Morgunblaðið - 28.06.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNl 1984 35
Reyðarfjörður:
Tvöföld afmæl-
ishátíð 17. júní
RejrterflrM
TVÖFÖLD afmæli.shátíd var á Veður var heldur leiðinlegt 17.
Reyðarfirði 17. júní. Auk lýðveld- júní, rigning og rok, en um kl. 5
isafmælis var þess minnst að 100 e.h. stytti upp og var komið
ár eru frá því að kauptúnið tók að besta veður um kvöldið.
myndast. Gréta
Hefðbundin 17. júní hátíðar-
höld hófust kl. 10 um morguninn
með sundmóti UMF Vals. Þá fór
fram boðsund milli 17. júní
nefndar og slökkviliðsins. Eftir
hádegi var skrúðganga til kirkju
og hlýtt á messu. Að henni lok-
inni var gengið upp á íþróttavöll
þar sem ýmsir spreyttu sig á
leikjum og þrautum. Þar var og
haldið víðavangshlaup UMF
Vals sem er fastur liður hjá
þeim þennan dag. Eftir dagskrá
á íþróttavelli voru kaffi-
veitingar á Félagslundi, síðan
teiknimyndasýning og diskótek
fyrir börnin.
Hátíðardagskrá var í Félags-
heimilinu um kvöldið og hófst
kl. 8.30. Þar flutti Einar Bald-
ursson hátíðarávarp og kirkju-
kór Reyðarfjarðar söng undir
stjórn Guðmundar Magnússon-
ar. Flutt var samfelld dagskrá
um byggð og sögu Reyðarfjarð-
arkauptúns í 100 ár. Flutning
önnuðust Guðmundur Magnús-
son og Bryndís Steinþórsdóttir.
Þá flutti Helgi Seljan frumort
ljóð um Reyðarfjörð. Að lokum
söng Aðalsteinn Valdimarsson,
Eskifirði, einsöng. Meðal annars
lag og ljóð eftir Guðmund
Magnússon sem nefnist „Vor við
Reyðarfjörð".
Fjölmenni var á hátíðar-
dagskránni. Að lokum var öllum
Reyðfirðingum 14 ára og eldri
boðið á dansleik, var hann vel
sóttur og öllum til mikils sóma.
Tvær sýningar voru í Grunn-
skólanum, sýning á málverkum
frá Listasafni Alþýðu og sögu-
sýning, þar sem sýndar eru
myndir og ýmislegt sem tengist
sögu Reyðarfjarðar. Sýningarn-
ar voru opnar til föstudags 22.
júní. Sögusýninguna setti upp
Guðmundur Magnússon, en
hann hefur mjög ötullega unnið
að söfnun á gömlum myndum og
heimildum um sögu byggðar-
lagsins.
Tímarit
MM
ÞRIÐJA hefti Tímarits Máls og
menningar á árinu er nýkomiö út.
Aðalgreinin er eftir Árna Bergmann
um útópíur frá Thomasi More til
George Orwells og nefnist hún Stað-
leysur, góðar og illar. Af öðru efni
má nefna grein norska mann-
fræðingsins'' Anders Johansens
Draumur um betri tíma, sem fjallar
um ólíka tímaskynjun fólks, Ijóð eft-
ir Elías Mar, Ólaf Jóhann Sigurðs-
son o.fl., grein Árna Óskarssonar
um raggaetónlist sem nefnist
„Bettah Nevah Come“.
Einnig er tyrkneski rithöfundur
inn Yashar Kemal kynntur með við-
tali og langri smásögu sem Þórhild-
ur Ólafsdóttir þýddi beint úr tyrkn-
esku.
(Úr frétutilkynnin(u)
Loksins fyrir íslendinga
12 daga gönguferö 6. og 20. júlí 1984.
Hekla, Eldgjá, Þórsmörk og Skógar.
Gist veröur í tjöldum. Torfærubifreiö flytur mat og farangur.
Einstakt tækifæri fyrir íslendinga,
sem vilja kynnast eigin landi.
Verö kr. 12.000. — Allt innifalið.
FERÐASKRIFSTOFAN
Miðnætursól
Laugavegi 66, 101 Reykjavík
Sími 23577 (kvöldsími 13781)
Telex 2068 Miðnætursól/Skipatækni