Morgunblaðið - 13.05.1984, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
95
Birgir fleygöi bílnum í gegnum hverja beygjuna af annarri og landslagið rann saman í
eina heild
urnar og gíra niður, sneri Birgir
bílriui.i inn í hana, en bíllinn rann
smáspöl út með afturendann á
meðan afturhjólin voru að finna
grip í lausum jarðveginum. Birgir
skipti örsnöggt upp að nýju í ann-
an gír. „Lokað," kallaði ég um leið
og ég sá lokað hlið í tæplega 100
metra fjariægð, en Birgir skipti í
þriðja gír og allt var á fullri
vinnslu. „Lokað — LOKAÐ" hróp-
aði ég nú og veifaði vinstri hend-
inni. Birgir steig á bremsuna í ró-
legheitunum og er ég leit á hann
var hann skælbrosandi og sneri
bílnum við.
Landslagið rann sam-
an í eina heild
Enn á ný var vélarkrafturinn
fulinýttur eftir beinu köflunum,
en er við komum eftir sömu leið og
áður, tók Birgir skyndilega vink-
ilbeygju inn á afleggjara til hægri
með því að svinga afturendanum
út með niðurskiptingu. Afturend-
inn gældi við ystu brún vegarins,
en Birgir hugsaði ekkert um það,
heldur gaf allt í botn og bíllinn
rétti sig af og skaust eftir vegin-
um í takt við gírskiptingarnar.
Síðan tók við löng aflíðandi vinstri
beygja og miðflóttaaflið tók að
hræra upp í mér og ósjálfrátt
sveigði ég líkamann á móti beygj-
unni, um leið og ég reyndi að forð-
ast að trufla gírskiptinguna. Birg-
ir fleygði bílnum gegnum hverja
beygjuna af annarri og landslagið
rann eiginlega saman í eina heild
fyrir augunum vegna hraðans. í
hvert skipti sem bensíngjöfin
botnaði í beygjum tók bíllinn kipp
og líkaminn reyndi að aðlaga sig
þessum hamagangi. „Þú vinnur
þetta," stundi ég upp og reyndi að
láta viðurkenningarblæ heyrast.
„Ég ætla mér það líka,“ svaraði
Birgir og dró hægt og sigandi úr
ferðinni og er bíllinn hafði stöðv-
ast tók hann fram sérstaka öku-
mannshanska. Með þeim nær öku-
maður betra gripi á stýrinu og
þarf ekki að kreista það eins mik-
ið, til að fá snögg viðbrögð er stýr-
inu er snúið. Einhverntímann
sagði erlendur rallökumaður í
samtali við mig að allir ökumenn
ættu að nota hanska, það væri
betra að slíta þeim en höndun-
um ...
Nú er komið að síðustu salibun-
unni og það, að Birgir hafði sett
upp hanska, hlaut að þýða meiri
átök við stýrið.
Birgir ók bílnum nokkrum sinn-
um allhratt og bremsaði, og fann
ég þá hvernig afturhlutinn skopp-
aði lítillega til hliðanna. „Þetta er
vegna stillingar á bremsunum,"
sagði Birgir til skýringar og benti
á handfang í mælaborðinu, „það er
hægt að stilla hve mikið brems-
urnar taka í að aftan og framan.
Ég læt þær taka meira í að aftan
til að geta skutlað afturendanum
út fyrir beygjur með því að stíga
létt á bremsurnar."
Á meðan á þessum útskýringum
stóð hafði Birgir ekið hratt milli
gíra og látið vélina snúast dug-
lega, kvaðst hann vera að reyna að
finna á hvaða snúningi væri best
að skipta til að fá hámarksnýtingu
aflsins, í hverjum gír. Síðan spýtti
hann í lófana (hanskana) til að fá
betra grip, greip vinstri hendi um
stýrið, þeirri hægri um gírstöng-
ina og hægri fóturinn steig þung-
lega á bensíngjöfina og enn einu
sinni svaraði vélin grimmilega og
afturhluti bílsins nötraði er hann
rótaði af stað. Stuttu seinna var
bíllinn kominn á hliðarskrið gegn-
um hægri beygju á allt of mikilli
ferð að mér fannst, og ég leit lítið
lón til hliðar við veginn hornauga
... en ekkert gerðist, bíllinn
skaust gegnum beygjuna, án vand-
ræða, og lónið gleymdist strax í
næstu beygjum, sem komu hver af
annarri.
Afturendi bílsins skaust mjúk-
lega ýmist til hægri eða vinstri
eftir því hvert beygjurnar lágu,
framendinn var yfirleitt í beinni
stefnu, en framhjólunum sneri
Birgir oftast í gagnstæða átt við
hreyfingar afturendans, til að
rétta bílinn af.
„Tel mig getað
náð toppárangri“
„Það er mikill munur á því að
aka bíl sem þessum, sem hefur
fjöðrun eins og best verður á kos-
ið, heldur en rallbílum sem eru lít-
ið útbúnir. Þessi bíll er ekkert að
fjaðra í allar áttir,“ sagði Birgir er
hann hafði hægt á ferðinni. „Með
þessa fjöðrun finnst mér vanta
hestöfl í bílinn, en vegna vanstill-
ingar eru þau varla nema 140—150
í stað 170. Bíllinn er raunverulega
byggður fyrir 240 hestafla vél sem
er hinsvegar ekki heppileg í
rekstri hérlendis, en vélin sem við
notum í bílinn á hinsvegar að geta
skilað meiri orku en hún gerir.
Það er einhver vanstilling, sem
ekki næst að laga fyrr en eftir
næsta rall,“ sagði Birgir.
Við ókum nú í rólegheitunum
eftir beinum malarvegi og gafst
því tækifæri til að spyrja Birgi
hvað það væri sem hann sæktist
eftir með keppni í rallakstri. „Það
er margt, hraðinn og spenningur-
inn í kringum þetta. Þú reynir á
marga hluta líkamans í keppni,
hendur, fætur, augu, eyru og jafn-
vel nefið, til að finna óeðlilega lykt
úr vélarrúminu! Hugur manns
þarf að taka fjölmargar ákvarðan-
ir á sekúndubroti — allar réttar ef
þú ætlar að vinna. Þetta krefst
náttúrulega æfingar, en því miður
gefst okkur sem þetta stundum fá
tækifæri til slíks vegna umferð-
arlaganna. Aðalæfingin fæst í
keppni, enn sem komið er. Við get-
um ekki farið neitt að kvöldlagi
eða í skjóli nætur að æfa okkur,“
sagði Birgir. „Ég keppi í rallakstri
mikið til vegna þess að ég tel mig
það góðan að ég geti náð topp-
árangri — þar til annað kemur í
ljós verð ég bara að halda
þetta.. “ sagði Birgir og til að
árétta þessi orð gaf hann bensínið
inn er beygja nálgaðist, fór bíllinn
það innarlega í beygjuna að annað
framhjólið hékk í lausu lofti utan
vegarbrúnarinnar í gegnum beygj-
una og það sama gerðist í þeirri
næstu. Með þessu fór Birgir stystu
hugsanlegu vegalengd um beygj-
urnar, en einmitt á þann hátt
næst árangur í rallakstri því tím-
inn er dýrmætur ...
G.R.
ATH: Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags rikisstofnana styrkir
félaga sína á þetta námskeið og skal sækja um það til skrifstofu SFR.
STJÓRNUNARFÉIAG
ÍSLANDS tí»23
TIIKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
MARKMIÐ
Samskipti verkstjómandans við samstarfsmenn sína og hagsmuna-
aðila taka oft á sig fjölbreytilegar myndir. Einkum og sér í lagi
þegar vinnuálag eykst og spenna skapast, er hætta á að hlutimir
fari úrskeiðis. Hvernig á að bregðast við slíkum vandamálum
gagnvart yfirmönnum sínum, samstjómendum, undimtönnum og
trúnaðarmönnum á vinnustað?
Markmið námskeiðsins er að gera stjómendur meðvitaðri um eðli
þessara samskipta og gefa þeim tækifæri til að bera saman bækur
sínar í þessum efnum. Námskeiðið byggir á virkri þátttöku í um-
ræðum og vinnuhópum, þar sem einstök vandamál em tekin til
meðferðar.
EFNI
Námskeiðið heitir á frummálinu „The Front Line Manager", og
byggir á sviðsmynd sem þátttakendum er sýnd með videotækjum.
Þar blasa við verkstjómandanum margbrotin stjómunarleg
vandamál sem hann verður að horfast í augu við og leysa. M.a. er
tekið á eftirfarandi þáttum:
— Stjórnskipulag og upplýsingastreymi.
— Dreifing valds og ábyrgðar.
— Samskipti undir- og yfirmanna.
— Viðhorf til stjómunar og lausn vandamála.
ÞÁTTTAKENDUR
Námskeiðið er einkum ætlað verkstjórum og deildarstjórum á
sviði framleiðslu, þjónustu og verslunar, sem sjá sig í þeirri að-
stöðu sem að framan er lýst.
LEIÐBEINANDI
Helgi Baldursson, viðskiptafræðingur frá Háskóla íslands. Var
m.a. leiðbeinandi á verkstjórnunamámskeiðum Verkstjómunar-
fræðslunnar. Stundakennari við Háskóla fslands og Verzlunar-
skóla íslands í stjómun og tengdum greinum.
STAÐUR OG TÍMI
Síðumúli 23, 3. hæð, 22. maí 1984, kl. 9—18.