Morgunblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNl 1984
Gísli Rúnar Gíslason.
Júlíus Kristinsson
Sigríður Önundardóttir t.h. og Margrét Sigmundsdóttir.
Nóg að gera í
unglinga vinn unni
— Unglingar í Vinnuskóla Reykjavíkur teknir tali
Á HVERJU sumri eru í borginni margir hópar unglinga, sem
starfa á vegum Vinnuskóla Reykjavíkur. Hér er um að ræða
unglinga, sem hafa lokið 7. og 8. bekk grunnskóla, og vinna þeir
við öll almenn skrúðgarðyrkjustörf í almenningsgörðum borgar-
innar. Starfið felst í að reyta arfa og illgresi úr blómabeðunum,
raka saman heyi af grasflötum og setja niður blóm, svo eitthvað
sé nefnt.
Á dögunum lögðu blaðamaður
og ljósmyndari Morgunblaðsins
leið sína um bæinn í leit að þessu
unga fólki til þess að fá álit þess á
unglingavinnunni. Fyrst lá leiðin
á Austurvöll, þar sem tvær ungar
stúlkur voru að störfum. Þær
heita Margrét Sigmundsdóttir og
Sigríður Önundardóttir og eru báð-
ar 15 ára. Þær höfðu báðar áður
unnið við að gæta barna, en Sig-
ríður hafði einnig unnið í humri.
Þeim finnst vinnan frekar illa
borguð og sögðust rétt hafa fyrir
skemmtunum. Þær telja launin
varla duga fyrir fötum.
Þær stöllur tilheyra hópi ungl-
inga sem vinnur í kringum Tjörn-
ina og skiptist á að vera í Hljóm-
skálagarðinum og á Austurvelli.
Þennan dag voru þær Margrét og
Sigríður sendar á Austurvöll til
þess að snyrta til eftir 17. júní.
Sigríði finnst vinnan ágæt, en
Margréti fannst hún ágæt til að
byrja með, en svolítið leiðigjörn.
í Hljómskálagarðinum hittum
við fyrir tvo pilta og tókum fyrst
tali GÍhU Rúnar Gíslason 15 ára.
Honum fannst ágætt í vinnunni.
Hann hafði þó reynt að fá vinnu
annars staðar, bæði í byggingar-
vinnu og í fiski, en það hafði ekki
borið árangur. Að hans áliti
mætti kaupið vera betra, en hann
vonast samt til að geta lagt hluta
af laununum fyrir. Júlíus Krist-
insson, jafnaldri Gísla Rúnars,
var að vinna í nágrenni við hann.
Hann er sammála Gísla Rúnari
um ágæti vinnunnar. Hann hafði
þó hugmyndir um ýmislegt sem
mætti breyta. Til dæmis sagði
hann að lengja mætti matar- og
kaffitímann, sem eru hvor um sig
aðeins hálftími. Einnig sagði
hann að krakkarnir hefðu að-
stöðu í vinnuskúrum, sem standa
stutt frá Hringbrautinni, en þar
inni væri varla nægilegt pláss,
því þegar allir eru inni þurfa allt-
af einhverjir að standa. Júlíus
reyndi að fá vinnu í fiski í sumar
en varð of seinn að sækja um.
Einnig reyndi hann að komast í
sveit, en það tókst ekki heldur.
Þeir Gísli Rúnar og Júlíus sögðu
að stelpur væri í meirihluta
þarna á Tjarnarsvæðinu, en allir
væru látnir vinna sömu verkin.
Stundum kemur þó fyrir að
strákarnir eru settir í þau verk
sem eru erfið.
Úr Hljómskálagarðinum lá leið
okkar á Klambratún. Þar hittum
við fyrir þrjá hressa stráka, þá
Kristófer Pétursson, Hans Guó-
mund Markússon og Davíó Hedin.
Reyndar var Davíð bara að heilsa
upp á strákana, því hann vinnur
við bólstrun hjá pabba sínum.
Kristófer er ánægður með vinn-
una, nema hvað vinnudagurinn er
svolítið langur að hans mati, eða
frá 8 á morgnana til 4 á daginn.
Kristófer er alvanur í unglinga-
vinnunni eftir að hafa unnið þar í
fyrra sumar. Seinni hluta sumars
komst hann í sveit. Hann langaði
ekki í sveit í sumar og kaus held-
ur að fara aftur í unglingavinn-
una. Hans Guðmundur leitaði um
allt að vinnu. Hann byrjaði i
bólstruninni með Davíð, en gafst
fljótlega upp.
Strákarnir voru að snyrta í
kringum tré og sögðu að það væri
ágætt. Þessir hressu strákar
sögðust ekki kvíða næsta sumri.
Þeir sögðu að það virtist vera
miklu auðveldara fyrir þá sem
væru orðnir 16 ára að fá vinnu á
almennum vinnumarkaði. Ekki
voru þeir ánægðir með kaupið
frekar en aðrir og sögðust aðal-
lega eyða því í bíó, föt o.þ.h.
Þegar þeir voru spurðir um
hvernig aðstaðan væri fyrir ungl-
inga hér í borginni, sögðu þeir að
aðstaðan hefði batnað mjög mik-
ið að undanförnu. í fyrra var allt-
af fullt af fólki á Hallærisplan-
inu, en nú kæmi þar varla nokkur
maður. Ástæðan fyrir þessari
breytingu er sú að á síðastliðnu
ári hafa nokkrir nýir skemmti-
staðir fyrir unglinga litið dagsins
ljós. Strákarnir sögðust vera
mjög ánægðir með þessa breyt-
ingu.
Við vinnuskúrinn á Klambra-
túni hittum við verkstjóra strák-
anna, Ingibjörgu Þorvaldsdóttur.
Hún sagði að á þessu svæði væru
2 flokkar unglinga á vegum
Vinnuskóla Reykjavíkur. Einnig
væru þarna borgarstarfsmenn,
sem m.a. sjá um að slá grasið.
Undir stjórn Ingibjargar eru 16
unglingar og þar af aðeins 2
stelpur. í hinum flokknum eru
um 20 unglingar, en þar eru að-
eins örfáir strákar.
Ingibjörg sagði að það væri nóg
að gera við snyrtingu ofl. Venju-
lega starfar vinnuskólinn ekki
nema í júní og júlí, en séð er fram
á að næg verkefni verði þarna
eitthvað fram í ágúst. Ingibjörg
sagöi að það gengi yfirleitt vel að
fá krakkana til að vinna, en auð-
vitað væri það misjafnt eins og
gengur og gerist. Hún sagði jafn-
framt að á fundi, sem haldinn var
með leiðbenendum í vinnuskólan-
um 1. júní sl., hafi komið fram að
kaupið væri hlutfallslega hærra
nú en í fyrra.
Þess má geta að um tvo aldurs-
hópa er að ræða, og eru launin 41
króna á tímann fyrir þau sem
fædd eru 1969, en 36,50 fyrir þau
sem fædd eru 1970. Allir sem
skrá sig fyrir ákveðinn tíma fá
vinnu og eru alls um 1200 ungl-
ingar sem starfa á vegum vinnu-
skólans í sumar.
Þeir unglingar sem við rædd-
um við voru allir ánægðir með
vinnuna og þó að þeim fyndist
flestum kaupið of lágt var aðal-
atriðið að hafa einhverja vinnu.
— ÁH
Talið frá vinstri: Kristófer Pétursson, Davíð Hedin og Hans Guðmundur Markússon. Ingibjörg Þorvaldsdóttir, verkstjóri.