Morgunblaðið - 28.06.1984, Qupperneq 15
rr>T <V» rrr T r> * rtt rm» r»fTr> r'TC' » rr r't r
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984
kÍ5
Séttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Með suniri og sól kemur sá tími árs
er við öll höfum hið mesta dálaeti á. Þá
drögum við fram „grillið" og glóðar-
steikjum fisk og kjöt, einnig eru ágæt-
ir:
Glóðarsteikt-
ir kjúklingar
1 kjúklingur ca. 1200 grömm
Árangur af matreiðslu þessa rétt-
ar er leyndarmál kokksins og m.a.
falinn í sósunni. Hér er
Gióðarsósa Höfuðbólsins
1 bolii tómatkraftur (210 gr — 3
litlar dósir)
'h bolli vatn
14 bolli sítrónusafi (1 góð sítróna)
V* smjör(vi)
1 lítill laukur fínsaxaður
1 matsk. paprika sléttfull
1 tsk. sykur
1 tsk. salt og ‘A tsk. pipar
1 matsk. Worcestershire-sósa
Setjið allt í pott, blandið vel sam-
an og hitið að suðu.
Steikingin er auðveld, en til að ná
sem bestum árangri er rétt að hafa
nokkrar reglur hugfastar:
1. Ef grillið sem notað er er af
minni gerðinni, þá er ágætt að þekja
bæði botn og hliðar með álpappír áð-
ur en viðarkolin eru sett þar á. Álið
endurkastar hitanum, þrif verða
einnig auðveldari.
2. Þegar kolin hafa fengið glóð, þá
verður að gefa þeim góðan tíma til
að ná góðum hita. Til þess má áætla
30—40 mínútur.
3. Hiti fyrir steikingu á kjúklingi
er réttur þegar hægt er að halda
hendi yfir grillrist í 3 sekúndur.
Fyrir steik er hiti réttur þegar kippa
þarf hendi að sér áður en 3 sekúnd-
um er náð.
4. Áður en kjúklingurinn er settur
á grillristina er hún smurð með mat-
ristina í steikingu.
Kjúklingurinn er skorinn í 8
stykki, skolaður og þerraður vel.
Kjúklinginn má setja í sósuna og
marinera á meðan kolin eru að
hitna, eða (sem mér finnst betra)
setja bitana á grillið þegar kolin eru
orðin heit og láta kjötið þorna vel, —
léttbrúnast, og byrja síðan að bera
sósuna á þá með pensli. Kjötinu er
síðan snúið á 5 mínútna fresti og er
steikingartíminn 30—45 mín. Fer
hann eftir stærð kjúklingsins. (Hann
á ekki að snöggsteikja.)
Ef veður bregðast þann dag sem á
að grilla, — slíkt hefur skeð, þá notið
bökunarofninn. Setjið kjúklingabit-
ana á álklædda plötu, — látið þá
þorna undir grilli eða við yfirhita og
bakið við meðalhita í 45 min. Glóð-
arsósan sem uppskriftin er að er
næg fyrir 2 kjúklinga. Penslið kjötið
með henni öðru hvoru í steikingu.
Kartöflusalat er ágætt meðlæti
með kjúklingi þessum, svo og grænt
salat og hvítlauksbrauð. Skerið i
sneiðar brauð með góðri skorpu,
smyrjið með smjörva og stráið yfir
hvítlauksdufti. Leggið sneiðarnar
saman á ný, vefjið álpappir og setjið
í heitan ofn eða á grillið þar til
smjörið er bráðið.
Verð á hráefni
Kartöflurnar nýju sem nú eru á
markaði eru æði misjafnar að gæð-
um. Það er ólíðandi að þurfa að
greiða fullt verð fyrir kartöflur (eða
80 krónur), — sem eru svo grænar að
aðeins finnast lítil 10 stk. af ætum
kartöflum úr 214 kg poka. Þarna
verður að koma á betra og hæfara
kartöflumati.
KjúklinKur (1200 gr) kr. 177,00
(1 kgt 148,00)
Tómatkraftur 3 dós. kr. 15,90
Sítróna kr. 6.00
Laukur kr. 2.00
Krydd, smjörvi, áætl. kr. 10.00
kr. 210,90
TP\
»m\\\\\\\\\wu
«oo«
JÖFUR HF
NYBYLAVEGI 2
KOPAVOGI
SÍMI42600
Ef tekíð er meðaltal þríggja mest
seldu bíla hérlendís kemur í ljós
að Skoda '84 er hvorkí meira
né mínna en ÞRIÐJUNGI STÆRRI
og því mun rúmbetrí en þeír.
SAMT ER HANN HELMINGI ÓDÝRARI.
Miklar framkvæmdir í Stykkishólmi
Ljósmynd: Árni, Stykkishólmi.
Það er síður en svo dauft yfir framkvæmdum í Stykkishólmi. Síðastliðið haust og í vetur hafa risið mörg timburhús í nýju hverfi þar í bæ og sýnir
myndin hluta þeirra.