Morgunblaðið - 28.06.1984, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.06.1984, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDÁÓCR 28. JÓNÍ 1984 ' ' Stærsta jaröarbeijaskál í heimi Kerry Kershaw, sem er sjö ára gömul Lundúnamsr, sést hér í risavaxinni skál sem inniheldur 250 kíló af jarðarberjum. Skál þessi var búin til í því skyni að setja nýtt met á þessu sviði fyrir heimsmetabok Guinness. SUersta jarðarberjaskál heims til þessa gat ekki innihaldið „nema“ 225 kíló af jarðarberjum. Svíþjóð: Skattahækkanir tíunda hvern dag Stokkhólmi. 27. júní. Frá TrétUriUra MorjfiinhlaAsins, Olle Ekström Sýrland og ísrael semja um fanga Á ÞEIM tveimur árum, sem liðin eru, síðan jafnaðarmenn komust aftur til valda í Svíþjóð árið 1983, hafa þeir staðið fyrir ekki færri en 63 skattahækk- unum, sem þýðir að meðaltali skattahækkun tíunda hvern dag. Nema skattar alls nú 51,4% af heildar þjóðartekjum Svía. í rauninni hefur skatta- byrðin aukizt enn meira en þessi hundraðshluti segir, þar sem laun hafa lækkað á þessu tímabili. Skiptir þetta máli bæði með tilliti til tekjuskatts, virðissaukaskatts og launa- skatts. Þetta kemur fram í skýrslu sem samin var á vegum Hægri flokksins í Svíþjóð. í henni er því haldið fram, að í reynd hafi skattar aukizt í Svíþjóð um 8,7% á síðasta ári, sem sé fjórum sinnum meira en öll sú framleiðsluaukning, sem orðið hafi á því ári í landinu. „Þeir 13 nýju skattar, sem innleiddir hafa verið eftir valdaskiptin haustið 1983, sýna mikla hugkvæmni á þessu sviði í landi, sem álíta mætti, að hefði þegar innleitt alla hugsanlega skatta," sagði þingmaðurinn Carl Bildt úr Hægri flokknum, er skýrslan var kunngerð. Kjell-Olof Feldt, fjármála- ráðherra Svíþjóðar, hefur lát- ið sér fátt um þessa skýrslu Hægri flokksins finnast og sagt, að skattabyrðin hafi aldrei vaxið meira í Svíþjóð en á stjórnartíma borgaraflokk- anna þriggja eða úr 48,5% í 51,3%. Pastora farinn frá Panama Su Jose, CobU Rica, 27. júní. AP. EDEN Pastora, fyrrum leiðtogi skæniliðahreyfingarinnar gegn stjórn sandinista í Nicaragua, er far- inn frá Panama til Bandaríkjanna. Skýrði útvarpið í Panama frá þessu í dag. Pastora, sem var leiðtogi skæru- liðahreyfingarinnar ARDE, en í henni eru 4.000 manns, átti þátt í því með sandinistum að steypa stjórn Somoza árið 1979. Pastora varð síðan fyrir miklum vonbrigð- um með stefnu sandinista og hóf ákafa baráttu gegn þeim. Hann særðist 30. maí sl., er sprengja sprakk á fréttamannafundi, sem hann hélt. Fjórir menn biðu bana í þessari sprengjuárás, sem átti sér stað í Nicaragua rétt við landamærin við Costa Rica. Beirvt, 27. júlí. AP. ÍSRAELAR hyggjast láta lausa 291 sýrlenska fanga í staðinn fyrir 6 ísraela, sem nú eru fangar Sýrlend- inga. Var þetta haft eftir heimildum í Tel Aviv í dag. Sýrlenska fréttastof- an SANA staðfesti þessa frétt í dag og sagði, að fangaskiptin myndu eiga sér stað á fimmtudag í grennd við sýrlensku landamæraborgina Kunaitra. Samkvæmt frásögn SANA eiga fangaskiptin að ná til yfir 290 Castro sleppir 22 Bandaríkjamönnum Kúbu, 27. júní. AP. FIDEL CASTRO, forseti Kúbu, samþykkti, eftir átta klukku- stunda viðræður við Jesse Jack- son, að leysa úr haldi 22 Banda- ríkjamenn sem flestir eru ákærðir fyrir eiturlyfjaneyslu. Castro tilkynnti að fangarnir myndu snúa til föðurlandsins ásamt Jackson, sem fer heim á morgunn, fimmtudag. Einnig sagði Castro að Andres Vargas Gomez, fyrrverandi útsendara bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, yrði leyft að fara til Bandarikjanna, ef hann fengi þar landvistarleyfi. Gomez var leystur úr haldi á Kúbu í lok sjöunda áratugsins, en var ekki leyft að yfirgefa landið. Jackson og Castro ræddu ýmis önnur mál á fundum sínum, m.a. um möguleika á að flytja til baka suma af Kúbönunum, sem komu á bátum til Bandaríkj- anna árið 1980. Castro sam- þykkti einnig að taka upp stjórnmálasamskipti við Banda- ríkin hið fyrsta, ef það þóknað- ist ríkisstjórn Ronalds Reagan. í skýrslu sem fréttastofa Castrostjórnarinnar gaf út með- an á heimsókn Jacksons stóð, segir að Bandaríkjamenn hugi á beina árás á Kúbu, en kúbanska þjóðin væri að undirbúa sig und- ir þetta meiriháttar stríð, sem myndi hafa áhrif á líf a.m.k. sex milljóna Kúbana. í skýrslunni segir að kosning Reagans hafi margfaldað hættuna á árás á Kúbu, en kúbanski herinn hefur nú mánaðarlegar æfingar fyrir hina mögulegu árás. Sýrlendinga; það eru allir her- fangar í ísrael og 21 óbreyttur borgari. SANA greindi hins vegar ekki frá því, hve margir ísraelskir fangar yrðu látnir lausir í staðinn. Síöustu fangaskipti, sem áttu sér stað milli Sýrlendinga og ísra- ela, fóru fram 24. nóvember sl. er Frelsissamtök Palestínumanna, PLO, létu lausa 6 ísraelsmenn í staðinn fyrir 4.500 libanska og palestínska fanga, sem verið höfðu í Ansar-fangabúðunum í Suður- Líbanon, auk 100 annarra palest- ínskra fanga, sem verið höfðu í fangelsum í ísrael. Þrjú dagblöð komu ekki út í Lundúnum London, 27. júní, AP. TRUFLANIR urðu á samgöngum í London í morgun, eftir að járn- brautarverkamenn fóru I sólar- hringsverkfall til stuðnings verk- falli kolanámumanna í landinu. Spáð hafði verið, að samgöngukerfi borgarinnar færi algerlega úr skorðum, en þrátt fyrir verkfallið héldu neðanjarðarlestimar þar að mestu áætlun sinni. Þá komu þrjú af dagblöðum landsins ekki út vegna vinnu- deilna. Voru það The Financial Times, The Sun og The Daily Mirror. Höfðu prentarar hætt vinnu við þessi blöð, eftir að þau neituðu að verða við tilmælum um að prenta í fullri lengd yfir- lýsingu frá fimm prentarasam- böndum, þar sem lýst var yfir stuðningi við kolanámumenn. Mál Lambsdorffs getur orðið FDP dýrkeypt Bonn, 27. júní. AP. OTTO LAMBSDORFF, Sem nú hefur orðið að segja af sér sem efnahagsmálaráðherra Vestur-Þýzkalands, varð fyrst fyrir harðri gagnrýni í janúar 1981. Var hann sakaður um að hafa þegið mútur frá Flic-iðnsamsteypunni og að hafa látið peningana renna til flokks síns, frjálsra demókrata (FDP). í nóvember sl. lýsti saksóknarinn í Bonn því svo yfir, að hann myndi gefa út ákæru á hendur Lambsdorff. Er þetta í fyrsta sinn sem ráðherra í stjórn Sambandslýðveldisins hefur mátt sæta ákæru fyrir meiriháttar afbrot í embætti. Lambsdorff hefur að öðru leyti ekki verið ófarsæll í emb- ætti. Sem einlægur talsmaður frjáls framtaks og aðhaldsemi í fjármálum hins opinbera hefur hann átt marga ákafa stuðn- ingsmenn. Hann hefur ekki hik- að við að gagnrýna stórfyrirtæk- in jafnt sem verkalýðssambönd- in fyrir að stofna frjálsri sam- keppni í landinu í hættu, en þessari samkeppni þakkar hann framar öðru þann efnahags- uppgang, sem varð í Vestur- Þýzkalandi eftir stríð. Þegar olíukreppan skall á 1973, var haft eftir Lambsdorff: „Það er ekki ósjaldan sem frjálst framtak verður fyrir aðkasti sökum þess, að atvinnurekendur kalla á aðstoð ríkisvaldsins, þeg- ar þeir fá vindinn í fangið." Hrósaði hann þáverandi efna- hagsmálaráðherra, Karl Schill- er, sem var úr jafnaðarmanna- flokknum (SPD) fyrir að láta ekki undari þrýstingi og grípa til verndarráðstafana, sem dregið hefðu úr frjálsri samkeppni. „Hvergi annars staðar gekk jafn vel og jafn sársaukalítið að yfirvinna afleiðingar oliukrepp- unnar og í Vestur-Þýzkalandi," sagði Lambsdorff síðar. „Við (AP-símamynd.) Otto Lambsdorfr við upphaf fund- ar vestur-þýzku stjórnarinnar í gærmorgun. getum dregið mikinn lærdóm af þessu í framtíðinni. Við skulum varast það að halda, að skrifræði geti leyst kreppu betur en frjálst framtak." Það var hins vegar Lambs- dorff, sem kom af stað þeirri deilu, sem leiddi til þess að það slitnaði upp úr 13 ára stjórnar- samstarfi frjálsra demókrata og jafnaðarmanna í september 1982. Hann vildi hvergi frá því hvika að dregið yrði úr útgjöld- um til félagsmála til þess að minnka hailann á fjárlögum rfkisins. Við stjórnarskiptin tóku frjálsir demókratar upp stjórn- arsamvinnu við kristilega demó- krata og Lambsdorff varð áfram efnahagsmálaráðherra. Frjálsir demókratar hafa hins vegar orð- ið að greiða stjórnarskiptin dýru verði. Fylgið hefur hrunið af þeim og sumir kunnir forystu- menn flokksins hafa sagt sig úr honum og ýmist gengið í SPD, flokk jafnaðarmanna, eða stofn- að nýjan flokk, sem þó hefur ekki náð að safna um sig neinu verulegu fylgi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.