Morgunblaðið - 13.05.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
69
Hreyfíll — BSR
— Bæjarleiðir
Fjórtán sveitir taka þátt í
Board a Match-keppni sem nú
stendur yfir.
Staðan:
Mikhael Gabríelsson 155
Cyrus Hjartarson 132
Anton Guðjónsson 127
Bjarnleifur Bjarnleifsson 123
Flosi Ólafsson 122
Guðmundur Magnússon 122
Þórður Elíasson 105
Síðasta spilakvöldið verður á
mánudaginn kemur í Hreyfils- >
húsinu.
Sumarbridge í
Reykjavík 1984
Bridgesamband Reykjavíkur
stendur að venju fyrir sumar-
spilamennsku í Reykjavík, eins
og flestum mun kunnugt. Spila-
kvöld þessi hafa verið gífurlega
vel sótt af spilafólki, hvaðanæva
að.
Að þessu sinni hefur verið
ákveðið að hefja spilamennsku
fimmtudaginn 17. maí nk. Þá eru
flest félögin í Reykjavík (ef ekki
öll) hætt vetrarstarfsemi sinni.
Vakin er sérstök athygli á því
að sumarbridge mun færa sig
um set. Spilað verður í Borgar-
túni 18, í sama húsi og Spari-
sjóður vélstjóra, í góðum sal sem
tilhcyrir Sjómannasambandinu.
Páll Bergsson hefur t.d. stundað
sína bridgekennslu þar og spila-
mennsku og fólki líkað vel að
sögn.
Sumarbridge hefst fimmtu-
daginn 17. maí, eins og fyrr
sagði. Síðan verður spilað næstu
tvo miðvikudaga þar á eftir, 23.
maí og 30. maí. Síðan alla
fimmtudaga, út sumarið.
Keppnisstjóri verður að vanda
Ólafur Lárusson.
Spilafólk er minnt á að kynna
þessa spilamennsku fyrir þeim
sem enn hafa ekki látið sjá sig á
spilastöðum borgarinnar.
Sumarbridge er kjörinn vett-
vangur fyrir byrjendur, jafnt
sem lengra komna.
Keppni hefst að vanda í síð-
asta lagi kl. 19.30, en spila-
mennska er yfirleitt hafin
eitthvað fyrr, í fyrstu riðlum
(kannast einhver við þann fræga
A-riðil?).
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 8. maí lauk
vortvímenningi deildarinnar
með öruggum sigri Óla Andreas-
en og Sigrúnar Pétursdóttur.
Röð efstu para er þessi:
Óli Andreasen —
Sigrún Pétursdóttir 476
Ragnar Björnsson —
Sævin Bjarnason 472
Erlendur Björgvinsson —
Sveinn Sveinsson 471
Björn Hermannsson —
Lárus Hermannsson 462
Hildur Helgadóttir —
Karolína Sveinsdóttir 456
Næstu þriðjudagskvöld verður
spilaður sumarbridge-tvímenn-
ingur, öllum er frjáls þátttaka
meðan húsrúm leyfir.
Spilað er í Drangey, Síðumúla
35, klukkan 19.30 stundvíslega.
reglulega af
ölmm
. fjöldanum!
2x30 wött
Geysi skemmtilegur og öflugur.
Mjög skemmtilegt.
Metal, Dolby, fluormælar.
Tíönisvörun: 30-18.000 riö
Bassi 170 mm.
Miötóna 75 mm.
Hátóna 50 mm.
Bass reflex-kerfi
Stærö 256x508x200 mm
B H D
Verð 31.980.- stgr.
Útb. frá 8.000 — Rest á 6 mán.
3ja ára ábyrgö.
i ('i i lp1- > * i m
merki
unga fólksíns
Skipholti 19,
sími 29800.
Segulbandstæki SD-230
Hágæöa móttakari.
Hátalarar HD-300
Hálfsjálfvirkur, beltdrifinn, léttarm-
ur og fullkominn tónhaus.
Skápur MR 920
Plötuspilari TT-130 DL
Magnari PM-230
Útvarp St 320 L