Morgunblaðið - 28.06.1984, Page 2
2
í>
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTÚDAGUR 28. JÚNÍ1984
Ránið við Laugaveg 77 í vetur:
William Scobie
fékk fímm ára
fangelsisdóm
Vitorösmaöur hans, Ingvar Þórðarson, fékk 18 mán-
aða dóm og faðir Scobie 6 mánuði skilorðsbundið
Mikil laxagengd í
ha f beitarstöð var
340 laxar komnir í Kollaf jarðarstöð-
ina, en enginn á sama tíma í fyrra
MJÖG VEL lítur út með heimtur á laxi í hafbeitarstöðvarnar.
Laxinn byrjaði mun fyrr að skila sér í sumar en áður og er
auk þess almennt mjög vænn.
WILLIAM James Scobie var í gær
dæmdur í 5 ára fangelsi í Sakadómi
Reykjavíkur fyrir aðild sína að rán-
inu við Laugaveg 77 í vetur er hann
beitti haglabyssu til þess að komast
yfir fjármuni, sem starfsmenn ATVR
voru um það bil að leggja í banka-
hólf. Vitorðsmaður hans í ráninu,
Ingvar Heiðar Þórðarson, var
dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Faðir
Williams, Griffith David Scobie, var
dæmdur í 6 mánaða fangelsi skil-
orðsbundið fyrir að hylma yfir með
þeim. Engin ákvörðun hefur enn
verið tekin um áfrýjun.
Um refsingu þess síðasttalda
sagði í dómnum: „Fullnustu refs-
ingar skal fresta og hún niður
Ljósm. Mbl. Júlíus.
Lögreglumenn og starfsmenn ÁTVR
á vettvangi við Landsbankann,
Laugavegi 77, eftir að ránið hafði
verið framið 17. febrúar sl.
JÓHANN Hjartarson, skákmaður,
tekur nú þátt í alþjóðlegu skák-
móti í Leningrad sem hófst í fyrra-
dag. Átti Jóhann að tefla við
stórmeistarann Taimanov í fyrstu
umferð, en skák þeirra var frest-
að.
í annarri umferð mótsins,
sem er í 9 styrkleikaflokki,
falla að liðnum tveimur árum frá
uppkvaðningu dómsins að telja
haldi hann almennt skilorð 57.
greinar almennra hegningarlaga
nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr.
22/1955.“ Frá refsingu Williams
dregst gæsluvarðhald hans frá 25.
febrúar, rúmir 3 mánuðir. Frá
refsingu Ingvars dregst gæslu-
varðhald hans frá 27. febrúar til
28. mars. Komi til refsingar föður-
ins skal gæsluvarðhald hans drag-
ast frá refsitímanum. Griffith var
viku í gæsluvarðhaldi.
Auk dómsins var William
dæmdur til þess að greiða verslun-
inni Vesturröst skaðabætur að
upphæð rúmlega 26.400 krónur.
Ennfremur var honum gert að
greiða leigubílstjóranum, sem
hann ógnaði með byssu sinni og
stal síðan bílnum af, tæplega 7.000
krónur í bætur. Þá var þremenn-
ingunum gert að greiða ÁTVR þá
upphæð, sem á vantaði er ráns-
fengurinn fannst, kr. 185.647,50
auk dómvaxta. Þá voru þeir Willi-
am og Ingvar dæmdir til að greiða
ÁTVR kr. 7.133 í bætur.
Þremenningunum var gert að
greiða réttargæslu- og málsvarn-
arlaun, William kr. 60.000, Ingvari
kr. 40.000 og Griffith kr. 18.000.
Verjandi Williams var Sigrún
Edda Ólafsdóttir hdl. Verjendur
hinna tveggja voru þir Örn Clau-
sen hrl og Kristján Stefánsson. Þá
greiða þremenningarnir allan
annan sakarkostnað, þ.m.t. sak-
sóknarlaun til ríkissjóðs kr.
40.000. Dóminn kváðu upp saka-
dómararnir Ármann Kristinsson,
Jón Abraham Ólafsson og Jón Er-
lendsson.
tefldi Jóhann við Judasin og fór
skák þeirra í bið í gær. Að sögn
Jóhanns léku þeir báðir illa af
sér í 40. leik; fyrst Judasin, og
leit út fyrir að Jóhann væri með
unnið tafl, en síðan varð Jóhann
á slæm mistök í biðleiknum með
þeim afleiðingum að hann
stendur nú höllum fæti í skák-
inni.
340 laxar hafa komið í Lax-
eldisstöð ríkisins í Kollafirði,
eingöngu stórlax sem verið hef-
ur tvö ár í sjó, að sögn Sigurðar
Þórðarsonar stöðvarstjóra. Á
síðasta sumri var enginn lax
kominn í stöðina á þessum tíma
og venjulega hefur hann rétt
verið farinn að sjást um þetta
leyti. Að sögn Sigurðar hefur
laxinn aldrei byrjað jafn
snemma að skila sér. Fyrsti lax-
inn kom 6. eða 7. júní en það er
að sögn Sigurðar þremur vikum
fyrr en venjulega. 1 fyrra var 69
þúsund sjógönguseiðum sleppt
úr Kollafjarðarstöðinni.
Fyrsti laxinn gekk í hafbeit-
arstöð Pólarlax í Straumsvík
þann 21. júní, að sögn Jóhanns
Geirssonar stöðvarstjóra og
hafa nú 140—150 laxar skilað
sér. Á sama tíma í fyrra höfðu
fimm laxar gengið í stöðina. Jó-
hann sagði að allt væri þetta
stór fiskur, allt upp í 20 pund.
Frá Pólarlaxstöðinni var sleppt
um 200 þúsund seiðum, en þar
af var um helmingur sumaralin
seiði sem sleppt var í tilrauna-
skyni án þess að vitað sé hvort
þau skili sér aftur.
Um 30 laxar eru komnir í lax-
eldisstöð ísno í Lóni í Keldu-
hverfi og var Guðmundur Héð-
insson stöðvarstjóri bjartsýnn á
heimturnar í sumar. Allt væri
þetta lax sem verið hefði tvö ár
í sjó, 12 til 19 punda. Á sama
tíma í fyrra hafði enginn lax
skilað sér hjá ísno. Fyrsti lax-
inn í ár kom 9. júní. 20 þúsund
sjógönguseiðum var sleppt frá
ísno í fyrra. Morgunblaðið hef-
ur ekki upplýsingar um heimtur
hjá öðrum stöðvun nema Dala-
laxi í Saurbæ. Þar hafði enginn
lax náðst í gildrurnar þegar
haft var samband við Hörð
Guðmundsson á Kverngrjóti í
gærkveldi en orðið hafði vart
við lax við stöðina. Hörður
sagðist vera að vona að fiskur-
inn færi að skila sér. Mikið af
stórri og fallegri bleikju væri
nú að ganga upp í vatnið og
kæmi oft laxaganga í kjölfarið.
Fyrsti laxinn kom þann 1. júlí í
Dalalaxstöðina í fyrra. Þaðan
var í fyrra sleppt 40 þúsund sjó-
gönguseiðum og 7 þúsund
sumaröldum seiðum.
Störf Hagstofu-
og ráduneytis-
stjóra auglýst
EMBÆTTI ráðuneytisstjóra í
samgönguráðuneytinu er nú
laust til umsóknar, og sam-
kvæmt Lögbirtingablaðinu eiga
umsóknir að hafa borist fyrir 6.
júlí nk.
Einnig er embætti Hagstofu-
stjóra laust og ber umsækjend-
um að senda inn umsókn sína til
Hagstofu fyrir 20. júlí nk.
Kaupþing:
Býður íbúðir með 50 % útborgun
KAUPÞING hefur nú tekið upp þá nýbreytni að bjóða
íbúöir til sölu með 50%útborgun í stað 75%eins og venjan
er á fasteignamarkaðnum. Vegna þessa ræddi Morgun-
blaðið við dr. Pétur Blöndal, framkvæmdastjóra Kaup-
þings, og innti hann eftir því hvernig unnt væri að lækka
útborgun með þessum hætti.
Pétur sagði, að það væri rætt
manna á milli að útborgun í íbúð-
um væri allt of há eða 75% af
heildarverði og hefði það meðal
annars komið fram hjá starfs-
manni Fasteignamats ríkisins,
Stefáni Ingólfssyni, að nauðsyn-
legt væri að lækka þetta hlutfall.
Það hefði hins vegar strandað á
því, að fasteignaviðskipti fælust
að miklu leyti í íbúðaskiptum og
ekki væri hægt að selja íbúð með
50% útborgun en kaupa aðra með
75% útborgun. Þama hefði hníf-
urinn staðið í kúnni og engin
lausn fundist, því seljendur teldu
sig þurfa 75% útborgun. Nú hefði
Kaupþing fundið upp greiðslu-
kjör, sem hyggju á þennan „Gord-
íons-hnút“ með því að einn þriðji
hluti hinnar venjulega útborgun-
ar væri greiddur með verðtryggðu
skuldabréfi til 6 ára, sem seljandi
síðan seldi. Þannig fengi seljandi
sín 75% í útborgun eins og hingað
til, en kaupandinn greiddi aðeins
50% kaupverðsins út. Þessi bréf,
V* af kaupverðinu, væru með af-
föllum sem yllu allt að 5% hækk-
un söluverðs. 5% af söluverði væri
hins vegar ekki stór upphæð, þeg-
ar tekið væri tillit til þess hvernig
verð á íbúðum væri fundið út með
tilboðum og gagntilboðum. Þá
kæmi vel til greina að kaupandi
og seljandi skiptu með sér þessum
kostnaði. Seljandi, þar sem þetta
fyrirkomulag gerði íbúðina miklu
auðseljanlegri og kaupandi, þar
sem hann réði við útborgun í
stærri eign en ella.
Þessi greiðslukjör gerðu það
ennfremur að verkum, að menn
gætu fremur skipt yfir í stærri
eignir og þyrftu því jafnframt
ekki að skipta jafn oft og gerði
ennfremur fólki kleift að kaupa,
sem annars gæti það ekki. Hins
vegar væri það rétt að taka fram,
að fyrirvari væri gerður á sölu
verðbréfanna eftir því, hvað
markaðurinn segði til um hverju
sinni.
— Hvernig er með veðsetningu
á eign, sem seld er á þessum kjör-
um?
„Það er ljóst, að veðsetning lít-
illa eigna þeirra, sem eru að
kaupa án þess að hafa átt eign
áður, getur verið erfiðleikum
bundin, sérstaklega ef þær eru
veðsettar fyrir. Því getur verið
nauðsynlegt að þeir, sem þannig
er ástatt fyrir, þurfi að fá lánað
veð hjá foreldrum eða öðrum ætt-
ingjum."
Hvaða vexti greiðir fólk af þess-
um skuldabréfum?
„Þessi bréf eru seld með afföll-
um, þannig að þau gefa af sér um
12% vexti umfram verðtryggingu,
sem eru afar háir vextir, sérstak-
lega þegar tekið er tillit til þess,
að vextir af verðtryggðum reikn-
ingum í bönkum eru 3% í dag. En
á hinn bóginn ættu þessir háu
vextir að freista þeirra, sem eru
að spara sér fyrir íbúð eða ann-
arra, sem eiga sparifé, að kaupa
þessi bréf. Það skal tekið fram að
Kaupþing býður viðskiptavinum
sínum bæði hefðbundin óverð-
tryggð kjör, verðtryggingu sem og
þessi fyrrnefndu kjör," sagði dr.
Pétur Blöndal.
Jóhann Hjartarson á
skákmóti í Leningrad