Morgunblaðið - 28.06.1984, Page 26

Morgunblaðið - 28.06.1984, Page 26
26T" MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNl 1984 Góð spretta í Reykhólasveit Midhúsum í júní. VORIÐ HEFUR verid hlýtt og Nokkrir skiptinemar ásamt Stefaníu Harðardóttur, framkvæmdastjóra ASSE. Námskeið fyrir skiptinema á vegum ASSE NÝLEGA var haldið tveggja daga námskeið fyrir ungl- inga sem í sumar fara sem skiptinemar til Bandaríkj- anna og Kanada á vegum ASSE (American Scandinav- ian Student Exchange). Á þessu námskeiði var fjallað um ýmislegt sem talið er nauðsynlegt fyrir skiptinemana að vita áður en haldið er af stað. Sagt var frá bandarísku þjóðlífi og hvernig best væri fyrir unglingana að kynna ísland, haldið var námskeið í leikrænni tjáningu og undirstöðuatriði í ræðumennsku voru kennd. Einnig komu fyrrverandi skiptinemar og sogðu frá reynslu sinni. Bændahátíð Snæfellinga SljkkÍHhólmi, 24. júní. grassprettu miðar vel áfram. Al- mennt mun þó sláttur ekki hefjast hér fyrr en eftir mánaðamót. Ein- staka bóndi mun þó byrja í þessari viku og samkvæmt samtali við Stur- laug Eyjólfsson, Efri-Brunná í Saurbæ, mun hann hefja slátt um 20. þ.m. Hótel Bjarkarlundur opnaði fyrir hvítasunnu og hefur Kaupfélag Króksfjarðar tekið hóteliö á leigu af Gesti hf. og er það rekið í sumar sem Edduhótel. Hótelstjóri er María Játvarðardóttir frá Miðjanesi. I vor fæddist þrílit gimbur á Grund í Reykhólasveit og er eigandi hennar Lilja Þórarinsdóttir. Gimbr- in er hvít, mórauð og svört og er hin skautlegasta. Það mun vera frekar sjaldgæft, erfðafræðilega séð, að sauðfé sé þrílitt og væri fróðlegt að frétta af slfkri fjáeign manna. Bún- aðarblaðið Freyr hefur sagt frá þrí- litum hrút í eigu Jóns A. Guð- mundssonar, bónda í Bæ í Króks- firði. Aðalfundur Kaupfélags Króks- fjarðar var haldinn 9. júní og var heildarsala á árinu 1983, 30,8 millj- ónir króna og var tekjuafgangur 17 þúsund krónur. Hörð gagnrýni kom á þá sem gera aðför að dreifbýli og minnt var á þá staðreynd að 4 til 5 fjölskyldur í þéttbýli hafa lífsvið- urværi af framleiðslu eins bónda. Reykjavík er meira en sveitarfélag. Hún er höfuðborg þjóðarinnar og hefur skyldur við íbúa alls landsins. Kaupfélagsstjóri er Friðbjörn Ní- elsson. Reykhólaskóli starfaði í öllum bekkjardeildum í vetur og voru nemendur um 60. Jens Guðmunds- son lætur nú af störfum vegna ald- Nöfn misrituðust ÞAU mistök áttu sér stað í blað- inu sl. þriðjudag að í frétt um veit- ingastaðinn Hellinn misrituðust eftirnöfn tveggja eigenda staðar- ins. Morgunblaöið biðst velvirð- ingar á þessum mistökum en rétt nöfn eigendanna eru Gunnar Stef- ánsson og Leifur Hannesson. MIKIÐ hefir verið hér um ferða- menn og ráðstefnur það sem af er sumri og hefir hótelið hér haft mikið að gera. Þá má benda á að helgar- pakkar hótelsins hafa gefist vel og allir verið ánægðir. Mikið er um að fólk ferðist um og skoði eyjarnar og þykir það hið mesta sport. Nú er gott veður þó ekki sé með hlýjasta móti og er urs en hann hefur starfað við Reykhólaskóla frá upphafi. í vetur var valgrein sjóvinna og læra nem- endur að setja upp net og ganga frá þeim. Félagslíf var gott miðað við að- stæður og unnu til dæmis nemendur að skreytingu á skólanum undir stjórn Olafs Ellertssonar, smíða- kennara. Skólastjóri er Hugó Ras- mus. Lítið sem ekkert hefur verið um mink í vor og hafa þeir Eyjólfur Rósmundsson og Guðmundur Bjarnason séð um eyðingu minka undanfarandi vor. Þegar góðir veiði- menn eru annars vegar er þaö Ijóst að útrýma má meindýrum sem minki á stórum svæðum. Svartbaki hefur fækkað stórum og eiga þeir félagar ásamt Páli Leifssyni stóran þátt í þeirri þróun hér. Hrafni fjölgar hér ört og er ekki lengur sjaldgæft að sjá þá fljúga saman 20 til 60. Þeir eru hinir mestu vágestir í öllu fuglalífi og ótrúlega fundvísir á hreiður fugla enda mikl- ir eggjaræningjar. Orsök fjölgunar á hrafni er sorphaugamenning okkar íslendinga. Tófu virðist fara fjölgandi á Vest- fjörðum enda lítt farið að hugsa um grenjaleit fyrr en fjölgun verður það mikil að hún fer í auknum mæli að drepa sauðfé. Samkvæmt upplýsing- um frá Samúel Zakaríassyni í Djúpadal náði hann 11 tófum í vet- ur. Þrátt fyrir hið góða vor virðist arnarvarp hafa gengið misjafnlega. Nær var búið að útrýma þeim úr tölu varpfugla. Vestfirðingar virð- ast hafa skilið betur samspil náttúr- unnar og eru ekki sáttir við afskiptasemi þeirra sem fyrir löngu hafa drepið sinn örn. Breiðafjörður er paradís æðar- fuglsins og samspil manns og fugls er með ágætum. Ef til vill súrnar einhverjum það í augum að það þarf ekki að drepa æðarfugl til þess að hafa af honum fullar nytjar. Sennilega komast fáir í eins góða snertingu við lífríki landsins og þeir sem þurfa að umgangast æðarvarp. Takist að halda friði í æðarvarpi þá er það líka griðland fyrir aðrar fuglategundir. _ Sveinn það vel notað. Undanfarin sumur hafa verið vætusöm og má það einnig segja um það sem af er sumri, það er ekki of mikið af þurrum dögum. Baldur hefir þeg- ar hafið sumarferðir. Sunnudagar eru svo lausir og ætlaðir ferðahóp- um og vonandi nýtast þeir vel, en allt er undir veðri komið. Arni. BÆNDAHÁTÍÐ Snæfcllinga var haldin í gærkveldi að hinu glæsilega félagsheimili Helgfellinga að Skildi. SUMARGLEÐIN, sem aldrei hefur verið hrcssari, er nú að leggja land undir fót og ætlar að ferðast vítt og breitt um landið í sumar, fjórtánda árið í röð. Að venju verður grín, glens og gaman í fyrirrúmi, og að lokinni tveggja klukkustunda skemmtidagskrá, verður dúndrandi dansleikur fram eftir nóttu. Sumargleðin er fyrir löngu orð- in að föstum fjörpunkti í tilver- unni hjá fólki, enda er Sumargleð- in skipuð úrvalsliði íslenskra skemmtikrafta. Má þar nefna Ragnar Bjarnason, Bessa Bjarna- son, Magnús ólafsson, Ómar Ragnarsson, sem í ár heldur upp á 25 ára skemmtanaafmæli sitt. Nýliðinn í hópnum er Hemmi Gunn og ekki má gleyma þeim Karli Möller, Jóni Sigurðssyni, Stefáni Jóhannssyni og Eyþóri Stefánssyni. Sumargleðin verður á fullri ferð með fjörið og þess vegna er kjörið Þar var sameiginlegt borðhald með kaffi og kökum. Fjölmennt var að venju. að hafa rallý-kappann Jón R. Ragnarsson við stjórnvölinn. Sumargleðin tryllir af stað í Stapa föstudaginn 29. júní og laugardaginn 30. júní í Vest- mannaeyjum. Sumargleðimenn heimsækja síðan aðra landshluta og stefnt verður að því, að einskær og einstök sumargleði ríki meðal þjóðarinnar í allt sumar. Þá er nýkomin út hljómplata með Sumargleðinni, sem jafn- framt er 100. hljómplata frá Steinum hf. og verða lög af plöt- unni kyrjuð af krafti á skemmtun- um Sumargleðinnar. Bingó og gjafahappdrætti með glæsilegum vinningum verða gestum til gleði og sérstakur Sumargleðidans verður stiginn og þá verður gam- an, þegar allir dansa saman. Sumargleðin verður í Stapa á föstudag og í Vestmannaeyjum á laugardag. (Fréttatilkynning.) Snæfellingar hafa haldið slíka hátíð víðsvegar um héraðið und- anfarin ár og hefir ekkert ár fallið úr. Urðu þeir fyrstir héraða til að efna til slíkrar hátíðar. Leifur Jó- hannesson, sem nú lætur af störf- um sem ráðunautur hér eftir 25 ára starf, hélt ræðu og kvaddi hér- aðsbúa og þakkaði samfylgd lið- inna ára. Kór Snæfellingafélags- ins var mættur á hátíðina og söng nokkur lög, Árni Helgason skemmti með vísum og gaman- vísnasöng við undirleik Hafsteins Sigurðssonar en þeir félagar hafa oft skemmt sýslubúum. Var að þessu gerður góður rómur. Hópur harmonikkuleikara úr Stykkis- hólmi, sem æft hefir í vetur, lék við góðar undirtektir og síðan var stiginn dans. Fréttaritari. Prentvillur í auglýsingu í AUGLÝSINGU í Morgunblaðinu í gær og fyrradag misritaðist númer í Happdrætti Krabba- meinsfélagsins. Vinningsmiðinn, sem Mercedes Benz kom upp á, var númer 134638, en sjú sjö stafa tala, sem birtist í auglýsingunum var röng. Þá voru vinningsnúmer, sem hlutu Sinclair Spectrum- tölvur einnig röng, en rétt númer eru: 4657 og 153975. Þá kom bif- reið að verðmæti 320 þúsund krón- ur upp á miða númer 24626, en ekki á fjögurra stafa númer, sem birt var í auglýsingunum. Hlutað- eigendur eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Mikiö um ferðamenn og ráðstefnugesti Stykkishólmi, 24. jóni. Af einskærri sumargleði Lokanir i Háfadjúpi og við Hrollaugseyjar Sjávarútvegsráóuncytið hefur nú ákveðið lokun tveggja veiðisvæða fyrir Suðurlandi. Humarveióar verða bannaðar í Háfadjúpi til vertíðar- loka og togveiðar bannaðar við Hrol- laugseyjar frá 1. júlí til 1. september á þessu ári. í frétt frá ráðuneytinu segir, að Háfadjúpi hafi verið lokað vegna mjög hás hlutfalls smáhumars í afla, en Hrollaugseyjasvæðinu sé lokað í því skyni að vernda síld, sem hrygnir á þeim slóðum. Lokaða svæði í Háfadjúpi af- markast af eftirfarandi punktum: 1. 63°23‘30“N 19°58‘53“V 2. 63°21‘49“N 19°48‘05“V 3. 63°14‘32“N 19°55‘16“V 4. 63°16‘23“N 20°06‘03“V Lokaða svæðið við Hrollaugs- eyjar afmarkast af eftirfarandi punktum: a. 64°10;8“N 15°42‘6“V b. 64°05‘0“N 16°05‘0“V ' Það gengur á ýmsu í myndinni um stúlkurnar frá Kaliforníu, sem Nýja bíó frumsýnir innan skamms. Stúlkurnar frá Kaliforníu Nýja bíó frumsýnir a næstu dög- um myndina Stúlkurnar frá Kali- forníu, (California girls), bandaríska mynd frá MGM. Myndin er sögð bráðskemmtil- eg, en hún segir frá tveimur hress- um stúlkum, sem hafa atvinnu af fjölbragðaglímu,(wrestling), í hvaða formi sem er, jafnvel í for- arpyttum, og segir einnig frá þjálfara þeirra, umboðsmanni og bílstjóra, sem leikinn er af Peter Falk. í öðrum hlutverkum eru Vicki Fredrick, Lauren Landon og Richard Jeackel. Leikstjóri er William Aldrich, (The Dirty Doz- en).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.