Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 25

Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984 25 Benedikt Sigurðsson med „vinnumönnum" sínum og hundum á kaltúni á Grímsstööum. Bærinn er í baksýn. Viljum finna leiðir svo tollurinn verði aðeins 3 % — segir Alvar Barreto, utanríkisvidskiptaráö- herra Portúgals, en hann kemur í opinbera heimsókn til íslands 9. júlí nk. LLssabon, 27. júní. Frá blaóamanni Morpin- blaósins, Jóbönnu Kristjónsdóttur. setu þar. Sagðist hann óttast að þetta yrði til að byggð grisjaðist meira en þegar væri orðið. Mörg tún væru alveg ónýt og yrði að vinna þau upp sem nýtt land væri og tæki það mörg ár. „SAMSKIPTI Portúgala og fslend- inga hafa ekki byggst á hótunum fram til þessa og ekkert slíkt býr að baki íslandsforinni þann 9. júlí. Hins vegar verður því ekki neitað, að fréttaflutn- ingur af hinum margumtalaða EFTA- fundi í Visby hefur verið töluvert mis- vísandi, svo ekki sé meira sagt. í EFTA-samningi eru veitt tollfríðindi af iðnaðarvörum, en hvergi eru lög fyrir, að þau séu einnig veitt af fiskaf- urðum eða landbúnaðarvörum. Því er það fjarri öllum sanni, að Portúgalir séu að brjóta lög og íslendingar mega gæta sín að þyrla ekki upp slíku mold- viðri þegar lýstur mörgu saman í senn, svo sem miklum fjárhagsmunum og tilfinningum, þannig að menn fái ekki greint kjarna málsins. En nú er sem- sagt ráð að bretta upp ermarnar og finna lausn, sem sæmir okkur báð- ura.“ Þetta sagði Alvar Barreto, utan- ríkisviðskiptaráðherra Portúgals, í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins, á skrifstofu sinni hér í Lissabon síðdegis á miðvikudag. Eins og kunnugt er kemur Barreto til íslands þann 9. júlí, ásamt fjór- um öðrum Portúgölum, til viðræðna um viðskipti landanna. Hann kvað rétt, að það kæmi fram, að heim- sókn þessi hefði verið ákveðin fyrir Visby-fundinn, það hefði verið viðskiptaráðherra Islands, Matthías Mathiesen, sem hefði fært þetta í tal við hann á fundi í Luxemborg. „Portúgalir hafa orðið að leggja slíkar byrðar á sitt eigið fólk, að það er nánast óbærilegt ástand hér,“ sagði Barreto. „Skuldir okkar við útlönd eru einhverjar hinar mestu í heimi á hvern íbúa.“ Þeir hafa ný- lega farið í heimsókn til Japans og Bandaríkjanna, að hans sögn, og leggja aukið kapp á að efla utanrík- isviðskipti Portúgals. Hann sagði, að Portúgalir hefðu gert þessa samninga við Norðmenn og Kanadamenn, um að viðkomandi tollur verði aðeins 3% í stað 12%. „Erindi okkar til íslands er nú með- al annars að finna leiðir til þess að íslendingar fái einnig þessa lækkun, en það hefur aldrei komið til tals að krefjast fiskveiðiréttinda af íslend- ingum, okkur er vel kunnugt um hvað íslendingar glíma við mikla erfiðleika á því sviði nú,“ sagði Barreto. Hann sagði, að stjórnin hefði ákveðnar tillögur, sem vonandi yrði hægt að ræða í bróðerni og vinsemd. Hann hló við, þegar hann var inntur eftir því í hverju efni þeirra væri fólgið, „það væri nú ekki viðkunn- anlegt, að ráðherrar ykkar læsu það fyrst í blöðum, sem við höfum enn ekki kynnt þeim,“ sagði hann. í framhaldi af því rifjuðum við upp, að mikið átak hefði verið gert í að rétta þann halla, sem hefur verið árum saman á viðskiptum Portú- gala við ísland, árið 1978. Þá var m.a. samið um olíukaup, togara- smíði o.fl. Hvort farið yrði inn á þær brautir nú myndi koma í ljós, „hins vegar viljum við ekki liggja undir því, að við mismunum Islend- ingum eða brjótum EFTA-lög. Við erum að setja aftur á skatt sem hafði lagagildi, en var síðan felldur tímabundið niður eftir 1974, og við gerum þetta af þeirri nauðsyn, sem blasir við hverjum þeim sem vill kynna sér málin af sanngirni," sagði Barreto að lokum. Nánar verður greint frá viðtali blm. Morgunblaðsins við Alvar Barreto og fleira varðandi portú- gölsk málefni síðar. vinnuútgerðin hefur í krafti stærð- ar Sambandsins átt greiðari aðgang að fjármagni en einkaútgerðin. Það skiptir auðvitað máli nú að tryggja það, að fyrirtæki í sjávarútvegí njóti sömu aðstöðu burtséð frá þvi í hvaða rekstrarformi þau eru. Þetta er eitt af þeim verkefnum, sem glíma þarf við. 4. Hvað við tekur um áramótin ræðst auðvitað mest af því hvað gerist í haust og með hvaða hætti samningar takast á milli stjórnar- flokkanna um mótun áframhald- andi stefnu í efnahags- og atvinnu- málum." Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra: Verðbæturnar ekki styrkur „ÞAÐ ER alls ekki gert ráð fyrir beinu framlagi frá ríkisstjórninni í þessu efni, heldur millifærslum innan sjávarútvcgsins. Það er því ekki um neina styrkveitingu til sjávarútvegsins að ræða,“ sagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra, er Morg- unblaðið innti hann eftir því, hvernig fjármagnað yrði 100 milljóna króna framlagið, sem vilyrði hefur verið gef- ið fyrir vegna aukinna uppbóta á fisk- verð. „Þetta verður greitt með láni úr hinni almennu deild Aflatrygginga- sjóðs til að byrja með. Það er búið að skoða þetta tölvert, en ég get ekki rætt um það núna. Þetta nægir í ár og það er þarna umfram fé, sem sjávarútvegurinn á og það þykir rétt að nota það á þessu stigi. En vitanlega þarf hin almenna deild að hafa fé, ef á þarf að halda og það á eftir að leysa endanlega," sagði Steingrímur Hermannsson. Kjartan Jóhannsson for- maður Alþýðuflokksins: Niðurgreiðsl- ur og styrkir alröng leið 1. „Ég held að þessi fiskverðs- ákvörðun og það, sem henni fylgir, muni ekki leysa þann vanda, sem við stöndum frammi fyrir í sjávar- útvegi. En hlutunum verði kannski fleytt áfram svolítið lengur. Sá grundvallarvandi, sem menn eiga við að stríða, er að öllu leyti óleyst- ur. Það er slæmt að hrekjast svona áfram eins og menn virðast vera að gera nú. 2. Almennar niðurgreiðslur eða almennir styrkir til atvinnugreina eru náttúrlega alröng leið og milli- færslur af því tagi, sem menn hafa verið að feta sig inn á undanfarin ár í gegnum sjóðakerfi og með erlend- um lánum að bakhjarli, eru alröng leið og stórhættuleg. 3. Ég held, að jafnt fyrir sem eftir þessa ákvörðun sé staða sjávarút- vegs á íslandi þannig, að tap undan- farinna ára þýði, að mjög mörg af þessum fyrirtækjum eru í raun að verða eignalaus. Það er að segja, skuldirnar eru orðnar næstum jafn- háar og eignir mjög margra fyrir- tækja. Það er náttúrlega mjög al- varleg þróun. Fiskverðsákvörðunin, sem nú hefur verið tekin, breytir ekki þessu grundvallaratriði og ég held að staða veiðanna og vinnsl- unnar samanlagt breytist lítið við þessa ákvörðun. Hún léttir aðeins undir hjá útgerðinni, en hvernig vinnslunni tekst að standa undir því, vitum við ekki. En ég geri þá auðvitað ráð fyrir því, að ríkis- stjórnin standi við þá stefnu sína að vera með stöðugt gengi. 4. Ef að líkum lætur og ef nokkuð mark má taka á því, sem hefur verið að gerast að undanförnu, tekur önn- ur bráðabirgðalausn við af þessari bráðabirgðalausn um næstu ára- mót. Það virðist vera það, sem ein- kennir stjórnarfarið í þessari grein og reyndar á fleiri sviðum, að menn bjargi sér á bráðabirgðalausnum, fleyti sér áfram á þeim og ef að líkum lætur verður það framhald- ið.“ Óskar Vigfússon, forseti Sjómannasambands íslands: Ekki hægt að ná lengra 1. „Varðandi þessa fiskverðs- ákvörðun tel ég, að með því að full- trúi sjómanna hafi samþykkt þessa verðhækun, hafi það verið af þeirri einföldu ástæðu, að við töldum tryggt, að sú hækkun kæmi til skipta fyrir sjómenn. Við teljum jafnframt að ekki hafi verið hægt að ná lengra en raun ber vitni. 2. Um millifærslur í formi verð- bóta vil ég segja, að sjálfsögðu er það ekki rétt leið. En með tilliti til þess, sem að sjálfsögðu skiptir sjó- mannastéttina megin máli, er að millifærsluleiðirnar, sem því miður hafa verið reknar mjög óspart, hafa leitt það af sér að klórað hefur verið í sífellu í skiptakjör sjómanna og útvegsmanna, tel ég að stjórnvöld hafi gengið of langt. 3. Ég vil taka það fram, að ég tel stöðu sjómannastéttarinnar í dag vera fyrir neðan allar hellur. Ég hef látið það koma fram opinberlega, að ég tel að sjómenn séu orðnir lang- þreyttir á þeirri gífurlegu kjara- skerðingu, sem þeir hafa orðið fyrir á undanförnum árum. Ekki aðeins af náttúrulegum ástæðum, aflasam- drætti, sem þeir hafa ekki fengið bætt upp. Ég tel að þó staða sjó- manna sé þannig í dag verði þeim ekki kennt um það, að staðan í sjáv- arútveginum í heild hefur sjaldan verið verri. 4. Ég geri ráð fyrir því og það er gert ráð fyrir því af hálfu Sjó- mannasambandsins, að ræða við fulltrúa sjómanna og sjómenn sjálfa vítt og breitt um landið. Við erum á yfirreið um landið, menn ur stjórn Sjómannasambandsins, til að ræða við sjómenn og ég held, að ég megi fullyrða, að sú niðurstaða, sem þegar er orðin í þeim viðræðum, hvetji okkur til að bjarga því, sem bjargað verður fyrir hönd sjó- mannastéttarinnar. Sú barátta hefst um áramótin.“ Gísli Konráðsson, fram- kvæmdastjóri ÍJtgerðar- félags Akureyringa: Fært úr öðrum vasanum í hinn 1. „Hún er spor í áttina að rétta hlut útgerðar og sjómanna, en fjarri því að nægja til þess, að útgerðin komist á réttan kjöl. Auk þess er það fiskvinnslan, sem verður að borga brúsann, sem sannarlega mátti ekki við því að byrði hennar væri þyngd. 2. Millifærslur eru út af fyrir sig réttlætanlegar, ef einhvers staðar er fé að fá til slíkrar notkunar, en ég fæ ekki séð hvar slíkir sjóðir eru innan sjávarútvegsins. 3. Það er erfitt að meta það. Hjá Útgerðarfélagi Akureyringa er áætlað tap á útgerð fyrstu fimm mánuði ársins 20 milljónir króna og auk þess umtalsvert tap á fisk- vinnslu. I heildinni breytist þetta lítið, þar sem fært er úr öðrum vas- anum í hinn. Hins vegar er rétt að geta þess, að þessi lélega afkoma, bæði á sjó og landi, stafar fyrst og fretnst af samsetningu afla þar sem karfi er aðal uppistaðan. Dæmið liti út á allt annan veg, ef um þorskveiði væri að ræða. Þá held ég að ekki þyrfti svo mjög að kvarta, það er að segja, ef markaðir haldast eins og að undanförnu og ekki verður um offramleiðslu að ræða. 4. Það veit Drottinn einn. Ef hann beinir göngu þorsks á mið okkar, held ég að sæmilega bjart sé fram- undan.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.