Morgunblaðið - 30.05.1984, Page 48
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45-23.30
AUSTURSTRÆTI22
• INNSTRÆTI, SÍMI 11630
OPIÐ ÖLL FIMMTUDAGS-, FÖSTUDAGS-, LAUGARDAGS-, OG SUNNUDAGSKVÖLD.
jóinm
'rtewetíj
AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI, SÍMI 11340
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Frjáls innflutningur garðávaxta:
V iðskip taráðher ra
leggur fram til-
lögu í ríkisstjórn
Á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun
lagði viðskiptaráðherra, Matthías Á
Mathiesen, fram fyrir hönd ráðherra
Sjálfstæðisflokksins, tillögu um að
leyfður verði frjáls innflutningur á
garðávöxtunum þegar innanlands-
framleiðsla annar ekki eftirspurn.
Þetta kom fram í máli Friðriks
Sophussonar á fundi sem lands-
málafélagið Vörður hélt í gær-
kvöldi um innflutning á kartöfl-
um. Tillagan var ekki afgreidd en
viðskiptaráðherra og landbúnað-
arráðherra munu hittast á morg-
un og er vonast til að hægt verði
að afgreiða hana á ríkisstjórnar-
fundi á fimmtudag. Þingflokkur
Sjálfstæðismanna hefur ekki enn
fjallað um tillögu viðskiptaráð-
herra, en aðspurður sagði Friðrik
Ijóst að þingmenn flokksins væru
henni sammála, sem og endur-
skoðun á verðmyndunarkerfi
landbúnaðarvara, fréttir um ann-
að væru ósannar.
Aðrir frummælendur á fundin-
um voru Gísli Blöndal fram-
kvæmdastjóri og Jón Magnússon
formaður Neytendasamtakanna.
Fundarstjóri var Dr. Jónas
Bjarnason. Gísli Blöndal gagn-
rýndi linkind þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins gagnvart land-
búnaðarráðherra og Grænmetis-
versluninni, og benti á hve mjög
núverandi fyrirkomulag á inn-
flutningi skaðar neytendur, bæði i
formi lélegrar vöru og hás verðs.
Aðspurður útilokaði Jón Magn-
ússon ekki þann möguleika að
Neytendasamtökin stefni Græn-
metisversluninni fyrir sölu á
skemmdri vöru.
Morgunblaðid/Júlfus.
Lögreglumenn með annan mannanna, sem handteknir voru síðastliðna nótt við Álfabakka. Tveir lögreglumenn eru
að befja leit í bflnum og fundust 700 grömm af amfetamíni og 400 grömm af hassolíu.
Lögreglan tók 700 grömm af amfetamíni og 400 af hassolíu:
Söluverð fíkni-
efnanna 10 millj.
Fá skoðunarmiða senda í pósti
Eins og komið hefur fram í fréttum
befur reglum um skoðun nýrra öku-
tækja verið breytt og þurfa eigendur
þeirra ekki að færa þá til skoðunar fyrr
en á þriðja ári. Að sögn Kagnars Jóns-
sonar, hjá Bifreiðaeftirlitinu, verða
límdir sérstakir miðar á nýja bfla, t.d.
fá þeir sem skráðir voru ’82, miðs
merktan ’84.
Eigendur þeirra þurfa því ekki að
koma til skoðunar fyrr en 1985. Mið-
arnir verða sendir í pósti. En í fram-
tíðinni verður reglan sú að við inn-
flutning fá bifreiðar þennan sér-
staka miða.
Aðspurður sagði Ragnar að skoð-
un gengi yfirleitt vel, en búast mætti
við aðgerðum gagnvart eigendum
óskoðaðra bifreiða mánuði eftir að
viðkomandi átti að mæta til skoðun-
FJÓRIR menn voru úrskurðaðir í
gæzluvarðhald í Sakadómi í
ávana- og fíkniefnamálum í
gærkvöldi vegna stórfellds fíkni-
efnasmygls með Eyrarfossi. Dóm-
ari tók sér frest til dagsins í dag
til þess að úrskurða yfir fimmta
manninum. Tveir mannanna hafa
játað að hafa keypt fíkniefnin er-
lendis en tveir hafa ekki tjáð sig
um aðild. Fimmti maðurinn, 25
ára gamall, neitar að hafa staðið í
smyglinu, en segist hafa aðstoðað
mennina við að flytja fíkninefnin
frá skipi. Hinir mennirnir fjórir
eru um og yflr þrítugt. Þeir hafa
aldrei áður verið staðnir að stór-
felldu flkniefnasmygli. Ekkert
hefur komið fram í málinu, sem
bendir til þess að skipverjar á
Eyrarfossi séu viðriðnir málið.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík hefur um margra
mánaða skeið unnið að því að
upplýsa mál þetta og má fullyrða
að aldrei í sögu deildarinnar hafi
jafnmikil vinna verið lögð í nokk-
urt mál svipaðs eðlis. Fíkniefna-
deild lögreglunnar hefur fylgt
þeim sem skugginn um nokkurt
skeið og leiddi það að lokum til
þess að málið upplýstist.
Tveir mannanna fóru um borð
í Eyrarfoss upp úr miðnætti að-
faranótt þriðjudagsins. Lög-
reglu- og tollgæzlumenn fylgdust
með ferðum þeirra og handtóku
við Álfabakka. í bifreið þeirra
fundust 700 grömm af amfetam-
íni og um 400 grömm af hassolíu.
Undir morgun voru hinir þrír
handteknir á tveimur stöðum í
Reykjavík. Reikna má með að
andvirði fíkniefnanna sé allt að
10 milljónir króna á markaði hér
ef efnagreining leiðir í ljós svip-
aðan styrk og áður hefur þekkst
varðandi efni keypt í Hollandi.
Svo sem fyrr ságði hafa menn-
irnir verið mikið erlendis og voru
fíkniefnin keypt í tveimur ferð-
um. í fyrri ferðinni voru keypt
100 grömm af amfetamíni í
Rotterdam í Hollandi. Amfeta-
mínið var flutt til Spánar og
skipt á því og 500 grömmum af
hassolíu. Að því loknu var aftur
haldið til Rotterdam og um 700
grömm af amfetamíni keypt.
Fíkniefnunum var síðan komið
fyrir á þilfari Eyrarfoss án vit-
undar skipverja, þegar skipið
lestaði í Rotterdam. Einn mann-
anna var fyrir nokkru skipverji á
Eyrarfossi og þekkti vel til að-
stæðna um borð.
Tveir mannanna hafa viður-
kennt að hafa í janúar síðastliðn-
um smyglað fíkniefnum til
landsins með svipuðum hætti. Þá
tókst þeim ætlunarverk sitt og
komu 300 grömmum af amfeta-
míni og hálfu kílói af hassi inn í
landið. Samkvæmt heimildum
Mbl., kostuðu fíkniefnin, sem
tekin voru í fyrrinótt, aðeins um
100 þúsund krónur, þannig að
verðið hingað komið er um 100
falt hærra. Fíkniefni hafa lækk-
að mjög í verði í Evrópu á undan-
förnum misserum vegna mikils
framboðs. Af þessum mikla verð-
mun má ráða að magn fíkniefna
hér á landi hefur ekki aukíst í
nokkru samræmi við markaði á
Evrópu. Þá má þess geta, að sam-
kvæmt heimildum Mbl. liggur
enn ekkert nákvæmt fyrir hvað
varðar fjármögnunarleið en hin-
ir grunuðu hafa þó þegar orðað í
því sambandi kreditkort og
lífeyrissjóðslán.
Sjá: „Ekkert bendir til að skip-
verjar á Eyrarfossi séu viðriðnir
smyglið,” í miðopnu.
Frá og með 1. júní nk. kostar
mánaðaráskrift Morgunblaðsins
kr. 275,- og í lausasölu kr. 25,-
eintakið. Grunnverð auglýsinga
verður frá og með sama tíma kr.
165,- pr. dálksentimetra.
Afiakóngurinn Siguröur á Suðurey VE
kominn með 1.550 tonn:
Mannskapurinn,
útgerðin og heppni
— hafa lagt grunninn að velgengninni
„ÞAÐ ER ekki nein bein upp-
skrift að þessari velgengni
okkar í ár. Það er fyrst og
fremst góður mannskapur, virk
útgerð og heppni, sem hafa
valdið því, að við urðum afla-
kóngar að þessu sinni.
Ég neita því að sjálfsögðu
ekki, að þetta hefur verið
ánægjulegt, sérstaklega með til-
liti til þess, að þetta er fyrsti
titillinn, en tvisvar hef ég orðið í
öðru sæti,“ sagði Sigurður
Georgsson, skipstjóri á Suðurey
VE 500, en hann hefur aflað um
1.550 lesta það sem af er árinu.
Sigurður sagði ennfremur, að
sér teldist til að um 1.200 lestir
aflans væru þorskur, hitt væri
blandað, en mest ufsi. Hann
væri fyrir nokkru búinn með eig-
in kvóta, en hann hefði samtals
numið um 1.200 lestum og nú
væri hann að fiska upp í kvóta
annars báts útgerðarinnar, sem
væri Hraðfrystistöðin í Eyjum.
Hann hefði náð um 1.000 lestum
á síðasta ári, en um 1.100 1982,
en nú hefði hann verið miklu
lengur að, svo þetta væri í raun
svipaður afli miðað við úthald.
Nú væri að draga úr veiðinni,
aflinn á þriðjudag hefði verið
N ..
Sigurður Georgsson.
um 6 til 8 lestir svo þetta virtist
vera að dragast upp. Ef svona
héldi áfram tæki hann líklega
upp um helgina og færi á fiski-
stroll í sumar.
Þá sagði hann, að það væri
orðið ótrúlega lítið, sem sjómenn
bæru úr býtum. Það væri tekið
allt of mikið framhjá skiptum og
það næmi líklega orðið einum
þriðja á síðastliðinn fimm árum
sem sjómenn bæru minna úr
býtum.