Morgunblaðið - 28.06.1984, Síða 45
MORGUÍJBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984
45
»1 -----ar
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
rétt sinn til stöðu Krists, og gerð-
ust opinberir uppreisnarmenn
gegn föður sínum. Eftir langa
mæðu lét Heródes taka þessa syni
sína af lífi árið 6 f.Kr. Þá erum við
komin að tímabili Matteusar-
guðspjalls. Um þetta leyti mætt-
ust Satúrnus og Júpíter í Fiska-
merkinu. Það þýddi í gömlum
stjörnuspáfræðum við Miðjarð-
arhafsbotna, að konungur Gyð-
inga ætti að fæðast, þ.e. herkon-
ungur. Um þetta leyti eða aðeins
síðar hófst hreyfing norður í Gal-
íleu, sem á næstu 80 árum átti
eftir að skapa öldur hryðjuverka í
Palestínu. Þetta voru vandlætar-
arnir, selótarnir, sem líka voru
nefndir síkaríótar: morðingjar. í
postulatalinu eru tveir menn nú
taldir tilheyra þessum flokki
manna með nokkurri vissu. Símon
vandlætari og Júdas Ískaríót (eða
síkaríóti). Galíleumenn voru að
öðru leyti grunaðir um að vera
hallir undir þessa hreyfingu og
forsprakka_ þeirra, ætt Júdasar
Galílea. Séinasti maðurinn, sem
sögur fara af af þessari ætt, er nú
orðinn að þjóðhetju í ísrael, Ele-
asar Jaírusson, hetjan frá Mas-
ada. Þessi ætt var rabbía-ætt, svo
að Jaírus samkundustjóri í guð-
spjöllunum gæti tímans vegna
hæglega verið faðir Eleasars.
Jesús frá Nasaret var Galílei,
lærisveinarnir voru Galílear. Við
vitum að auki, að postulaforingj-
arnir Símon Pétur, Jakob og Jó-
hannes virðast ekki hafa verið
neinir aukvisar. Þeir sóttust eftir
heiðri í ríki Krists, sambærilegum
við þann sem þjónar Heródesar
Agrippu og Heródíasar nutu. Píl-
atus landshöfðingi vissi mætavel
um þetta allt. Hann dæmdi Jesú
frá Nasaret á sama hátt og tveir
synir Júdasar Galílea voru dæmd-
ir tíu til tólf árum síðar.
Samkvæmt þessu virðist ýmis-
legt benda til þess, að postularnir
og lærisveinarnir hafi í raun og
veru borið vopn. Annað mál er svo
það, hvort meistari þeirra hafi
verið því hlynntur, eða ekki. Guð-
fræði síðustu áratuga hefur held-
ur verið á þeirri línu faríseanna,
að menn eigi að vera friðarsinnar.
En það er ný bóla í opinberri guð-
fræði, því að friðarhugsun í þeim
stíl hefur lengst af verið aðals-
merki villutrúarflokka af ýmsu
tagi. Krists-mynd Júdasar Makk-
abeusar og Jóhannesar Hyrkanus-
ar, þ.e. hinn vopnaði Kristur, hef-
ur lengst af ráðið ríkjum í krist-
indóminum. Dæmi þess geta ís-
lendingar séð hvað skýrast í
hugmyndum Sverris konungs Sig-
urðarsonar um Krists-hugtakið,
eins og Karl Jónsson ábóti á Þing-
eyrum hafði þær eftir honum
skömmu fyrir 1200. Einnig má
kynna sér þessa Krists-mynd í
fjölda sálma í sálmabókinni
okkar.
Ég læt þessar hugleiðingar
nægja í bili. Ef til vill vekja þær
upp fleiri spurningar en þær
svara. Ég hef það mér til afsökun-
ar að spurningin er ein af þeim
stærstu, sem kristin siðfræði fjall-
ar um.
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til fdstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
Margir sóttu borgarafund sem haldinn var um flutning Kjötmiðstöðvarinnar,
en bréfritari er ekki sáttur við niðurstöðu hans, enda skoðanir skiptar um
málið.
Kjötmiðstöðin við
Laugalækjarskóla
íbúi við Laugalæk skrifar.
Miðvikudaginn 6.6.’84 var hald-
inn borgarafundur í Laugalækj-
arskóla í Reykjavík. Fundarefnið
var fyrirhuguð lóðarúthlutun til
Kjötmiðstöðvarinnar á horni
Laugalækjar og Sundlaugavegar.
Sagt var að um 130 manns hefðu
mætt á fundinn, mest kennarar
nærliggjandi skóla. Eftir góða
framsögn formanns skipulags-
nefndar, Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, var orðið gefið laust. Margir
stóðu upp og mæltu, allir sem töl-
uðu voru á móti fyrirhugaðri út-
hlutun á lóð til Kjötmiðstöðvarinn-
ar. Mörg sjónarmið komu þar fram
og voru menn jafnvel með barna-
legar hótanir, en efst í huga þessa
fólks var sú hætta, sem börnum
okkar yrði búin, við aukna bílaum-
ferð á horni Laugalækjar og Sund-
laugavegar.
Það er vitað mál að nokkur aukn-
ing verður á bílaumferð, ef þarna
verður staðsett verslun, en sú aukn-
ing er ekki á þeim tíma sem að börn
okkar fara í skóla og úr, svo skóia-
börn koma lítið til með að finna
fyrir þessari umferð.
Til stendur að flytja Áfengis-
verslun ríkisins frá Laugarásvegin-
um, einnig er ætlunin að beina um-
ferð frá Sundlaugavegi með lokun
niður við Skúlatún. Það er því orðið
álitamál hvort ekki verði minnkun
á bílaumferð um þetta horn þrátt
fyrir staðsetningu verslunar þar.
Betrumbæta þarf aðstöðu gangandi
vegfarenda á þessu horni, hvort
sem verslun verður byggð þarna eða
ekki, verði hún byggð er kjörið
tækifæri að knýja fram endurbæt-
ur.
Talað var um á fundinum að um-
ferðin yrði óleysanleg vegna bygg-
ingar verslunar á þessu horni. Það
sem yrði óleysanlegt vandamál er
uppástunga sem kom frá einum
ræðumanna um að stækka Kjöt-
miðstöðina á núverandi stað. Þá
fyrst yrði ringulreið í hverfinu,
vegna þrengsla og þeirrar umferðar
sem óhjákvæmilega yrði beint inn í
mitt hverfið.
Einhver minntist á hve hræðilegt
það væri að fá kjötvinnslu þarna á
hornið beint fyrir framan skólann,
sem að kennarar þyrftu að hafa
fyrir augunum daglega, annar sagði
að borgaryfirvöld ættu að snúa sér
að skorsteininum á Kletti og setja
þar tappa í svo að við í Laugarnes-
inu þyrftum ekki að finna fnykinn
sem þaðan kæmi.
En þessir sömu herramenn sem
þetta sögðu ættu að kanna þá að-
stöðu sem íbúar í nágrenni Kjöt-
miðstöðvarinnar þurfa að búa við í
dag. Ein afkastamesta kjötvinnsla
landsins í fárra metra fjarlægð frá
anddyrum íbúða þeirra, ásamt
sorptunnum sem lykta svo, að fnyk-
urinn frá Kletti virkar sem sætasti
ilmur.
Mikið var rætt um hina miklu
samstöðu sem íbúar Laugarnes-
hverfis höfðu sýnt um þetta mál,
hvernig væri að sýna samstöðu með
okkur nágrönnum Kjötmiðstöðvar-
innar og fá hana færða út á horn út
úr aðalíbúðabyggðinni þar sem hún
er fáum til ama. Þeir aðilar sem
staðið hafa á móti þessum fram-
kvæmdum hafa notað öll brögð til
þess að tala fólk til, en augljósasta
dæmi þess er dreifimiði sá er bor-
inn var í hús fyrir þennan fund.
Það að flytja verslunina út á
fyrrnefnt horn leysir mörg vanda-
mál innan hverfisins, en skapar
ekki nein ný vandamál.
SIG6A V/öGA £ itLVtmi
6VENDUR fékk eitt
RTKVÆ9I i RTKVÆÐR-
GREIÐSLUNNI UMVlN-
5ÆLR5TR RTVINNUREK-J
RNDR LRND8IN5
SNOTRA
ÍSLENSKA METSÖLUVÉLIN
Snotur - sterk - ódýr
• Fáanleg m/ Aspera eoa B&S motor.
• Stjómtækifyrirmótoráskaftinu.
• Sterkur, ryöfrír stálskjöldur.
• Stillanlegur hjólabúnaöur.
• Klippir jafntog vel.
, • Með og án grassafnara.
i • Hægt að leggja saman.
1 • Fyrirferðalítil í geymslu og flutningum.
• Olía fylgir, ásett.
'Va • Ábyrgðarskírteini fylgir hverri vél,
ásamt leiðbeiningum um geymslu og
Q meðferð.
Aspera mótoraoeins kr. 10.980.
B&S mótor aðeins kr. 11.659.
Heildsala - Smasala
1 lá la
mai nn
Smiðjuvegur 30 E-gata.
Kópavogur Sími 77066
Blacfburöarfólk
óskast!
Austurbær
Lindargata 6—39
Óöinsgata
Grettisgata 2—35
Vesturbær
Bauganes
Hávallagata
Tjarnargata I og II
&
HÚSSTJÓRNARSKÓLINN HALLORMSSTAÐ
býður upp á gistingu og morgunverö frá 29.
júní—14. ágúst. Komiö og njótiö kyrröar og friöar
á gróöursælasta staö Austurlands.
Pöntunum veitt móttaka í síma skólans 97-1761.
Einnig veröur tekið á móti pöntunum í símum 97-
1769 og 97-1781 fram til 29. júní.