Morgunblaðið - 28.06.1984, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984
33
Helgi Vilhjálmsson, eigandi „Kentucky fried chicken**, í hinum nýja stað á
Hjallabraut. Ljösm, Mbl./Júlíus.
Kjúklingastað-
ur flyst um set
Kjúklingastaðurinn „Kentucky
fried chicken“ hefur nú verið fluttur
f nýtt húsnæði á Hjallabraut 15 I
Hafnarfirði.
Á nýja staðnum eru sæti fyrir
94 gesti. Húsnæðið er á tveimur
hæðum og er barnastofa á neðri
hæðinni, þar sem börnin fá m.a.
að horfa á myndband. Ennfremur
er sú nýjung, að kjúklingaunnend-
ur geta keypt sér í svanginn án
þess að fara úr bílum sinum, þvi
kjúklingar verða seldir út um
söluop jafnt sem inni í matsal.
Eigandi „Kentucky fried chick-
en“ er Helgi Vilhjálmsson.
. MorKunblaúM/ÖUhir.
Islenzki hópurinn ásamt fararstjóra sínum.
Egilsstaðin
„Kkki tekið út með
sitjandi sældinni“
— segja krakkarnir sem nú undirbúa þátttöku
sína í alþjóðlegum sumarbúðum í Ölfusi
EgUaBtöAum. 22. júaí.
ÍSLANDSDEILD alþjóðlegu samtak-
anna CISV eða Childrens Internat-
ional Summer Villages efnir í fyrsU
skiptið til alþjóðlegra sumarbúða
barna hérlendis í sumar. Búðirnar
verða í Hlfðardalsskóla í Ölfusi dag-
ana 11. júlí til 5. ágúst og þangað
munu koma börn víðs vegar að úr
beiminum auk íslenskra krakka frá
Egilsstöðum.
Frá hverju þátttökulandi koma
fjórir krakkar til búðanna, allir
fæddir 1972, tvær stúlkur og tveir
drengir, auk fararstjóra. Þarna
munu Egilsstaðakrakkarnir
blanda geði við jafnaldra sína frá
Danmörku, Filippseyjum, Frakk-
landi, Kanada, Mexíkó, Noregi,
Póllandi, Spáni, Bretlandi og Fær-
eyjum.
„Auðvitað hlökkum við til,“
sögðu Egilsstaðakrakkarnir nær
einum rómi er tiðindamaður Mbl.
hitti þá sem snöggvast fyrir
skemmstu.
„Við erum nú annars dálítið
smeyk við tungumálaerfiðleika,"
sögðu strákarnir, þeir Óli Grétar
Sveinsson og Grímkell Sigurþórs-
son. „Líklega kunna hinir krakk-
arnir sem ekki koma frá ensku-
mælandi löndum ekkert meira í
ensku en við — en samt held ég að
það verði nú dálítið skrítið að
skilja Mexikanana," bætti Óli
Grétar við.
„Okkur mun nú örugglega ekki
leiðast,” sögðu stelpurnar, Hall-
dóra Sveinsdóttir og Heba Hauks-
dóttir, „við gerum okkur bara
skiljanleg með táknmáli ef ekki
vill betur,“ bættu þær við.
Þau fjögur kváðust hafa undir-
búið sig vel fyrir búðirnar undir
stjórn fararstjórans, Ingu Þóru
Vilhjálmsdóttur, tómstunda-
fulltrúa Egilsstaðahrepps.
„Við höfum æft islenska söngva,
tekið skyggnumyndir og safnað
hvers konar kynningarbæklingum
um land og þjóð,“ sögðu krakkarn-
ir. „Við höfum líka æft þjóðdansa
með aðstoð Þráins Skarphéðins-
sonar — og við höfum orðið okkur
úti um islenska þjóðbúninginn
hvert og eitt.“ „Já — og svo erum
við búin að handskrifa 70 bækur til
kynningar landi og þjóð — sem við
ætlum að gefa útlendingunum. Það
er sko ekki tekið út með sitjandi
sældinni að taka þátt í alþjóðleg-
um sumarbúðum," sögðu þessir
hressu krakkar. „Við vonum bara
að við verðum landi og þjóð til
sóma,“ bættu þau við, „og við
hlökkum alveg sérstaklega til að
hitta búðastjórann — hann Gunn-
ar K. Sigurjónsson," sögðu þau að
lokum.
Formaður íslandsdeildar CISV
er Vilbergur Júlíusson, skólastjóri
í Garðabæ.
— Ólafur.
eOirínn
TRYGGVAGÖTU 26
Hljómsveitin
KELTAR
leika
írska og skoska þjóölaga-
tónlist í kvöld frá kl. 22.00.
VID BJOÐUM:
í hádegc súpu, salatbar og heitt hlaðborö.
Á kvöidin:
Sérréttaseöill kl. 18.00—21.00.
Smáréttaseðill frá kl. 21.00.
OIW MÁNUD.—MÐVKUD. KU 1130-2330.
FMMTUDAGA KL 1130—014X1
FÖSTUDAGA OG LAUGARDAGA KL 1130—03-00.
SUNNUDAGA KL 1&00—0130
Allar veitingar.
Borðapantanasími 26906.
##
BÆARM BESTU KJOR
Ódýrar appelsínur, aðeins 27 kr. kg.
Tómatar aðeins 59 kr. kg.
'/i dilkar á grillið
139 kr. kg. Við kryddum.
Nautakjöt á heildsöluverði 45—55 % afsláttur
Buff 375 kr. kg.
Gullasch 327 kr. kg.
Fillet 490 kr. kg.
Svartfugl
aðeins 45 kr. stykkið
Svartfuglsegg valin,
25 kr. stk.
Lamb á grillið
verð frá 59,00 kr. kg
Innanlæri 370 kr. kg.
Roast beef 347 kr.
Nautahakk 10 kg.
175 kr. kg.
Tilboð helgarinnar
Svínalæri 149 kr. kg.
Svínaschnitzel 295
kr. kg.
SVÍNER OFSALEGTÁ GRILLIÐ
OPIÐ FIMMTUDAG TIL KL.8
OPIÐ FÖSTUDAG TIL KL. 8
LOKAÐ í SUMAR Á LAUGARDÖGUM
VISA KREDITKORTAÞJÓNUSTA
KJOTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.s. 6-86511