Morgunblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 19
Elzta bún-
aðarsam-
band lands-
ins $0 ára
GeiUrgerói, FljóUdal, 22. júní.
Aðalfundur Búnaðarsambands
Austurlands var haldinn á Hall-
ormsstað dagana 20. og 21. þ.m. í
sambandi við fundinn var minnst
80 ára afmælis sambandsins að
kvöldi fyrri fundardags með kaffi-
drykkju, ræðuhöldum og slegið
var á léttari strengi.
Búnaðarsamband Austur-
lands var stofnað á Eiðum 22.
júní 1904 og mun vera elsta bún-
aðarsamband landsins. Fyrstu
stjórn þess skipuðu: séra Einar
Þórðarson, Bakka, Borgarfirði,
sem jafnframt var fyrsti for-
maður þess, séra Magnús Bl.
Jónsson, Vallanesi, og Sigfús
Halldórsson bóndi, Sandbrekku.
Núverandi formaður sambands-
ins er Sveinn Guðmundsson frá
Sellandi og framkvæmdastjóri
er Páll Sigbjörnsson, ráðunaut-
ur, en sú skipan mála var tekin
upp á síðasta aðalfundi.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa voru samþykktar margar
ályktanir, meðal annars voru
tekin fyrir drög að frumvarpi til
laga um atvinnuréttindi í land-
búnaði. Nokkrar breytingar
voru gerðar við frumvarpið og
fór fram atkvæðagreiðsla um
hverja grein og drögin síðan
borin upp í heild með áorðnum
breytingum og þannig samþykkt
með nokkrum meirihluta
greiddra atkvæða. Þá flutti Þór-
arinn Lárusson, sem nú hefur
tekið við tilraunastjórastöðunni
á Skriðuklaustri, erindi um það
er hann nefnir heimaöflun í
landbúnaði. Var gerður góður
rómur að erindi Þórarins.
G.V.Þ.
Nýr bátur til
Hríseyjar
— þar sem gerð hefur
verið græn bylting
Hrise;, 26. júni.
NÝR BÁTIJR kom til Hríseyjar laug-
ardaginn 23. júní sl. Þaó er 60 tonna
eikarbátur, smíóaður á ísafirði 1959.
Eigandi er Rif hf. Báturinn hlaut
nafnió Svanur. Nokkur viðhöfn var
er báturinn kom í höfn og voru veit-
ingar um boró, Prins Póló og gos
fyrir yngri kynslóóina en þeir full-
orónu fengu í plastglösum. Víst er
um aó ekki stýrðu allir eftir strikinu
upp bryggjuna þegar móttökuathöfn-
inni lauk. Einhver kvóti mun hafa
fylgt bátnum en hann verður til aó
byrja meó gerður út á rækju.
Segja má að áhugi Hríseyinga
fyrir garðrækt hafi fyrst vaknað
fyrir alvöru þegar holdanautin
komu í eyjuna. Þá varð að leggja
niður allan annan búskap og þó að
bændur væru bæði fáir og smáir
var nánast ógerningur að útiloka
sauðfé frá þorpinu því kindurnar
litu ekki við grasi ef skrautlegt
blóm var í seilingu. f sumar hefur
verið gerð hér mikil græn bylting,
sléttað úr óræktarskikum og börð-
um svo hekturum skiptir, og sáð í
flögin. Er nú farið að sjá í græna
toppa upp úr moldinni. Þá hafa
verið gróðursettar rúmlega tvö
þúsund trjáplöntur í sjálfboða-
vinnu, og fyrirhugað er að planta
fleiri trjám með hausinu ef fólk
hefur áhuga. Einstaklingar og
fyrirtæki hafa gefið rausnarlega
til plöntukaupanna. Gera Hrísey-
ingar sér góðar vonir um árangur
af ræktunarstarfinu, eins og orðið
hefur á norðurenda eyjunnar, sem
er í einkaeign.
» 0O>- í'iTT’Tf <rri,r> á rrTTm/'ir-'rr n*rr > TfTT/TTrv,Tnif
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984
iö
ERTUMEÐ
ATVINNUREKSTUR?
ÞÁ ÞARFT ÞÚ
AÐ SETIA NIÐUR
FYRIR1. JÚLÍ
UPPSKERAN VERÐUR RÍKULEG
Skv. lögum frá Alþingi frá 29. mars sl. geta
fyrirtæki og einstaklingar sem hafa tekjur af
atvinnurekstri dregið 40% frá skattgjaldstekj-
um til að leggja í fjárfestingarsjóð.
Sé það gert fyrir 1. júlí nk. lækka skattar
af tekjum á árinu 1983.
Skylt er að leggja helming tillagsins inn á
sérstakan bankareikning.
Útvegsbankinn er reiðubúinn til að taka við
greiðslum inn á slíkan reikning og greiðir
hæstu vexti sem í boði eru á þessu sviði.
Ráðgjafinn í Útvegsbankanum segir þér
hvernig þú undirbýrð jarðveginn og setur
niður. Uppskeran lætur svo ekki á sér standa.
Spyrðu eftir Ráðgjafanum á næsta
afgreiðslustað bankans.
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖLL MÓNUSTA
Fréttaritari