Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1984
31
Eigum við að lfta á
slys í umferðinni sem
sjálfsagðan hlut?
— eftirJón
Þorgeirsson
Umferðarmál okkar eru í mesta
ólestri í dag þrátt fyrir Umferð-
arráð, umferðaráróður, umferðar-
fræðslu og áróður um notkun bfi-
belta. Slysin halda áfram að vera
daglegt brauð, það má jafnvel
reikna fram í tímann hvað mörg
slys verða, hvað margir deyja,
hvað margir verða lamaðir og ör-
kumla alla ævi og hvað margir
verða fyrir minniháttar slysum,
sem flokka má jafnvel undir
beinbrot og fleira. Það þarf engan
að undra hvað slysin verða mörg í
umferðinni hjá okkur, mig undrar
mest að þau skuli ekki vera miklu
meiri, eins og umferðinni er hátt-
að. Maður má þakka sínum sæia
fyrir það að komast heilu og
höldnu heim úr umferðinni hvort
sem maður er akandi eða gang-
andi, það keppast allir við alla.
Það eru margir sem hreinlega ekki
þola að hafa bíla fyrir framan sig
og reyna þess vegna að fara fram
úr öllum bflum. Þannig vex hrað-
inn og spennan stig af stigi þar til
einhvers staðar verður stórárekst-
ur og jafnvel dauðaslys. Þannig
kemur umferðin mér fyrir sjónir f
dag. Það er ekki farið eftir neinum
hraðatakmörkunum né aðstæðum.
Sem dæmi get ég nefnt, að með-
fram sumum aðalgötum Reykja-
víkur eru skilti, sem stendur á
stórum stöfum 60 km (hámarks-
hraði). Þegar ég ek eftir þessum
götum á 60 km hraða er það varla
nokkur bíll sem ekki ek-
ur fram úr mínum bíl, eða skýst
hreinlega fram úr honum og sum-
ir jafnvel á yfir 100 km hraða.
Hvers vegna þarf þessi mikli
hraði að vera?
Hvers vegna er fólk að flýta sér
svona mikið?
Er þetta ekki orðið að vana hjá
fólki, það sér hina aka svona, því
þá ekki að aka eins og hinir. Svona
getur virðingarleysið fyrir lögum
og reglum orðið að vana. Er ekki
hægt að breyta þessum hugsun-
arhætti hjá ökumönnum? Það er
sárgrætilegt að vita til þess að
fjöldi ökumanna, sem eiga að hafa
mikla reynslu og þekkingu á um-
ferð, t.d. atvinnubílstjórar og
menn sem hafa ekið árum saman,
skulj ekki ennþá hafa lært að
virða umferðarreglurnar, þar á ég
aðallega við ökuhraðann.
Lögregluna sjálfa hef ég oftar
en einu sinni séð aka með of mikl-
um hraða án þess að hafa uppi
merki. Það er ekki von á góðu þeg-
ar menn, sem eiga að vera öðrum
til fyrirmyndar í umferðinni, haga
sér á þennan hátt. Það á ef til vill
eftir að verða líkt með umferð-
arhraðann og hundahaldið í
Reykjavík, að nógu mörg lögbrot
verði gerð að lögum. Það sem þarf
núna að gera er að komast fyrir
rætur þessa umferðarsjúkdóms.
Aðaleinkenni hans er hinn mikli
hraði í umferðinni.
Það má örugglega fækka um-
ferðarslysum um tugi prósenta ef
bílstjórum er ekki komið upp á
það að brjóta hraðatakmörkin. Ég
ætla að nefna dæmi um það
hversu þýðingarmikið það er að
halda hraðanum í umferðinni
niðri. Þegar umferðinni var breytt
í hægri stefnu í stað vinstri þá óku
allir fremur rólega fyrst í stað og
á urðu litil sem engin slys á fólki.
vetur þegar snjóaði sem mest
gekk umferðin hægar en venjulega
en þá urðu líka mun færri slys á
fólki þótt árekstrum fjölgaði
eitthvað vegna hálku, enda hafa
allir tekið eftir því, að þegar akst-
ursskilyrðin eru sem best þá fjöl-
gar stórum og smáum slysum til
muna. Nú finnst mér vera kominn
tími til að þessi mál verði tekin til
endurskoðunar og að litið verði
raunsæjum augum á þau.
Jón Þorgeirsson
„Það á ef til vill eftir að
veröa líkt með umferð-
arhraðann og hunda-
haldið í Reykjavík, að
nógu mörg lögbrot verði
gerð að lögum. Það sem
þarf núna að gera er að
komast fyrir rætur
þessa umferðarsjúk-
dóms. Aðaleinkenni
hans er hinn mikli hraði
í umferðinni.“
Bilbelti, bremsur og annan ör-
yggisbúnað er sjálfsagt að nota í
takt við umferðina og aksturinn,
en það eyðir ekki orsökinni að um-
ferðarslysunum, en það er þessi
orsök slysa sem við þyrftum að
uppræta, það gerum við með því
að minnka ökuhraðann, með því
að hraðatakmörkunum sé fylgt
eftir af löggæslunni og sektir
hækkaðar.
Halda þarf uppi fræðslu i öllum
skólum landsins, hvort sem það
eru barnaskólar eða framhalds-
skólar, þar sem megináherslan sé
lögð á að umferðarreglum sé
framfylgt af fremsta megni. Eins
þarf að koma því til leiðar að öll
fyrirtæki I landinu, sem hafa bíl-
stjóra í þjónustu sinni, þar tel ég
líka með leigubílastöðvar, taki
meiri ábyrgð á bílstjórum sínum,
þannig að ef sannast að bílstjóri
hjá einhverju fyrirtæki brjóti af
sér I umferðinni, þá geti fyrirtæk-
ið sem hann keyrir fyrir gefið
honum áminningu eða refsað hon-
um með því að visa honum úr
starfi, lengri eða skemmri tíma,
eftir því hversu brotið er alvar-
legt. Að lokum vil ég segja það, að
aka bíl er vinna, sem þarf að leysa
af hendi með mikilli vandvirkni, í
þeirri vinnu er nauðsynlegt að
hafa jákvætt hugarfar og vera í
góðu skapi, og síðast en ekki síst
aldrei að flýta sér.
Jón /'ofgeirsson starfar hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur.
Hefurðu PLÁSS fyrir þennan?
Frábær æfingabekkur í heimahús
Verö aöeins kr. 13.224
5^ 'k -r A
Glæsibæ, sími 82922.
Helgarboo
ítótels Stykkishólms
m.-Vi
GISTING MEÐ MORGUNVERÐI
1 NÓTT 1.340 KR. FYRIR MANNINN
2NÆTUR 1.995KR. ---1|--
3 NÆTUR 2.441 KR. -ii--
Skoðun á stærstu perlu íslenskrar náttúru. .
Ferð um Breiðafjarðareyjar kl. 13 á sunnudag,
stoppað 2 tíma í Flatey, komið til baka kl. 20.
Harmonika með í för.
SAUNABAÐ Á STAÐNUM.
HVÍLD OG HRESSING UM HELGINA.
Itótel Stykkishólmur
Sími: 93 8330