Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 21

Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984 21 Sextugur: Sverrir Páisson skólastjóri Akureyri Þegar sá, sem þetta ritar, var á ferð á Akureyri á dögunum, hafði hann í frammi hótanir við einka- vin sinn og bernskufélaga og bróð- ur í leik. Hann hótaði honum því, að skrifa um hann grein í tilefni af sextugsafmæli hans, hvort sem honum líkaði betur eða verr. Afmæli bernskuvinarins er í dag, og sjálft afmælisbarnið, Sverrir Pálsson, skólastjóri Gagn- fræðaskólans á Akureyri, er fyrir norðan á Akureyri, þar sem hann hefur átt heima alla sína ævi og er álíka mikill hluti af háakureyrsku umhverfi eins og harðbalinn fyrir ofan gamla Barð austur og norður af gamla MA, þar sem litlu labba- kútarnir þeir Derri Páls og Deini litli meistara höfðust stundum við og spekúleruðu eins og þeir pott- ormarnir nefndu andlega iðju sína á útlenzkri akureyrsku. Þar á harðbalanum voru, sællar minningar, lögð á ráðin um að ná fram hefndum á einum leikbræðr- anna, sem hafði leikið afmælis- barnið, fóstbróður várn, svo grátt, að til helberrar niðurlægingar horfði. Leikbróðirinn hafði notið aflsmunar og var auk þess þrem árum eldri en „fórnardýrið" og í ofanálag var hann sérfræðingur í pyntingum og pyntingasálfræði af lestri miðalda-hernaðarbóka. Skólalýðurinn í MA hafði horft á aðfarirnar eins og hanaslag og vígvöllurinn var beint fyrir fram- an skólann að austanverðu, þar sem myndastytturnar af þeim meistarahjónum frú Halldóru og Sigurði standa. Smitaðir, gagnteknir, heillaðir af lestri Sturlungu og Njálu (sem eru „vendetta" (hefndarsálfræði-) bókmenntir af fyrstu gráðu), voru þeir fóstbræður, Derri og Deini, einhuga um að grípa nú til slægð- ar og grófra aðgerða í hefndar- skyni til að öðlast uppreisn æru: Sá krúnrakaði rosalegi Steini meistara með breitt skarð milli framtanna og fleiri freknur á nefi en brúnir blettir á kríueggi í Svarta-Flóa ... já, honum Steina þessum tókst að lokka „leikbróð- urinn" upp fyrir gamla leikfimi- húsið, eða öllu heldur upp fyrir hesthúsið, sem hafði staðið þarna frá dögum Stefáns skólameistara, föður Valtýs heitins Morgun- blaðsritstjóra. Þar hafði hrúgazt upp gríðarmikill hrossaskítshaug- ur. Atlaga var gjörð. Sá krúnrakaði henti sér á lappir leikbróðurins og skellti honum aftur á bak beint ofan í hrossa- skítshauginn — á bólakaf — og samtímis reif hann af alefli — af lífs- og sálarkröftum í strítt hár óvinarins, sem minnti á hrosshár fremur en manneskjulegt hár. Með þetta heljartak á hári leik- bróður og líkamsþunga afmælis- barnsins eins og hann lagði sig (Sverrir var með þyngri sveinum í þá daga) á neðsta hluta fótleggja hefndarþolans — skankarnir komu út úr haugnum — hitt var allt meira og minna á kafi í hrossaskít — með þetta ógnartak tóku þeir félagar báðir hnefafylli af hrossaskít og nudduðu honum nú í augu og vit fórnardýrsins. Þetta var þaulhugsað og nákvæm- lega skipulagt og jafnframt verið æft til öryggis eins og á lög- reglunámskeiði. Þeir fóstbræður höfðu engar sleitur á og fóru með fornyrði í Sturlungastíl og vitnuðu í bardaga — að sjálfsögðu. Ekkert hlé var gert á hinum harða atgangi, fyrr en „elsku vinurinn" baðst vægðar og samþykkti skilyrðislausa upp- gjöf. Ei heyrðist hann gráta frem- ur en tíðkaðist til forna, en gaf þess í stað frá sér annarleg hljóð, sem eru enn minnisstæð. Fóstbræður fögnuðu sigri. Sam- einaðir stöndum vér — sameinaðir föllum vér — þetta voru einkunn- arorð þeirra í vináttu frá því Sverrir var sex ára og Steini fimm og byggðust á fornum drengskap- arlögum, hörðum eins og í hern- aði. Þessi vinátta hefur haldizt alla tíð. Og síðan atvikið gerðist, hafa mörg vötn fallið til Eyjafjarðar og frá Eyjafirði. Leiðir fóstbræðra ekki ævinlega legið saman — en fjarskiptasamband oft á tíðum verið þeim mun næmara. Þeir fóstbræður fóru aldrei í nafntogaðan barnaskóla Snorra Sigfússonar á Akureyri. Það voru örlög eða forlög. Þeir nutu harðrar einkakennslu í heimahúsum, en urðu lögum samkvæmt að þreyta kunnáttupróf (það nefndist lands- próf — að greinarhöf. minnir) og var meira til málamynda. Þess í stað voru þeir í sérumslagi ellegar öllu heldur hafðir í sérumslagi, og námsvíkingar í gamla MA eins og hann Ingvar heitinn Brynjólfsson, sem síðar varð þýzkukennari við MR og Bjarni Villa þjóðskjala- vörður og fleiri gæðingar — já, þeir voru látnir troða níðþungum fræðum og námsgreinum í svein- ana á menntaskólakröfustigi. Próf þreytt á vorin — aðeins tveir, sem gengu upp — og þá eina skiptið ríkti gífurlegur metnaður á milli þeirra og metingur um, hvor væri verðugri hærri einkunna og hlyti „láð“ yfir línuna. Báðir fóru vinirnir kornungir inn í MA. Greinarhöf. átti að verða fóstbróður samferða, en harðneitaði og beið í eitt ár af skynsemisástæðum, enda ná- kvæmlega tíu mánuðum yngri. Sverrir er einn mesti vinnuhest- ur og eitt mesta dyggðablóð, sem undirskráður hefur kynnzt — hon- um fyrirmynd í lífshlaupi — en aldrei lét Sverrir vin sinn finna til vanmetakenndar, heldur örvaði hann á alla lund og var honum styrkur á sama hátt og „verri" vinurinn reyndi að sýna lit af holl- ustu og virðingu fyrir vináttu þeirra með því að laga lífsreikning afmælisbarnsins með harðri hefndaraðgerð við hauginn fyrir ofan gamla leikfimihúsið forðum daga. Sverrir hefur verið skólamaður tæp fjörutíu ár — byrjaði korn- ungur að uppfræða. Hann er cand. mag. í íslenzkum fræðum, bók- menntamaður, blaðamaður, skáld, rithöfundur og söngvari er hann af guðs náð — söng tvísöng á móti söngsnillingnum Jóa Konn árum saman — er tónlistarmenntaður að nokkru. Hann er kirkjunnar maður og andlega sinnaður eins og hans merka ætt er bæði í föður- og móðurlegg. Hann er sunnlenzkur gegnum móður, sem var kvenna vænst, frú Sigríður Oddsdóttir af Eyrarbakka, dóttir Odds gull- smiðs þar og þjóðsagnaritara. 1 hina ættina er hann hreinræktað- ur Norðlendingur, ættaður frá Stóruvöllum í Bárðardal. Faðir hans var Páll Sigurgeirsson kaup- maður á Ak., sem löngum var kenndur við Braunsverzlun og var sonur Sigurgeirs söngkennara frá Mýri í Bárðardal, en þeir föður- frændur ýmsir þykja ljóngáfaðir atorkumenn — með andlegar listrænar erfðir í blóðinu. Það verður gaman að hitta fóstbróður og fornvin fyrir norðan í dag og minnast meira en hálfrar aldar vináttu, sem hefur gefið til- verunni gildi og ræktað hjá grein- arhöfundi virðingu gagnvart líf- inu. Ég óska fjölskyldu þinni, Sverrir minn, til hamingju með þitt vammlausa og vítalausa líf. Þú hefur reynzt börnum þínum góður faðir og þinni ektakvinnu, Ellen, fyrirmyndar-eiginmaður. Ef til vill hefur þú sýnt af þér meiri dyggð en ýmsir aðrir fyrir þá sök, að sterkar ástríður hafa þótt leynast og ríkja meðal furðu margra af ættum þínum. Þetta var sagt sisvona til gam- ans. Hafðu heitt á könnunni, þeg- ar ég kem eins og blár logi. Að Hæðardragi, Steingrímur SL Th. Sigurðsson. I I 1 L! suzu ( ll\ /1 ■ ISUZU Pallbíll Á ISUZU PALLBÍLNUM ERU ÞÉR EKKI AÐEINS ALLIR VEGIR FÆRIR - ÞÚ FERÐ YFIR STOKKA OG STEINA, FJÖLL OG FIRNINDI. ÞAÐ HAFA RÖSKLEGA MILLJÓN BÍLAR SEM FRAMLEIDDIR HAFA VERIÐ AÐ ÞESSARI GERÐ, SANNAÐ UM HEIM ALLAN. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR: LENGD: 4,42m, PALLENGD: 1,85m, LENGD MILLI HJÓLA: 2,6m, LENGD: 4,86m, PALLLENGD: 2,29m, LENGD MILLI HJÓLA: 2,99m, BREIDD: 1,6m, HÆÐ: 1,6m, LÆST MISMUNADRIF, SJÁLF- STÆÐ FJÖÐRUN AÐ FRAMAN, BENSI'NVÉL, DÍSELVÉL, AFL- STÝRI. VERÐ: M/BENSÍNVÉL 386.000,- M/DÍSELVÉL 413.000,- ÞETTA ER BÍLL SEM KEMUR ÞÉR Á ÓVART - OG ÞAÐ Á LÍKA VIÐ UM GREIÐSLUKJÖRIN SEM VIÐ BJÓÐUM. VERÐ ER MIÐAO VIÐ GENGI 20 6 1984 AN RYDVARNAR OG SKRANINGAR BÓLSTRUÐ SÆTI KLIFURHALLI 35 BURÐARGETA ER 1050KG SJÁLFSTÆÐ FJÖÐRUN STOKKUR MILLISÆTA GRÁÐUR HÆÐ UNDIR LÆGSTA AÐFRAMAN PUNKT 21 sm BSLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 -ei'jbíioxsJA A .anciBJÍiaUjsói!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.