Morgunblaðið - 30.05.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
27
Lögreglumenn ffkniefnadeildar lögreglunnar leita að fíkniefnum í bifreiðinni, sem stöðvuð var í Álfabakka.
Morgunblaðiö/Júlíus.
Fíkniefnin láta ekki mikið yfir sér, en áætla má að verðmæti þeirra á markaði
hér á landi sé hátt í 10 milljónir króna.
\ skipverjar á
íðnir smyglið
unum var komið fyrir um borð
í Eyrarfossi.
Fíkniefnadeildin hefur fylgst
með ferðum mannanna um nokk-
urra mánaða skeið. Fjórir þeirra
hafa dvalið í Evrópu og lék grunur
á að þeir væru að kaupa fíkniefni
til sölu hérlendis. Fyrir skömmu
komu tveir þeirra hingað til lands
og hafa þeir verið „skyggðir" =
lögreglan hefur fylgst með ferðum
þeirra úr fjarlægð.
Eyrarfoss kom hingað til lands
klukkan 23 á mánudagskvöldið.
Grunur hefur leikið á, að fíkni-
efnasmyglarar hafi komið fíkni-
efnum fyrir um borð í skipum í
erlendum höfnum án vitundar
skipverja. Þó eru einnig dæmi
þess, að skipverjar hafi verið í vit-
orði og verið fengnir til þess að
smygla fíkniefnum til landsins,
samanber smyglmálin sem komu
upp í Karlsefni og Lagarfossi síð-
astliðinn vetur, þegar skipverji á
Karlsefni var tekinn með 11,3 kíló
af hassi á hafnarbakka í Reykjavík
og skipverji á Lagarfossi tók að sér
að flytja 5 kíló af hassi og 240
grömm af amfetamíni til landsins.
Skipverjinn á Lagarfossi mun hafa
borið við yfirheyrslur, að hann
hafi átt að fá 150 þúsund krónur
fyrir að koma „pakkanum" í land.
Lögreglumenn fylgdust með
ferðum mannanna við Eyrarfoss á
mánudagskvöldið. Laust upp úr
miðnætti óku tveir menn frá
Eyrarfossi á lítilli fólksbifreið og
lék grunur á að þeir hefðu sótt
fíkniefnin um borð. Lögreglan
veitti þeim eftirför inn Kleppsveg,
suður Elliðavog og áfram upp
Reykjanesbraut. Við bensínstöð
Olís við Álfabakka stöðvaði lög-
reglan bifreiðina. Mennirnir
reyndu að komast undan, en þá var
annarri bifreið ekið aftan að þeim,
þannig að þeir komust hvorki
afturábak né áfram. Þeir brugðu
þá á það ráð að keyra útaf en festu
bifreiðina. Við leit í bifreiðinni
fundust fíkniefnin; um 700 grömm
af amfetamíni og um 400 grömm
af hassolíu. Erfitt er að segja til
um verðmæti þessara fíkniefna á
markaði hér fyrr en styrkleikapróf
liggur fyrir. Þó er talið að amfeta-
mínið sé tiltölulega hreint og megi
drýgja það allt að fimm sinnum.
Grammið af amfetamíni er selt á
um 2.500 til 3.000 krónur á mark-
aði hér og grammið af hassolíu á
um 1.500 krónur. Því má gera ráð
fyrir að markaðsverð amfeta-
mínsins sé um 9 milljónir króna og
hassolíunnar um 600 þúsund krón-
ur — að markaðsverð fíkniefn-
anna, sem tekin voru í fyrrinótt, sé
hátt í 10 milljónir króna. Ekki er
enn vitað hve mikið mennirnir
gáfu fyrir fíkniefnin í Evrópu.
Nýja póstmiðstöðin á Suðurlandsbraut 28.
Ljósm. Mbl. RAX.
Ný póstmiðstöð við
Suðurlandsbraut
NÝ póstmiðstöð Pósts- og
símamálastofnunar var
opnuð af samgönguráð-
herra, Matthíasi Bjarna-
syni, á Suðurlandsbraut 28
í gær. Með tilkomu hinnar
nýju póstmiðstöðvar flyst
starfsemi bréfapóststofu,
bögglapóststofu, tollpóst-
stofu og blaðadeildar til
póstmiðstöðvarinnar, og er
það í fyrsta skipti sem aðal-
deildir Pósts- og síma-
málstofnunar starfa undir
sama þaki. Nýtt póstútibú
er staösett á annarri hæð í
hinni nýju byggingu, en það
er götuhæð við Armúla.
Póstútibúið ber heitið R-8
og er inngangur þess frá
Ármúla.
Við opnun póstmiðstöðvarinn-
ar skýrði Jón Skúlason, póst- og
símamálstjóri, í stuttu máli frá
framkvæmdum nýju byggingar-
innar. Kom þar meðal annars
fram að stærð hússins er 19 þús-
und rúmmetrar og gólffletir alls
4.500 fermetrar. Bygging póst-
miðstöðvarinnar hófst í október
1979 og lauk nú í maí.
Að því loknu flutti samgöngu-
ráðherra, Matthías Bjarnason,
ávarp og afhenti því næst Birni
Björnssyni, póstmeistara í
Reykjavík, lykilinn að hinni nýju
póstmiðstöð. í ávarpi samgöngu-
ráðherra kom meðal annars
fram að verkefni póstþjónust-
Matthías Bjarnason, samgöngumilaráðherra.
Frá opnun póstmiðstöóvarinnar.
unnar hafi þróast og vaxið á
undanförnum árum og í kjölfar
bættra póstsamgangna, aukins
frelsis í viðskiptum og íbúafjölg-
unar hafi orðið mikil aukning á
póstmagni. Hin nýja póstmið-
stöð væri því vel tímabær og öll
vinnuaðstaða þar væri í sam-
ræmi við nútímakröfur varðandi
hollustuhætti starfsfólks.
Ennfremur tóku til máls
Björn Björnsson, póstmeistari í
Reykjavík, Þorgeir Ingvason,
formaður Póstmannafélags Is-
lands, og Kristinn Ólafsson,
tollgæslustjóri.