimor-
jurta-shampó
Milt shampó, fyrir normalt og
þurrt hár. Sérlega gott fyrir
slétt, líflaust hár. Inniheídur
Collagén.
Glimor-shampó
-hárnæring
Shampó og hárnæring í sömu
flösku fyrir normalt og feitt hár.
Inniheldur Collagén.
Glimor-
hárnæring
Inniheldur minna en 1% fitu,
sem gerir það að verkum að hár-
ið fitnar ekki eins fljótt aftur
og heldur frískleika sínum lengi.
Inniheldur Collagén.
Urteshampoo
Hárbalsam
Med Collagen
Kkiltii «8* í.lu ríMk-r !«•«»
lylrft^l íhí «Í4Hy|||8l
Med Collagett
Collagén er náttúrulegt næringarefni sem styrkir
hárið og viðheldur eðlilegum raka þess. Þar að auki
gefur það hárinu fallega áferð og auðvelt er að
greiða það.
Collagén leggst utan á hvert einstakt hár eins og
fíngerð filma og styrkir þau. Hættan á sliti í hári
minnkar allverulega vegna áhrifa Collagéns.
Heildsölubirgðir J.S. Helgason hf. Sími: 37450.
Fimm ættliðir
í DAG, sunnudaginn 13. maí, er Jörundur Gestsson, Efstasundi 4 í
Reykjavík, 84 ára gamall. Á myndinni hér að ofan er Jörundur lengst til
vinstri en honum til vinstri handar eru fjórir ættliðir frá honum. Þeir
eru sonur hans, Magnús Jörundsson, þá Kristján Magnússon, Magnús
Kristjánsson og Stefán Magnússon.
Sigmar Stefán Pétursson ásamt eiginkonu sinni, Þórdísi Richardsdóttur, við
annan tveggja bara á hinu nýja diskóteki I Sigtuni.
Nýtt diskótek á efri hæð Sigtúns:
Dansað á marmara
— og aldurstakmark hækkað úr 18 árum í 20 ár
VEITINGAHÚSIÐ Sigtún opnadi á
föstudagskvöld diskótek á efri hæð
hússins, en undanfarna tvo mánuði
hefur verið unnið að því að breyta
efri hæðinni og er hún nú orðin að
nýtískulcgu diskóteki með sérstök-
um inngangi á austurhlið hússins.
Diskótekið verður opið öll kvöld vik-
unnar, en báðar hæðirnar verða
opnar um helgar og mun hljómsveit
þá leika fyrir dansi á neðri hæðinni.
Allar innréttingar eru nýjar.
Teppi á gólfunum eru sérhönnuð
fyrir Sigtún, þau eru í bláum lit og
í þau ofið nafn staðarins í ljósum
lit. Marmari er upp á miðja veggi
og mikið er af speglum á veggjun-
um. Dansgólfið er úr marmara og
rösklega 30 fermetrar að stærð. I
stað stóla og borða sem áður voru
á efri hæð Sigtúns, eru nú komnir
sófar og hringlaga borð og þar
sem veitingastofa var áður, er nú
komin vistleg setustofa. „Hér er
fólkið komið út úr mesta hávaðan-
um og getur rætt saman án þess
að tónlistin trufli samræðurnar,"
sagði Sigmar Pétursson eigandi
Sigtúns um setustofuna er blm.
Morgunblaðsins hitti hann að
máli í hinu nýja diskóteki á föstu-
dag. Við hlið setustofunnar er grill
og sagði Sigmar að þar yrði boðið
upp á alla algengustu grillrétti.
Inn af grillinu er svo komin mat-
stofa, en þar var áður geymsla.
Hið nýja diskótek rúmar um 450
manns og verður aldurstakmark
þar 20 ár. Eins og áður sagði, eru
allar innréttingar nýjar og svo er
einnig um ljósa- og tónlistarbún-
að. „Hluti af ljósabúnaðinum hef-
ur aldrei sést í íslensku diskóteki
áður,“ segir 'Sigmar og bendir á
svonefnt raf-flash, sem blikkar í
takt við tónlistina. Sagði Sigmar
að með þessari breytingu á efri
hæðinni vildi hann höfða til eldra
fólks en undanfarin ár hefði verið
meirihluti gesta hússins. Tónlistin
yrði miðuð við gesti á aldrinum
20—40 ára og aldurstakmark yrði
20 ár í stað 18 ára áður. Plötu-
snúðar diskóteksins eru Arnþrúð-
ur Karlsdóttir og Logi Dýrfjörð,
en starfsfólk um helgar verður
alls um 60 manns.
Myndir: Kmilía.
Þessi mynd var tekin á föstudag þegar unnið var að því að undirbúa staðinn
fyrir opnunina um kvöldið.