Morgunblaðið - 30.05.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
3
Ljósm. Mbl. ölafur K. Magnússon.
Útfór Ólafs Jóhannessonar
ÚTFÖR dr. Ólafs Jóhannessonar fyrrum forsætisrád-
herra var gerð á vegum ríkisins frá Dómkirkjunni í
Reykjavík i gær að viðstöddu fjölmenni. Dómkirkjan
var þéttsetin og hlýddu margir á athöfnina utan dyra,
en gjallarhornum hafði verið komið upp á Alþingishús-
inu. Athöfninni var útvarpað, en séra Þórir Stephensen
jarðsöng. Lögreglumenn stóðu heiðursvörð er kista dr.
Ólafs var borin úr kirkju.
Kistuna báru, talið frá vinstri á myndinni: Hall-
dór E. Sigurðsson fyrrum ráðherra, Jón Aðalsteinn
Jónsson framkvæmdastjóri, Eiríkur Pálsson fyrrv.
bæjarstjóri, Kjartan Guðjónsson, Magnús Þ. Tor-
fason hæstaréttardómari, Ármann Snævarr hæst-
aréttardómari, Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra og Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra.
Á eftir kistunni ganga fremst ekkja dr. Ólafs, frú
Dóra Guðbjartsdóttir, dætur þeirra og tengdasonur.
Dr. Ólafur var jarðsettur i Fossvogskirkjugarði.
Fyrirkomulagi sam-
ræmdra prófa breytt
ÁKVEÐIÐ hefur verið að breyta fyrir-
komulagi samræradra prófa í 9. bekk
grunnskóla fyrir næsta vetur. Fram að
þessu hafa nemendur í síðasta bekk
grunnskólans þurft að þreyta prófin í
febrúar en á næsta skólaári stendur til
að halda þau í byrjun maí.
Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri
skólamála i menntamálaráðu-
neytinu, sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins að auk þess að
breyta því hvenær prófin væru hald-
in væri einnig fyrirhugað að kennar-
ar grunnskóianna færu yfir próf-
lausnir nemenda en fram að þessu
hefði verið farið yfir þær á vegum
prófanefndar.
„Það er mjög tímafrekt að fara
yfir allar þessar prófúrlausnir, en
prófað verður í sömu fögum og áður,
og ef á að halda prófin í maí er hent-
ugast að farið verði yfir prófin á veg-
um skólanna, en vissulega verður að
gæta þess að samræmi verði í ein-
kunnagjöfinni," sagði Sólrún.
Aðspurð um hvort einkunnir yrðu
gefnar samkvæmt normalkúrfu
sagði hún að það yrði ekki gert held-
ur fengju nemendur einkunnir sam-
kvæmt eigin frammistöðu en ekki
samkvæmt frammistöðu annarra.
Sólrún bætti því við að ekki hefði
verið gengið frá því enn hvaða kröf-
ur yrðu gerðar til nemenda til að
þeir kæmust inn í framhaldsskólana
en tekin yrði ákvörðun um það í
sumar eða haust.
Ríkisstjórnin:
Fyrsta umræða
um fjárlaga-
frumvarp 1985
FYRSTA umræða um fjárlagafrum-
varp ársins 1985 fór fram á ríkis-
stjórnarfundi í gærmorgun.
Að sögn Magnúsar Torfa
Ólafssonar blaðafulltrúa ríkis-
stjórnarinnar var þetta fyrsta
umræða ríkisstjórnarinnar um
fjárlagafrumvarpið, sem nú er að
hefjast vinnsla á í embættis-
mannakerfinu. Umræðan byggðist
á bráðabirgðaáætlun um stöðu
þjóðarbúsins.
Brynjar Valdimars-
son yfirlœknir látinn
BRYNJAR Valdimarsson yfirlæknir á
Kristneshæli andaðist á heimili sínu
aðfaranótt 26. maí sl. tæplega 54 ára
að aldri.
Brynjar var fæddur á Akureyri
19. júní árið 1930 sonur hjónanna
Valdimars bónda að Espihóli í
Eyjafirði, síðar verkamanns á Ak-
ureyri og konu hans Áslaugar Jó-
hannsdóttur. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri árið 1950 og læknisprófi
frá Háskóla íslands árið 1961.
Hann starfaði við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri á árunum
1%1 og 1962, og við Slysavarðsstof-
una í Reykjavík og á Landspítalan-
um sem námskandidat á sömu ár-
um. Hann hóf störf við Kristnes-
hæli árið 1962, fyrst sem deildar-
læknir, en var yfirlæknir þar er
hann lézt.
Eftirlifandi eiginkona Brynjars
er Dagbjört Guðlaugsdóttir og
eignuðust þau tvö börn.
Brynjar Valdimarsson yfirlæknir.
Ljósm. GBerg.
Akureyri:
Harkalegur árekst-
ur í Aðalstræti
Akureyri, 29. maí.
MJÖG harkalegur árekstur
varð í Aðalstræti um kl. 9 í
gærkvöldi, þegar ungur piltur
á nýlegum bíl, sem hann hafði
nýlega keypt, missti stjórn á
bifreiðinni, er hann kom af
malarvegi inn á malbik, rétt
sunnan við Minjasafnið. Kast-
aðist bíllinn á þrjár kyrrstæð-
ar bifreiðir, sem voru á plan-
inu framan við safnið, stór-
skemmdi tvær þeirra, eina lít-
illega, auk þess sem brak kast-
aðist á enn eina bifreið. Að
auki var bíllinn sem árekstrin-
um olli, stórskemmdur. Með-
fylgjandi mynd var tekin rétt
eftir að áreksturinn átti sér
stað. G. Berg.
Sjö„smá"atriói
sem stundum gleymast
viðiÆf
á nýrri þvottavél
IÞvottavél sem á að nægja venju-
lcgu heimili, þarf að taka a.m.k.
5 kfló af þurrum þvotti. því það ér
ótrúlega Öjótt að koma f hvert kfló
af handklæðum, rúmfötum og bux-
um. Það er líka nauðsynlegt að hafa
sérstakt þvottakerfi fyrir lítið magn
af taui, s.s. þegar þarf að þvo við-
kvæman þvott.
2Það er ekki nóg að hægt sé að
troða 5 kílóum af þvotti inní
vélina. Þvottavélin þarf að hafa mjög
stóran bvottabelg og þvo í miklu
vatni, til þess að þvotturinn verði
skfnandi hreinn. Stærstu heimilis-
vélar hafa 45 lítra bvottahplo
3Vinduhraði er mjög mikilvægur.
Sumar vélar vinda aðeins með
400-500 snúninga hraða á mfnútu,
aðrar með allt að 800 snúninga
hraða. Góð þeytivinda þýðir ekki
aðeins að þvotturinn sé fljótur að
þorna á snúrunni (sum efni er reynd-
ar hægt að strauja beint úr vélinni),
heldur sparar hún mikla orku ef
notaður er þurrkari.
4Qrkuspamaður er mikilvægur.
Auk vemlegs sparnaðar af góðri
þeytivindu, minnkar raforkunotkun-
in við þvottinn um ca. 45% ef
þvottavélin tekur inn á sig bæði heitt
og kalt vatn.
5Verðið hefur sitt að segja. Það
má aldrei gleymast að það er
verðmætið sem skiptir öllu. Auð-
vitað er lítil þvottavél sem þvær
lítinn þvott í litlum þvottabelg, tekur
aðeins inn á sig kalt vatn og þeyti-
vindur illa, ódýrari en stór vél sem
er afkastamikil, þvær og vindur vel
og sparar orku. Á móti kemur að sú
litla er miklu dýrari og óhentugri f
rekstri og viðhaldsfrekari.
6Þjónustan er atriði sem enginn
má gleyma. Sennilega þurfa eng-
in heimilistæki að þola jafn mikið
álag og þvottavélar og auðvitað
bregðast þær helst þegar mest reynir
á þær. Þær bestu geta líka brugðist.
Þess vegna er traust og fljótvirk
viðhaldsþjónusta og vel birgur vara-
hlutalager algjör forsenda þegar ný
þvottavél er valin.
7Philco er samt aðalatriðið. Ef
þú sérð Philco merkið framan á
þvottavélinni geturðu hætt að hugsa
um hin „smáatriðin" sem reyndar
eru ekki svo lítil þegar allt kemur
til alls. Framleiðendur Philco og
þjónustudeild Heimilistækia hafa
séð fyrir þeim öllum:
5 kíló af þurrþvotti, 45 lítra belgur,
800 snúningar á mfnútu, heitt og kalt
vatn, sanngjarnt verð og örugg
þjónusta.
Við erum sveigianlegir
í samningum!
yertu
orussur
velduFnilco
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 - 15655