Morgunblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNl 1984
13
Álftir
„Hú-hú-hú,“ elsti álftarunginn flúinn úr hreiðrinu og syndir til foreldranna.
í
„HÚ-HÚ-HÚ“, „hú-hú-hú“. Hver
kannast ekki við þennan hávaða
— sumir segja söng samanber
„Svanurinn minn syngur ..."
— í álftunum þegar þær skipa
sér í skáraðir á flugi og þreyta
oddaflug eða þegar þær lóna
tvær og tvær saman með þráð-
beinan hálsinn á lygnum vötnum
eða tjörnum yfir varptímann?
Þær eru sígilt myndefni Ijós-
myndara og alltaf þykir börnun-
um jafngaman að horfa á álft-
irnar — eða svanina eins þessir
fuglar eru gjarnan nefndir í er-
lendum sögubókum, hvaða les-
andi man ekki eftir einni eða
tveimur slíkum um prinsa í
svanslíki sem ekkert þurftu
nema prinsessukoss .. ? — á
tjörninni í Reykjavík eða út um
bílgluggann á ferðalögum þegar
þær dóla stoltar eftir lygnum
vötnum.
Ekki eru þó allir jafnánægð-
ir þegar þeir heyra hú-húið í
álftunum því hún er skæður
óvinur nýgræðings í túnum og
nýræktun bænda. Þó álftin sé
friðuð árið um kring hafa ein-
staka bændur misst þolinmæð-
ina, ekki liðið þeim þetta, enda
líta þær ekki einu sinni við
fuglahræðum sem menn hafa
verið að útbúa af miklu list-
fengi og komið fyrir á ökrum
sínum og látið sig hafa það að
skjóta nokkrar öðrum til við-
vörunar.
Álftirnar verpa gjarnan á
bökkum lygnra vatna eða í
vatnahólmum. Þessa dagana
eru ungarnir einmitt hver á
fætur öðrum að skríða út úr
eggjunum, eins og meðfylgj-
andi myndir sem Þórhallur
Bjarnason tók fyrir skömmu í
Borgarfirði bera með sér.
Mosfellssveit: Ekki lengur „sveita
Magnús Sigsteinsson, oddviti, og Páll Guðjónsson, sveitarstjóri, við skipulagsteikningu af nýja miðbænum í Mos-
fellssveit. Ljósm-Mbl./ Július
FYRIR aðeins 30 árum var
Mosfellssveitin sveit í eigin-
legri merkingu. Þar voru
stundaðar hefðbundnar
búgreinar, s.s. kúabúskapur.
En nú er öldin önnur. Að vísu
er búskapur enn stundaður
þar, en nú mest aiifuglarækt
og garðyrkja.
Á árunum upp úr 1960 fór þétt-
býli mjög vaxandi og um 1970 voru
íbúar í Mosfellssveit orðnir eitt
þúsund. Ekkert lát hefur orðið á
fjölguninni síðan og má sem dæmi
nefna að 1974 var fólksfjölgun um
20%, en stóran hluta þeirrar fjölg-
unar má rekja til Vestmannaeyja-
gossins 1973.
Magnús Sigsteinsson, oddviti
hreppsnefndar Mosfellshrepps,
sagði í samtali við Mbl. að alrangt
væri að kalla Mosfellssveit
„svefnbæ" Reykjavíkur, eins og
margir gera. Hann sagði, að um
40% af íbúum Mosfellssveitar á
vinnumarkaði sæktu vinnu sína
þar, auk fjölmargra Reykvíkinga.
Helstu atvinnurekendur væru
Álafoss, Reykjalundur, Skálatún
og Tjaldanes, auk hreppsins.
Magnús kvað stefnt að aukinni
fjölbreytni í atvinnulífi í sveitinni,
t.d. væri nú verið að reisa hús und-
ir fjölbreytta iðnaðarstarfsemi við
Teigahverfi.
Páll Guðjónsson, sveitarstjóri,
sagði það lengi hafa háð Mosfells-
sveit að ekki var til heildar-
skipulag og því ekki hægt að út-
hluta þeim fyrirtækjum lóðum,
sem óskað hefðu eftir því. Úr
þessu hefði nú verið bætt, því ný-
lega gekkst hreppsnefndin fyrir
samkeppni um deiliskipulag mið-
bæjarsvæðis í Mosfellssveit og
yrði hafist handa við framkvæmd-
ir á því svæði næsta vor. Stefnt
væri að því að miðbæjarsvæðið
yrði dæmigert fyrir Mosfellssveit,
t.d. með því að hafa verslanir er
byðu upp á vörur úr gróðurhúsum
og alifuglabúum sveitarinnar.
Stjörnu-
konsert að
Laugum
HINN 1. júli næstkomandi mun Hér-
aðssamband Suður-Þingeyinga efna til
veglegrar söngskemmtunar í íþrótta-
höllinni að Laugum í Reykjadal. Þar
koma fram óperusöngvararnir Garðar
Cortes, Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Kristinn Sigmundsson og Anna Júlíana
Sveinsdóttir. Undirleikari verður aðal-
stjórnandi íslensku óperunnar, Marc
Tardue, og kynnir Jón Stefánsson.
Efnisskráin er fjölbreytt og mun
listafólkið flytja íslenska og erlenda
tónlist, einsöngslög, óperuaríur, dú-
etta og kvartetta. Skemmtun hefst
kl. 16.00 og stendur f þrjár klukku-
stundir.
Af annarri starfsemi HSÞ er það
helst að frétta að Héraðsmót í
frjálsum íþróttum var haldið á
Húsavíkurvelli 15. og 16. júní og var
þátttaka góð. Þá hefur þegar farið
fram viðavangshlaup HSÞ. Þarna
var um að ræða þriggja hlaupa
keppni og fór fyrsta hlaupið fram í
Mývatnssveit, annað að Laugum og
hið þriðja að Stórutjörnum. Að
þessu sinni var íþróttafélagið Völs-
ungur stigahæst félaganna.
Undirbúningur fyrir Landsmót
ungmennafélaganna sem haldið
verður í Keflavík og Njarðvík
13.—15. júlí er í fullum gangi og
stefnt er að þátttöku í sem flestum
greinum á mótinu.
(Úr frrtUtilkynnínfpi.)
[
VERSLUNARTIMAR I SUMAR:
ÍÁrmúla: Mánud. — miðvikudkl.09.00—18.00
Fimmtud. kl. 09.00—20.00
Föstud. kl. 09.00-22.00
Lokað laugardaga.
Vörumarkaðurinn hf.
Armúla 1A, s. 686111,
Eiöistorgi 11, s. 29366.
Á Eiðistorgi: Mánud. — miðvikud. kl. 09.00—19.00.
Fimmtud. kl. 09.00—20.00.
Föstud. kl 09.00—22.00.
Lokað laugardaga.