Morgunblaðið - 30.05.1984, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
Egg Egg Egg
Höfum ávallt nægar birgöir af eggjum til
sölu og dreifingar hvert á land sem er.
Nesbú hf.
Vatnsleysuströnd — Sími 92-6591.
KRISTJflfl
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVIK, SÍMI 25870
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐM. HALLDÓRSSON
Egypzkir kjósendur
fá aukið valfrelsi
FLOKKUR Hosni Mubarak forseta, Þjóðlegi lýðraeðisflokkurinn, hefur
unnið yfirburðasigur í þingkosningunum í Egyptaiandi eins og við var
búizt og Nýi Wafd-flokkurinn staðið sig bezt af fjórum stjórnarandstöðu-
flokkunum.
etta voru fyrstu þingkosn-
ingarnar í Egyptalandi síð-
an Mubarak kom til valda í
kjölfar morðsins á Anwar Sadat
forseta 1981 og hinar þriðju sið-
an Gamal Abdel Nasser steypti
Farúk konungi af stóli 1952.
Mubarak sagði kosningarnar
marka tímamót: kosið væri án
þess að kjósendur væru beittir
þrýstingi og allir þjóðfélagshóp-
ar fengju fulltrúa á þingi. Lýð-
ræði hefði aldrei staðið með eins
miklum blóma.
Með loforði um heiðarlegar
kosningar virtist Mubarak vilja
koma í veg fyrir kosningasvik,
sem Sadat var sakaður um, yfir-
gnæfandi áhrif eins stjórnmála-
flokks, sem Nasser var legið á
hálsi fyrir, og pólitísk hrossa-
kaup og spillingu, sem settu svip
á konungsstjórnina.
En stjórnarandstæðingar sök-
uðu stjórn Fuad Mohieddins for-
sætisráðherra, sem er ritari
stjórnarflokksins, um að beita
óheiðarlegum aðferðum til að
auka sigurlíkur Þjóðlega lýðræð-
isflokksins. Leiðtogi Nýja
Wafd-flokksins, Fuad Serag-
eddin fv. innanríkisráðherra,
sagði að öll loforð um heiðar-
leika hefðu verið svikin. En eg-
ypzkir kjósendur hafa ekki haft
eins mikið valfrelsi siðan 1952.
Þjóðlega lýðræðisflokknum
stafaði nú í fyrsta skipti hætta
frá Nýja Wafd-flokknum, sem þó
fær aðeins um 15% atkvæða. Nýi
Wafd-flokkurinn er mið-hægri
flokkur og arftaki gamla Wafd-
flokksins, sem Saad Zaghoul
stofnaði 1919 til að knýja Breta
til' viðræðna um brottflutning.
Hann var stærsti flokkurinn til
1952.
Flokkurinn var endurvakinn
1978. Sadat svipti Serageddin
stjórnmálaréttindum og starf-
semi flokksins var hætt fjórum
mánuðum siðar. í ágúst 1983 var
flokkurinn enn endurvakinn og
hann fór í mál þegar stjórnin
sagði að hann yrði að sækja um
leyfi til að starfa. Flokkurinn
hlaut lagalega viðurkenningu án
þess að þurfa að sækja um slíkt
leyfi og Serageddin endurheimti
pólitísk réttindi.
Wafd-istar berjast fyrir
frjálsu framtaki, en eru ekki
andvígir rikisframkvæmdum.
Hann styður friðarsamninginn
við ísrael frá 1979, en vill fá af-
létt hömlum á dvöl egypzks herl-
iös á Sinai.
Það háir Wafd-flokknum að
hann hefur staðið utan við
stjórnmálabaráttuna i rúman
aldarfjórðung og að leiðtogar
hans eru komnir yfir sjötugt.
Flokkurinn nýtur stuðnings
landeigenda, smábænda, mennt-
aðs fólks, kristinna Egypta
(Kopta) og Bræðralags Múham-
eðstrúarmanna, samtaka
strangtrúarmanna. Trúarof-
stækismenn hafa fengið byr í
seglin síðan Sadat lézt.
Wafd-istar sættu hörðum
árásum í kosningabaráttunni.
Blaðið „A1 Gomhouria" birti
heilsíðugrein, þar sem Serag-
eddin og ættmennum hans var
lýst sem lénsherrum. „A1
Ahram" birti greinargerð úr
bandaríska sendiráðinu frá ár-
unum 1946—52, þar sem sagt var
að Serageddin hefði boðið leyni-
samning um þátttöku Egypta í
leynibandalagi Arabaríkja undir
forystu Bandaríkjamanna, ef
þeir hjálpuðu honum að ná völd-
um.
Gagnrýnt var í Nýja Wafd-
Forsetinn kýs.
flokknum að 16 menn úr
Bræðralagi Múhameðstrúar-
manna voru valdir í framboð.
Ýmsir töldu rangt að ganga til
samstarfs við samtök, sem berj-
ast fyrir myndun islamskrar
stjórnar, þótt það yki fylgi
flokksins. Raunar getur slíkt
samstarf leitt til þess að flokk-
urinn missi fylgi margra Kopta.
Frambjóðendur úr bræðralag-
inu hvöttu til að múhameðskum
lögum yrði framfylgt, þótt það
sé ekki stefna flokksins. Borðar
með vígorðum um þetta voru
hengdir upp í Alexandríu og ekki
fjarlægðir, þótt flokkurinn bæði
um það. Um 15 Wafd-istar voru
handteknir fyrir að dreifa trú-
arbæklingum með gagnrýni á
ríkisstjórnina.
Bróðir forsetans, Sami Mubar-
ak, kom til liðs við Wafd-ista og
talaði fyrir þá á framboðsfund-
um. Hann kvað Wafd-flokkinn
eina stjórnmálaflokkinn, sem
hefði aldrei fangelsað eða pynt-
að fólk. Hann er grunaður um
stuðning við Bræðralagið og
málið hefur komið forsetanum í
bobba.
Aðrir andstöðuflokkarnir eru
Verkamannaflokkur sósíalista,
sem er mið-vinstri flokkur og
fær um 5% atkvæða, Þjóðlegi
einingar- og framfaraflokkur-
inn, sem er hlynntur Rússum, og
Frjálslyndi flokkurinn, sem er
hægrisinnaður.
Verkamannaflokkur sósialista
er undir forystu Ibrahim Shukry
fv. landbúnaðarráðherra, sem
var harður þjóðernissinni fyrir
1952. Hann stofnaði flokkinn
1978, en tókst ekki að fá 20 þing-
menn til að skrifa undir beiðni
um stofnun hans. Sadat skipaði
þá nokkrum þingmönnum sínum
að skrifa undir og hélt að auð-
velt yrði að hafa taumhald á
flokknum, en hann hefur verið
harður í stjórnarandstöðu.
Flokkurinn styður friðarsamn-
ingana, en vill að hætt verði
viðskiptum og menningarsam-
skiptum við ísrael þar til heild-
arlausn finnst.
Þjóðlegi einingar- og fram-
faraflokkur vinstrimanna er
undir forystu Khaled Mohieddin,
samstarfsmanns Nassers og Sa-
dats eftir byltinguna. Mohieddin
var eitt sinn kallaður „rauði
majórinn" vegna stuðnings við
Rússa. sem flokkurinn stvður.
Hann var stofnaður 1976 og nýt-
ur stuðnings Marxista eða
Nasser-sinna. Sadat lét oft til
skarar skríða gegn flokknum,
sem varð að hætta starfsemi að
mestu þar til Sadat lézt. Hann er
oft sakaður um kommúnisma af
andstæðingum.
Þrátt fyrir umrótið í Miðaust-
urlöndum var aðallega deilt um
innanlandsmál í kosningabar-
áttunni. Þrátt fyrir ólíka hug-
myndafræði voru flokkarnir
sammála i veigamiklum atrið-
um, þótt áherzlumunur væri
nokkur. Enginn vildi segja upp
friðarsamningnum við ísrael,
þrátt fyrir kröfu Nýja Wafd-
flokksins um að hömlum á
Sinai-skaga verði aflétt.
Allir andstöðuflokkarnir
kröfðust aukins lýðræðis og
kosningareglurnar voru eitt
helzta ádeiluefnið. Ráðizt var á
núverandi kosningalög, sem
kveða í fyrsta skipti á um hlut-
fallskosningu og framboð flokka,
en ekki einstaklinga. Barizt var
gegn ákvæðum, sem banna óháð
framboð og segja að flokkar
verði að fá 8% atkvæða til að
koma manni að.
Stjórnarandstæðingar kröfð-
ust þess einnig að aflétt yrði
neyðarástandslögum, sem hafa
verið í gildi síðan Sadat var ráð-
inn af dögum, verkfallsréttur
yrði viðurkenndur og verkamenn
fengju að efna til mótmælaað-
gerða.
Stjórnin hefur vonað að kosn-
ingarnar og nýkjörið þing geti
orðið eins konar öryggisventill
og komið í veg fyrir að óánægja
á ýmsum sviðum brjótist fram i
einhverri annarri mynd. En bú-
izt er við að nýkjörnir þingmenn
muni hamra á mörgu, sem
óánægju veldur, þegar þing kem-
ur saman i haust, og sú hætta er
talin fyrir hendi að stjórnar-
flokkurinn klofni, þótt þing-
meirihluti hans komist varla i
hættu.