Morgunblaðið - 28.06.1984, Síða 32

Morgunblaðið - 28.06.1984, Síða 32
88 32 vm tKtn. ,8s fluoAQtrTMMra .GiqAjavtuoHQM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ1984 Við bjóðum ✓ \ikuferð London ámánu- kemur! firá kr. 15.834.- pr. mann. Innifalið flug, gisting og morgimmatur. Ferdaskrifstoían Farandi verdur med sérstakar vikuferdir (pakkaferðir) til Lundúnaborgar á hverjum mánu- degi í allt sumar. Verðið er afskaplega gott, — frá kr. 15.834*- pr. mann. Innifalið í verðinu er flug, gisting og morgunmatur. Auk þess útvegum við aðgöngumiða á hljómleika, í leikhús, á íþróttaleiki næturklúbba o.m.fl. Hægt er að velja á milh eftirfarandi hótela: Cavendish, Regent Crest, Leinster Towers, Park Lane. Komið og rabbið við okkur sem fyrst Pað er alltaf gaman að fa gott fólk í heimsókn. & rarandí Vesturqötu 4, sími 17445 Kaupmannahöfn: Skólahljómsveit Seltjarnarness í vinabæjarheimsókn Jónsliúsi, 14. júni. f GÆR komu hingað í Jónshús 30 kátir krakkar úr Tónlistarskóla Seltjarnarness ásamt stjórnanda sín- um, Skarphéðni Einarssyni, og 5 for- eldrum öðrum, Ara Ólafssyni, Birnu Björnsdóttur, Guðmundi Inga Jóns- syni, Hrafnhildi Guðmundsdóttur og Þórleifi Jónssyni. Spilar unga fólkið í lúðrasveit og hefur hópurinn verið í heimsókn í vinabæjum Seltjarnar- ness í Danmörku og Svíþjóð, Herlev og Höganás. Hópurinn fór að heiman sl. föstudag og gisti allar næturnar í Helsingör, en fór þaðan í ferðalög til vinabæjanna og til Kaup- mannahafnar. Hittu þau hér á karnevalið, skoðuðu Tívolí og dýragarðinn o.m.fl. eins og vera ber. I gær spiluðu þau á torginu í Herlev ásamt skólahljómsveit Tvedevang-skóla og fengu hinar beztu móttökur bæjarstjórnarinn- ar. í dag, miðvikudag, hélt lúðra- sveitin þrenna tónleika í Höganás, fyrst á grænmetistorginu, síðan við bæjarskrifstofurnar og um kvöldið við ráðhúsið. Voru þar sjónvarps- og útvarpsmenn meðal áheyrenda. Rómuðu fararstjór- arnir mjög móttökur bæjarstjórn- arinnar, sem hélt Seltirningum stórveizlu og sýndi þeim hið mark- verðasta i bænum. 15. júní munu hinir ungu tónlistarmenn, sem eru á aldrinum 7—17 ára, leika á torg- inu í Helsingör, og halda síðan heim eftir skemmtilega og lær- dómsríka ferð. G.LÁsg. Stjómir FÍM og SIM: Harma breytta stjórn- un Kjarvalsstaða MORGUNBLAÐINU hafa bor ist fréttatilkynningar annars vegar frá stjórn Félags íslenskra myndlistarmanna, FIM, og hins vegar frá stjórn Sambands ís- lenskra myndlistarmanna, SÍM, þar sem sem bæði félögin harma þá breytingu sem orðið hefur á stjórnun Kjarvalsstaða, þar sem áhrif listamanna eru nú stórum minni en áður. í fréttatilkynningu SÍM segir m.a. orðrétt: „Eins og kunnugt er hefur að undanförnu staðið yfir deila milli samtaka listamanna og meirihluta stjórnmálakjörinna fulltrúa í stjórn Kjarvalsstaða um nýja reglugerð um stjórn mynd- listarhúss Reykjavíkurborgar. Deilan á fyrst og fremst rætur sínar að rekja til þess, að hin nýja reglugerð rýrir hlut listamanna, tilnefndum af samtökum lista- manna, verulega frá því sem áður var.“ Ennfremur segir að á fundi borgarstjórnar hinn 5. júní sl., er umrædd reglugerð var borin upp og samþykkt, hafi Einar Hákon- arson listmálari, formaður stjórn- ar Kjarvalsstaða, borið stjórn FÍM á brýn pólitískan tilgang og' pólitiskar hvatir „með yfirvarp listarinnar að skjóli". Af þessu tilefni lýsir stjórn FÍM því yfir að flokkspólitísk sjónar- mið hafi aldrei ráðið eða haft minnstu áhrif á störf stjórnarinn- ar eða stefnumið. í fréttatilkynningu stjórnar SlM segir að sambandið harmi pólitískan málflutning i ofan- greindu máli, einkum í garð stjórnar FÍM.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.