Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 24

Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 275 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakið. Samkomulag í Evrópubandalagi Fjölmiðlar hafa undan- farna mánuði bergmálað og magnað þær yfirlýsingar evrópskra stjórnmálamanna að næðu æðstu menn Evrópu- bandalagsins (Efnahags- bandalags Evrópu) ekki samkomulagi um fjárframlög aðildarþjóða til bandalagsins og fjárstreymi úr sameiginleg- um sjóðum þess til einstakra aðildarríkja væri þess að vænta að bandalagið liði undir lok. í eyrum þeirra sem gera sér ljóst að samstarfið innan Evrópubandalagsins er elcki einvörðungu bundið við krón- ur og aura eða réttara sagt pund, franka og mörk hafa yf- irlýsingar um endalok banda- lagsins ekki verið sannfær- andi. Nú hefur það og gerst, að á fundi æðstu manna banda- lagsins í Frakklandi í byrjun vikunnar náðist samkomulag sem felur í sér frið um tekju- og útgjaldastefnu sjóða bandalagsins. Innan Evrópubandalagsins er sú skipan á samskiptum ríkisstjórna aðildarríkjanna að hálft ár í senn gegnir ein- hver þeirra forystuhlutverki, og er þá leiðtogi þeirrar stjórnar oddviti bandalagsins út og inn á við og stjórnar fundum ríkisoddvita þegar þeir hittast. Francois Mitter- rand, Frakklandsforseti, hefur gegnt þessu forystuhlutverki síðustu sex mánuði og sé unnt að þakka einum stjórnmála- manni að ásættanleg niður- staða náðist í Fontainebleu á þriðjudaginn þá ber að flytja Mitterrand þær þakkir. Hann hefur ferðast á milli höfuð- borga aðildarlandanna undan- farna mánuði í því skyni að berja saman lausn á fjár- hagsvandanum sem á einkum rætur að rekja til krafna Margaret Thatcher um að dregið verði úr greiðslum Breta til Evrópubandalagsins. Mitterrand hefur enn sýnt að hann er með merkustu stjórn- málamönnum samtíðarinnar, í hópi þeirra sem þora að koma fram af hugrekki og festu á alþj óða vett vangi. Utkoman í uppgjörsdæminu er mikilvæg en hitt er þó enn mikilvægara að það takist að skapa nýjan samstarfsanda meðal aðildarríkja Evrópu- bandalagsins þannig að þau líti fram á veg í stað þess að rífast sýknt og heilagt um bókhaldsatriði. Alþjóðlegar samanburðartölur sýna að Vestur-Evrópuþjóðir eru að dragast aftur úr þegar litið er til efnahagsstarfsemi þeirra annars vegar og Bandaríkj- anna og þjóða á Kyrrahafs- svæðinu hins vegar. Hin síð- ustu ár hefur pólitíska sam- starfið innan Evrópubanda- lagsins er lýtur að samvinnu þjóðanna í utanríkismálum gengið snurðulaust fyrir sig þótt rifist hafi verið um efna- hagsmálin. Nú huga burðar- þjóðir bandalagsins að því hvort þær eigi að auka sam- vinnu sína í varnarmálum inn- an bandalagsrammans. Sama dag og samið var í Fontainebleu um framtíð Evr- ópubandalagsins hittu emb- ættismenn þess fulltrúa við- skiptaráðuneytisins hér í Reykjavík til að ræða fram- kvæmd viðskiptasamnings ís- lands og bandalagsins. Er ekki að efa að þær viðræður hafa verið gagnlegar svo langt sem þær náðu. En meira þarf til af okkar hálfu. Það er nauðsyn- legt að huga gaumgæfilega að því á stjórnmálavettvangi hvað framtíðin ber í skauti sér innan Evrópubandalagsins og hvernig tengslum íslands við það skuli háttað. Alið á öfund Eitt helsta einkenni á mál- flutningi þeirra sem telja að aðeins ríkið geti tryggt réttláta skipan á öllum sviðum er að þeir reyna að ala á öfund þegar markaðsöflin eru að verki. Eins og menn muna fundu vinstrimenn í borgar- stjórn Reykjavíkur upp svo- kallað punktakerfi til að skammta lóðir í höfuðborg- inni. Reyndist það illa í fram- kvæmd eins og öll slík kerfi sem komið er á fót til að mis- muna mönnum með opinber- um ákvörðunum. Á tveimur árum hefur sjálfstæðismönnum tekist að gjörbreyta um stefnu í lóða- málum höfuðborgarinnar og nú er svo mikið framboð á lóð- um að ekki þarf að styðjast við neitt sérstakt úthlutunarkerfi. Eftirspurnin ræðst auðvitað af því hvar lóðirnar eru og þess vegna er ekki óeðlilegt að lóðir á vinsælum stað eins og við Stigahlíð séu látnar þeim í té sem borga hæst fyrir þær. Við þá úthlutun voru mark- aðsöflin látin ráða en ekki pólitísk mismunun að hætti vinstrimanna. Borgarsjóður hagnaðist um meira en 20 milljónir. En ekki stendur á vinstri-viðbrögðunum. Þjóð- viljinn elur á öfundinni dag eftir dag, líklega í von um að áróðurinn leiði til þess að vinstrimennskan og skömmt- unarstjórnin komist aftur á í lóðamálum. „Óttast að byggðin grisjist enn meira“ — segir Benedikt Sigurðsson bóndi í Gríms- tungu á Fjöllum en þar eru tún illa farin af kali MIKIÐ kal er í túnum á Hólsfjöllum, eins og fram hefur komið í Morgun- blaðinu, og töldu sumir bændur þar tilgangslaust að bera á í vor og slepptu því alveg. Morgunblaðsmenn komu við í Grímstungu á Fjöllum og ræddu við Benedikt Sigurðsson bónda þar um útlitið í búskaparmálunum. Kom fram hjá honum að í 50 ára búskapar- tíð hans hefur aldrei orðið jafn mikið kal og nú.Telur hann tímamót vera á Fjöllum og hætta á að byggðin grisjist meira en þegar er orðið. Hólsfjöll er ein hæsta byggð á landinu, Grímsstaðir eru til dæmis í um 380 metra hæð yfir sjó. Þar eru nú sex býli, fjögur á Grímsstöðum en þar búa Benedikt og Kristján, bróðir hans, og tveir synir Bene- dikts, og einnig er búið á Hólsseli og Ný-Hóli. Benedikt sagði að ástæður kalskemmdanna mætti rekja allt til Benedikt klofar yfir girðingu og fer inn á 10 bektara stykki sem er alveg ónýtt af kali. MorrunbUíió/ rax síðastliðins sumars. Þá hefði frost ekki farið úr jörðu allt sumarið. Þá hefði verið borinn á fullur skammt- ur af áburði og pínt fram gras, en uppskeran orðið léleg þar sem ekki hefði verið hægt að komast um sum tún vegna tjarna sem á þeim hefðu verið allt sumarið enda ekki nema 40 sentimetrar niður á klaka. Þá sagði Benedikt að mikil svellalög hefðu myndast á Fjöllum í vetur og þau verið langt fram í maí þrátt fyrir gott vor. Benedikt sagði að bændur hefðu þurft að kaupa mikið hey eftir síð- asta sumar og fyrirsjáanlegt væri að enn meira fóður þyrfti að kaupa í haust og einnig væri útlit fyrir að fækka þyrfti fé. Sagði hann að þetta væri ekki til að lyfta undir menn, frekar væri að menn brotnuðu niður, sérstaklega þeir yngri sem veríð hefðu að byrja búskap eða að brjóta nýtt land til ræktunar. Sagði hann að uggur væri í mönnum á Fjöllum og ákveðin tímamót í bú- Bráðabirgðalausn — rætt við 5 menn úr röðum stjórnmálamanna og hagsmunaaðila sjávarútvegsins um síðustu fiskverðsákvörðun og stöðuna eftir hana Bráðabirgðalausn, ekki hægt að ná lengra, samanlögð staða útgerðar og vinnslu óbreytt, verðbætur röng leið, um of lagt á fiskvinnsluna, bæði út- gerð og vinnsla rekin með tapi, kjör sjómanna í lágmarki, vinna verður að framtíðarlausn. Þetta má meðal ann- ars lesa úr svörum 5 manna úr röðum stjórnmálamanna og hagsmunaaöilja innan sjávarútvegs við spurningum, sem Morgunblaðið lagði fyrir þá og fara hér á eftir. Spurningarnar fjölluðu um síð- ustu fiskverðsákvörðun og stöðuna eftir hana svo og hvað framundan kunni að vera. Þær eru svohljóð- andi: 1. Hvað finnst þér um fiskverðs- ákvörðunina og þær aðgerðir, sem henni fylgja? 2. Eru millifærslur í formi verðbóta rétt leið? 3. Hver er staða útvegsins (veiða, vinnslu og sjómanna) eftir þessa ákvörðun? 4. Hvað tekur við um áramótin? Það skal tekið fram, að rætt var við forsætisráðherra, Steingrím Hermannsson, áður en spurningar Mbl. voru endanlega mótaðar á þann hátt sem að framan greinir. Síðar reyndist ekki unnt að ná sam- bandi við forsætisráðherra. Þorsteinn Pálsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins: Sýndist eina færa leiðin 1. „Með þessu er verið að tryggja til bráðabirgða að útgerð og fisk- vinnsla geti gengið. Það var nauð- synlegt að höggva á hnútinn og þetta sýndist vera eina færa leiðin eins og málum var komið. 2. Áuðvitað eru verðbætur og millifærslur varasamar vegna þess að þær skekkja arðsemismatið, en ég er ekki það kreddufastur að úti- loka, að það geti ekki verið réttlæt- anlegt að grípa til aðgerða af þessu tagi, þegar aðstæður til verðákvörð- unar eru knappar eins og nú. Hins vegar er þetta ekki eðlilegasti eða skynsamlegasti hátturinn til þess að ákveða fiskverð. 3. Ég held að hægt sé að segja, að þessi ákvörðun geri það að verkum, að það verður hægt um sinn að halda áfram veiðum og vinnslu, en því fer fjarri að rekstrargrundvöll- ur hafi verið tryggður til einhverrar frambúðar. Þetta er bráðabirgða- lausn á vandanum og það hvílir sú skylda á stjórnvöldum nú, að móta til frambúðar stefnu í málefnum sjávarútvegsins. Það gengur ekki að láta reka á reiðanum með bráða- birgðaráðstöfunum endalaust og menn verða auðvitað að gera það upp við sig, hvert eigi að stefna. Mér virðist einsýnt að það sé útilokað miðað við núverandi efnahagsað- stæður að tryggja rekstrargrund- völl fyrir alla. Ef við ætlum að halda hér áframhaldandi jafnvægi í efnahagsmálum verðum við að halda áfram þeirri gengisstefnu, sem fylgt hefur verið. Það er grund- vallaratriði og ég held það sé megin- atriði fyrir sjávarútveginn að það takist, að hann fái að starfa við jafnvægi í gengismálum. Það þýðir hins vegar, að ekki er hægt að tryggja lélegustu útgerðunum Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins rekstrargrundvöll við þessar að- stæður. Þetta er auðvitað veruleiki, sem menn verða að horfast í augu við. Inn í þetta kemur líka það, að aðstaða einstakra fyrirtækja er mismunandi. í stórum dráttum höf- um við hér einkaútgerð, við höfum útgerð, sem rekin er af samvinnufé- lögum og svo opinbera útgerð. Það er ekkert launungarmál, að opin- bera útgerðin hefur haft aðstöðu til þess að ganga í opinbera sjóði og það er auðvitað óeðlilegt. Sam- Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.