Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 27
MORGUNÍSLAÐIÐ, PIMMTUDÁGUR 28. JtJNf 1984
fkV
27
Á myndinni er starfslið Express-litmynda talið frá vinstri: Guðrún Kristins-
dóttir, Axel Ólafsson, Eyjólfur Eyjólfsson, rekstrarstjóri fyrirUekisins, og
Dagný Ólafsdóttir.
Nýtt framköllunar fyr-
irtæki fyrir
NÝTT framköllunarfyrirUeki fyrir
litmyndir var opnað á dögunum í
húsi Hótel Esju og nefnist það
Express-litmyndir. Rekstrarstjóri
fyririUekisins er Eyjólfur Eyjólfsson
en Dagný Ólafsdóttir veitir því for-
stöðu.
Eins og nafn fyrirtækisins
bendir til býður það upp á hraða
litmyndir
litmyndaframköllun og er mynd-
um lofað tilbúnum 60 mínútum
eftir að filman hefur verið afhent.
í fréttatilkynningu segir að með
tölvubúnaði sem fyrirtækið hafi
yfir að ráða sé hægt að fylgjast
með hverri mynd fyrir sig og
þannig hægt að tryggja betur
gæði myndanna.
Staðfesting Flórens-sáttmála:
Niðurfelling gjalda
af vísindatækjum
f FRÉITABRÉEI Rannsóknaráðs
ríkisins kemur fram að þann 15.
mars sl. ályktaði Alþingi að feia rík-
isstjórninni að staðfesta aðild fs-
lands að Flórens-sáttmála UNESCO.
Þá var þann 4. maí samþykkt
breyting á lögum um tollskrá sem
heimilar niðurfellingu aðflutn-
ingsgjalda af vísindatækjum og
búnaði til viðurkenndra rann-
sóknaaðila. Með þessu næst lang-
þráður áfangi í hagsmunabaráttu
til eflingar rannsókna- og þróun-
arstarfsemi fyrir rannsóknastarf-
semina i landinu. Rannsóknaráð
vakti fyrst máls á þessu árið 1978
og unnið hefur verið að framgangi
þessa máls síðan. Alþingismenn í
Rannsóknaráði hafa lagt fram
þingsályktunartillögur og frum-
varp um breytingar á lögum um
tollskrá varðandi þetta mál á
tveim síðustu þingum, sem nú
hafa verið samþykkt. Til skýr-
ingar fyrir þá sem hafa ekki kynnt
sér þetta mál nær þessu sáttmáli
til fimm flokka af vörum, sem hér
segir:
1. Bækur, prentað mál og skjöl.
2. Listaverk og safngripir, sem
hafa kennslu-, vísindalegt eða
menningarlegt gildi.
3. Myndir og hljóðritanir til
kennslu-, vísinda eða menning-
armála.
4. Vísindatæki og áhöld.
5. Vörur handa blindum.
Aðflutningsgjöld af liðum 1—2
og 5 hafa þegar verið felld niður á
undanförnum árum, þótt formleg
aðild fslands væri ekki fyrir
hendi. Eftir voru þó aðflutnings-
gjöld af vísindatækjum og áhöld-
um svo og aðflutningsgjöld af
hljóðritunum og efni til hljóðrit-
unar.
Til þess að greiða fyrir aðild ís-
lands að Flórens-sáttmálanum var
því nauðsynlegt að gera breyt-
ingar á lögum um tollskrá. Enn er
óvíst með hvaða hætti fram-
kvæmd verður háttað með viður-
kenningu á hverjir teljast rann-
sóknaaðilar, en sjálfsagt er fyrir
þá sem telja sig stunda rann-
sóknir að leita staðfestingar hjá
fjármálaráðuneytinu sem fyrst á
heimild til að flytja inn tæki og
búnað til rannsókna án aðflutn-
ingsgjalda.
Bílaleiga með nýju
sniði tekur til starfa
NÝ BÍLALEIGA, Bílalán hf„ hef-
ur tekið til starfa og mun hún
bjóða bæði nýja og gamla bíla til
leigu. Nýju bílarnir eru af gerð-
inni Fiat-Zastawa, en þeir gömlu
t.d. Chevrolet Bel Air 1953,
Chrysler Windsor 1947, Lincoln
1947, Ford T 1927 o.fl. Reiknað er
með að leigja gömlu bílana til
auglýsinga- og kvikmyndagerðar, í
brúðkaup o.fl. og munu þeir aðeins
verða leigðir með bílstjóra.
Bílaleigan er til húsa að Bílds-
höfða 8 í Reykjavík og eru þar
einnig seldir notaðir tjaldvagnar,
hjólhýsi, hesta- og fólksbílakerrur
o.fl. Framkvæmdastjóri er Andri
Bachman.
Þess má að lokum geta að Bíla-
lán hf. mun verða með Rolls Royce
til leigu fyrir umboðsmenn þeirra,
íslenska eðalvagna.
Fyrsta kúluhúsið í Eyjum
Vestmannaeyjum 21. júní.
ÞETTA sérstæða hús hefur verið
að rísa af grunni og taka á sig
mynd í miðbænum síðustu mánuð-
ina. Hefur byggingarlagið vakið
nokkra athygli heimamanna og
gestkomandi og gengur húsið al-
mennt undir nafninu kúluhúsið,
þó réttara væri eflaust að kalla
það hálfkúluhús eða þá hvolfhús.
Hvað sem fólk vill kalla húsið, þá
er það nú risið og í því hafa verið
opnaðar þrjár verslanir en auk
þess verður í húsinu íbúð á efri
hæð.
Eigendur hússins eru hjónin
Kristján Bogason og Jóhanna
Andersen sem reka í húsinu tvær
verslanir, raftækjaverslun og
snyrtivöruverslun. Þá er Eyjabær
með tískufata- og hljómtækja- frá Trésmiðju Þórðar í Vest-
verslun í kúluhúsinu. Húsið er mannaeyjum.
byggt úr sérsmíðuðum einingum — hkj./ljósm. Sigurgeir.
Kontrapúnktur
í Ánanaustavör
eftir Pétur
Pétursson
Óhljóðalýðurinn í kvöldklukku-
gili sjónvarpssafnaðarins heldur
áfram hryllingssöngskrá sinni
milli táknmáls og kvöldfrétta. Þá
er nú ekki verið að vanda þjóðinni
kveðjurnar.
Púkinn á fjósbitanum heldur á
tónsprota, en Trunt, trunt og tröll
í fjöllunum slá málmgjöll og
stórkeröld og hrína engilsaxneska
frygðarsöngva framan í aldamóta-
kynslóðina, sem rær fram í gráðið
á rúmbálkum elliheimila, dösuð á
Dasi, og raular með sjálfri sér um
blessaða sveitina sína, við fjalla-
vötnin fagurblá og hafið bláa haf-
ið, en barnabörnin syngja „Atti,
Katti Nóa“ með háskólafóstru í
dagvistun og hafa ekki séð ömmu í
hundrað ár. Á kvenfrelsisdaginn,
19. júní, spangóluðu „sexpístólur"
sjónvarpsframkvæmdastjórnar og
„tækni“manna hans. Enginn söng
um kvenfrelsi né jafnrétti. Þaðan
af síður um konuna sem kyndir
ofninn minn, eða Maju litlu með
ljósa hárið, sem líkist helst álfa-
mær. Hamrahlíðarkórinn var
gerður útlægur. María Markan,
Þuríður Pálsdóttir, Guðrún
Kristinsdóttir og Jórunn Viðar
bannsungnar. Svo ekki sé nú talað
um Guðrúnu Á. Símonar, Selmu
Kaldalóns og aðrar söngvadísir í
laufléttri þungavikt. óskalög og
ljóð frú Guðrúnar Pétursdóttur,
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, Lauf-
eyjar Valdimarsdóttur, Bjargar
Einarsdóttur, Valborgar Bents,
Þórhildar Þorleifs, Önnu frá
Moldnúpi og Stóru-Borg, Estherar
Guðmundsdóttur hvað þær hétu
og heita allar sem staðið hafa i
fylkingarbrjósti jafnréttisbaráttu
kvenna máttu alls ekki heyrast.
„Tækifæris“-músik sjón-
varpsstjórans var ekki ætluð þess-
um degi, né baráttumálum
kvenna. Veik von er um að íslensk-
ur söngur fái að hljóma á peysu-
fatadegi Verslunarskólans,
hvenær sem það verður.
Formaður útvarpsráðs, sem
jafnframt er forseti borgarstjórn-
ar, lét þess getið, að fyrirhugað
væri að kynna íslenska tónlist-
armenn erlendis, í sjónvarpsstöðv-
um. Kvaðst hann vilja kosta til
þess miklu, í landkynningarskyni.
Það bar í tal á fjölmennum vinnu-
stað, hvort eigi væri ráðlegt að
formaður útvarpsráðs beitti sér
fyrir því í fæðingarborg sinni,
Reykjavík, að kynna sjónvarps-
stjóranum á Laugavegi 178 ís-
lenska tónlistamenn. Hvort ekki
væri rétt að fá Skúla Halldórsson,
hjá Strætó, til þess að koma með
vagnfylli af tónskáldum og söng-
lagahöfundum, Skerjafjörður —
Laugarás, leið 5, opið að aftan.
Langafi hans, Jón Thoroddsen,
kvað um það ljóð i sögu sinni
„Piltur og stúlka" er niðurlæging
íslenskrar tungu var hvað mest.
Þá var niðhöggurinn danskur búð-
armaður og sporgöngumenn hans,
„tæknimenn" á Löngustétt og dón-
ar sem himdu diskinn við, en hafa
nú tekið að sér hlutverk Kristjáns
búðarmanns, „Gud, Stine,“ —
„Hafðu það fallegur stúlkurinn
mín“.
Sjónvarpsstjórinn og tækni-
menn hans virðast ekki hafa
spurnir af því að til séu íslenskir
tónlistarmenn og söngvarar. Samt
eru greiddar 2 milljónir króna á
ári hverju fyrir „klukkutónlist“
sjónvarpsins.
Er ekki kominn timi til þess að
einhverjir setji punkt. Mætti
gjarnan vera kontrapúnktur.
í gömlum fræðum segir frá þvi
að Ánanaustavörin hafi verið
nauðlending Selsinga þegar brim-
aði við hvern Bölklett i Reykjavík.
Hvað segja Ánanaustamenn um
lendingarhorfur íslenskrar tungu
í sjónvarpinu?
Hver var það sem sagði: Róið
Íslendingar. Nú er lag?
Pétur Pétursson þulur.
Hvemig litist þér á
sumarleyfisdvöl á fallegu
baöstrandarhóteli
Þeim fer sífellt fjölgandi farþegum
Faranda, sem hétfa farið í ánægjulegar
sumarleyfisferðir til Grikklands. Við
höfum útvegað farþegum okkar góð
hótel í Aþenu eða á baðströndum
skammt frá borginni.
Við mælum sérstaklega með Grikk-
landsferð í sumar. Ferðamöguleikar
með flugi alla föstudaga. Hafið samband
sem fyrst.
Waiandi
Vesturqötu j, sími 17445