Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÍMMTUDAGUR 28. JÚNl 1984
5
Þorsteinn Hauksson við hljódmyndunartæki sín.
Ljósm. Friöþjófur.
Hljóð-listahátíd
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Að Kjarvalsstöðum er þessa
dagana haldin hljóðlistahátíð og
gefur þar að heyra fjórtán verk
eftir átta höfunda, er flutt verða
á fernum tónleikum, sem verða
tvíteknir sama daginn. í efn-
isskrá ræðir Þorsteinn Hauks-
son um raftónlist og segir þar
m.a.: „Færa má rök að því að
mest öll tónlist sé ávallt byggð á
einhvers konar hljóðfærum, mis-
flóknum auðvitað, en engu að
síður tækjum til framleiðslu
hljóða." Með tilkomu raftónlist-
ar má segja að sagan frá 1600 sé
að endurtaka sig, er menn tóku
að snúast frá söngtónlist til
hljóðfæratónlistar, er var merki-
ngarlaus miðað við það að söng-
tónlist var túlkun á texta. Merk-
ingarleysi hljóðfæratónlistar
var síðan reynd að yfirvinna í
rómantíkinni og síðar í hermi-
tónlist og „impressjónisma".
Með rafmagnstónlist var fundin
ný og merkingarlaus tónlausn,
þó strax séu menn farnir að leita
leið til að skilgreina og túlka
þessa nýsköpun. í fyrsta
verkinu, sem höfundur kallar
„... og þá riðu hetjur um héruð“
reynir Lárus H. Grímsson að ná
fram hreyfingu og myndformun
er minna á landslag eða ferli í
gegnum einhvers konar rými,
sem myndbreytast með skýrt af-
mörkuðum kaflaskiptum. Fal-
legt og vel unnið verk.
í verki Kjartans Ólafssoner er
lesinn texti úr píslarsögu Jóns
Magnússonar og reynt að hljóð-
líkja frásögn hans. Hljóðlíking,
sem kemur á eftir texta er eins
og endurtekning og er áorkanin
oftar fremur „kómísk", en að
hljóðin magni upp áhrifamikinn
textann.
Tvær etýður, eftir Þorstein
Hauksson voru næst á dagskrá
og var fyrri etýðan sérkennilega
hljóðlát og stundum svo, að erf-
itt var að greina tónverkið frá
umhverfishljóðum er bárust inn-
an úr húsinu og utan. Sú seinni
var öllu átaksmeiri og hófst á
„sjokkeffekt". Báðar etýðurnar
eru hægferðug verk og sú fyrri
blátt áfram falleg. Síðasta raf-
verkið á þessum tónleikum er
eftir Gunnar Reyni Sveinsson,
og nefnir hann það Dropar á
kirkjugarðsballi. Verkið er sam-
bland af alls konar hljóðupptök-
um á dropahljóðum og trommu-
leik, symbalaslætti, víbrafónleik,
talhljóðum og kórsöng. Allt
þetta þekkist og greinist vel í
sundur og með notkun þjóðlags-
ins, Móðir mín í kví, kví, er ljóst
við hvers konar kirkjugarðsball
er átt. Samsetning hljóðanna er
á margan hátt lipurlega unnin
en fyrir undirritaðan truflar það
að þekkja hljóðin og færir verkið
nær því að vera aðeins bein upp-
taka, en samið og hljóðunnið
verk.
„Spegilsmálið“ í Hæstarétti:
Staðfesti niður-
stöðu héraðsdóms
HÆSmRÉriTUR staðfesti í gær
dóm Héraðsdóms i svonefndu Speg-
ilsmáli. Úlfar Þórmóðsson, útgef-
andi blaðsins, var í héraðsdómi
dæmdur í 16.000 króna sekt en 20
daga varðhald til vara. Við þessa
sekt hans bætist nú áfrýjunarkostn-
aður, þ.m.L saksóknarlaun að upp-
hæð kr. 20.000. Þá greiðir hann laun
verjanda síns, Sigurmars K. Alberts-
sonar, hdl., að upphæð kr. 20.000.
í niðurlagi dóms Hæstaréttar
segir: „Ákveða ber ákærða refs-
ingu samkvæmt framansögðu með
vísan til 77. greinar almennra
hegningarlaga. Telja verður, að
ákærði hafi gefið út blöðin Spegil-
inn og Samvisku þjóðarinnar í
fjárgróðaskyni. Eftir atvikum
þykir bera að staðfesta refsi-
ákvörðun héraðsdóms en greiðslu-
frestur sektar er 4 vikur frá birt-
ingu dóms þessa að telja. Skv. 1.
tölulið 69. gr. almennra hegn-
ingarlaga, sbr. 28. gr. laga nr.
57/1956, ber að staðfesta úrlausn
héraðsdóms um upptöku á blaðsíð-
um nr. 24, 25 og 40 í 4445 eintökum
af blaðinu Speglinum, 43. árgangi
2. tölublaði og á hliðstæðum blað-
síðum i 172 eintökum af blaðinu
Samviska þjóðarinnar, 1. árg. 1.
tbl., svo og þau myndmót og
offsetfilmur beggja útgáfanna er
varða þetta efni.“
Verkfallið í Vestmannaeyjum:
Málið í
biðstöðu
EKKERT nýtt hefur borið til tíðinda
í vinnudeilu þeirra starfsmanna
Vestmannaeyjabæjar, sem eru í
Verkalýðsfélagi Vestmannaeyja, og
bæjaryfirvalda þar. Eru því umrædd-
ir starfsmen ennþá í verkfalli, en
það hófst sl. mánudag.
Að sögn Ármanns Bjarnfreðs-
sonar hjá Verkalýðsfélagi Vest-
mannaeyja hefur enginn sátta-
fundur verið boðaður í deilunni,
sem snýst fyrst og fremst um
taxtakaup, og lítur félagið svo á að
Vestmannaeyjabær eigi næsta
leik í stöðunni. Aðspurður kvað
Ármann 68 taka þátt í verkfallinu.
NORDMENDE
_TV____VIDEO____HIFI
Nordmende er stolt Bremen (Brimaborgar) í Þýzkalandi: Nordmende
verksmiöjurnar leggja mikla áherslu á aö veröa brautryðjendur í tækni-
þróun og stílhreinni hönnun. Þessari forystu hefur Nordmende tekist aö
halda síöan 1959. Hver man ekki eftir fyrstu transistorunum, litsjónvörp-
unum, kalda kerfinu og nú digital kerfinu. Nordmende verksmiðjan er
ekki risastór útungunarvél, heldur hæfilega stór verksmiöja sem keppir
aö því aö bjóöa meiri gæði og fegurri hönnun fyrir peningana. Þaö hefur
sýnt sig aö íslendingar eru vandlátir og velja því Nordmende. íslendingar
eru líka hagsýnir og vilja fá mikið fyrir peningana. Valiö verður því
auövelt
NORDMENDE
aö sjálfsögðu.
Við bjóðum allar stærðir bæöi Mono og Stereo.
Stærð Mono Stereo Útborgun
20 tommur 26.000 46.350
22 tommur 32.000 49.600 1/4
27 tommur 38.980 52.660 Eftirstöðvar á 6—8 mán.
SENDUM UM ALLT LAND
SKIPHOLTI 19,
SÍMI29800
SJÁIÐ ÓLYMPÍULEIKANA í RÉTTUM UTUM.