Morgunblaðið - 28.06.1984, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984
47
l'lí^lillllll^lJ
með okkur
— sagði Michel Hidalgo, þjálfari Frakka
Fri Jóni Karli Hdgaayni, fréttamanni Morgunblaösins i Paris, og AP
„VIÐ HÖFÐUM nokkra heppni með okkur í leíknum og þaö er óhætt að
segja að Spánverjar hafi gert okkur lífið leitt í leiknum," sagði Michel
Hidalgo, þjálfari franska landsliðsins í knattspyrnu, eftir sigur liðsins í
gærkvöldi. „Við sigruðum en lítum samt sem áöur ekki á okkur sem
neinar hetjur.“
Hidalgo hættir sem landsliös-
þjálfari eftir þessa keppni. Hann
hefur veriö átta ár meö liöiö —
þann tíma hefur þaö leikiö 75
landsleiki, unniö 41, gert 15 jafn-
tefli og tapaö 19. Besti árangur
Frakka þar til í gær var þriöja sæti
í heimsmeistarakeppninni í Sví-
þjóö áriö 1958, fyrir 26 árum.
„Viö vorum talsvert áhyggjufullir
í leikhléi — viö vorum í vandræö-
um með leik okkar á vinstri helm-
ingnum og urðum aö breyta leik-
aöferöinni í seinni hálfleik. En ég
var nú í rauninni aldrei verulega
hræddur um úrslitin. Leikmenn
mínir hafa mikiö sjálfstraust/
sagöi Hidalgo.
„Sanngjörn úrslit“
Miguel Munoz, þjálfari Spán-
verja, sagöi eftir leikinn, aö úrslitin
heföu veriö sanngjörn, en „viö lék-
um vel í fyrri hálfleik og fengum þá
hættulegri marktækifæri. Arcona-
da geröi herfileg mistök er Platini
skoraöi, en mistök eru hluti af
leiknum. Hann varöi nokkrum
sinnum mjög vel í leiknum."
Haukur hlaut
tvenn brons-
verðlaun
HAUKUR Gunnarsson hlaut
tvö bronsverðlaun á ólympíu-
leikum fatlaðra í New York í
gær: varö þriðji i 200 m. hlaupi
og einnig í 400 m. hlaupi.
Haukur keppir í flokki spast-
ískra. Hann hljóp 200 metrana
á 27,66 sek. sem er mjög góöur
tími. Hann bætti sig mikiö —
átti fyrir úrslitahlaupiö best
tæpar 32 sekúndur.
Hann náöi enn betri árangri í
400 m. hlaupinu. Þar hljóp
hann vel undir gamla heims-
metinu. Þaö var 1:02,87 mín.,
sett í undanrásum á leikunum,
en fyrir leikana var heimsmetiö
ríflega 1:04 mín. Haukur hlaut
þriöja sætiö fyrir aö hlaupa á
1:02,32 mín. en Júgóslavi sigr-
aði: hljóp á 1:01,31 mín.
Haukur er einnig kominn í
úrslit í 100 metra hlaupi.
Úrslitahlaupiö fer fram á morg-
un. SH.
Styrjöld að Ijúka
Þaö var eins og heimsstyrjöld
heföi veriö aö Ijúka í gær, slík voru
fagnaöarlætin á götum Parísar eft-
ir leikinn í gærkvöldi. Vissulega var
styrjöld aö Ijúka — styrjöldinni um
Evrópumeistaratitilinn í knatt-
spyrnu og Frakkar stóöu uppi sem
sigurvegarar. Múgur og marg-
menni safnaöist þá saman á
Champs Elyseé-breiðgötunni og
viö Sigurbogann, L'Arc de
Triomphe. Þar þeyttu menn horn
bíla sinna — þaö var langur flautu-
konsert sem leikinn var í miöborg
Parísar í gærkvöldi. Menn sungu
sem mest þeir máttu og franski
fáninn var ekki haföur í felum.
Menn veifuöu honum óspart. Þaö
er óhætt aö segja aö Frakkar hafi
sýnt i gærkvöldi aö þeir eru ekki
eftirbátar Itala í fagnaöarlátum.
Mönnum er enn i fersku minni
fagnaöarlæti á italíu er landsliö
þeirra varö heimsmeistari fyrir
tveimur árum og ekki voru lætin
minni í gær.
Gífurleg öryggisgæsla
Fólk var byrjaö aö safnast sam-
an fyrir utan Parc des Princes-leik-
völlinn um hádegi í gær, en leikur-
inn hófst kl. 20 aö staöartíma.
Mest bar þar á Frökkum aö sjálf-
sögöu — en þó sást einstaka
Spánverji meö þjóöfána sinn aö
vopnl.
Gífurleg öryggisgæsla var viö
völlinn, hreint ótrúlegur fjöldi lög-
reglu- og öryggisgæslumanna á
svæðinu. Frakkar höföu ekki
áhuga á neinum uppþotum. Skilj-
anlega. __ sH.
MorgunDiaoio/aimamyno ak
• Michel Platini, fyrirliði Frakka, hampar Evrópubikarnum é Parc des
Princes-leikvanginum { París í gærkvöldi. Til vinstri mé sjé Francois
Mitterand, forseta Frakklands. Platini varð markahæsti leikmaður úr-
slitakeppninnar — skoraöi niu mðrk í fimm leikjum, sem er frébær
érangur.
w
Hræóilegt
áá
— að fá á sig svona mark í úrslitaleiknum, segir Arconada
FRAKKAR urðu Evrópumeistarar
í knattspyrnu í gærkvöldi er þeir
sigruöu Spénverja 2:0 í úrslitaleik
Evrópukeppni landsliöa é Parc
des Prince-leikvanginum í París.
Michel Platini, fyrirliði franska
liösins, ruddi brautina til sigurs er
hann skoraöi fyrra markið á 50.
mín. og Bruno Bellone geröi síöara
Um 300 manns
á völlum GR
f fyrradag fór fram í Grafarholti
Minolta Million-mótið, sem Júlíus
P. Guðjónsson, umboðsmaður
Minolta-myndavéla é íslandi stóö
að. Mótiö var fjölmennasta
golfmót sumarsins til þessa eða
147 þétttakendur.
Verölaun voru hin veglegustu
eöa vandaöar myndavélar af
Minolta-gerö. Úrslit uröu sem hér
segir:
1. Hafþór
2. Jón Örn
3. Björn
Ólafsson
84—24=60
Sigurösson
76—11=65
Karlsson
83—17=66
GR
nettó
GR
nettó
GK
nettó
4. Árni Óskarsson GOS
89—23=66 nettó
Besta skor: Magnús Jónsson GS
72 högg. Veður var hiö besta og
fór mótiö vel fram í alla staöi.
Sennilega metdagur hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur í fyrradag hvaö varöar
leikandi fólk á völlum klúbbsins í
Grafarholti og aö Korpúlfsstööum.
í Grafarholti léku 147 keppendur í
Minolta Million. Fyrir mótiö og eftir
þaö léku um 60 kylfingar i Grafar-
holti og nálægt 90 kylfingar komu
aö Korpúlfsstööum. Léku þannig
tæplega 300 manns á völlum
klúbbsins í fyrradag sem þætti góð
aösókn hjá hvaöa íþróttafélagi
sem er, jafnvel þótt um margar
greinar íþrótta væri aö ræöa.
markiö er komiö var fram yfir
venjulegan leiktíma.
Platini, markahæsti maður
keppninnar með níu mörk úr fimm
leikjum, var kjörinn besti leikmaö-
ur keppninnar af íþróttafrétta-
mönnum — eftir úrslitaleikinn í
gærkvöldi.
Platini skoraöi beint úr auka-
spyrnu rétt utan vítateigs. Luis
Arconada, hinum þrítuga mark-
veröi og fyrirliöa Spánverja, sem
lék í gær sinn 60. landsleik, uröu á
hrapalleg mistök. Hann varöi skot
Platinis en missti knöttinn síöan á
óskiljanlegan hátt undir sig og inn
fyrir marklínuna. „Þaö er stórkost-
legt aö vinna bikarinn, en ég er
engan veginn nógu ánægöur meö
leik okkar í kvöld. Viö náöum ekki
að sýna okkar besta." Spánverjar
voru betra liöiö í fyrri hálfleiknum
og fengu tvö góö marktækifæri í
þeim síöari, en náöu aldrei aö
koma boltanum í netiö.
„Þaö er ólýsanlega niöurdrep-
andi aö fá á sig slíkt mark í úrslita-
leik Evrópukeppninnar," sagöi
Arconada eftir leikinn. „Hræöilegt.
Ég var vel staösettur til aö verja
skotiö og ég muna aldrei geta út-
skýrt hvers vegna í ósköpunum ég
missti bölvaöan boltann úr hönd-
unum," sagöi hann.
Frakkar léku einum færri siö-
ustu fimm mínútur leiksins —
tékkneski dómarinn Vojtek Chris-
tov rak Yvon Le Roux af velli fyrir
gróft brot. Eftir mikla pressu
Spánverja síöustu mínúturnar
náöu Frakkar skyndisókn þegar
komiö var fram yfir venjulegan
leiktíma — Jean Tigana átti frá-
bæra sendingu inn fyrir vörn
Spánverja á Bruno Bellona, sem
lék inn á teig og lyfti boltanum
glæsilega yfir Arconada markvörö,
sem kom út á móti, og í netiö.
Gleði Frakka var geysileg. Evrópu-
meistaratitilinn var í höfn — fyrsti
sigur Frakka á stórmóti í knatt-
spyrnu.
Ellert einn
af varafor-
setum UEFA
ELLERT B. Schram, formaöur
KSÍ, var í fyrradag kjörinn vara-
forsetí Knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA, é érsþingi þess í
Parts.
Kjöriö er aö sjálfsögöu mikill
heiöur fyrir Elert svo aö íslenska
knattspyrnu. Varaforsetar UEFA
eru þrír. Ellert átti sem kunnugt er
áöur sæti í UEFA-stjórninni — og
á þar vitanlega sæti enn sem vara-
forseti.
I sumar-
bústaðinn og
ferðalagið:
Björgunarvesti
ÁRAR — ÁRAKEFAR
BÁTADREKAR, KEÐJUR.
Handfæravindur
MED STÖNG
Sjóveiðistengur
MED HJÓLI.
ÖNGLAR, PILKAR,
SÖKKUR.
SILUNGANET
UPPSETT
BLÝ- OG FLOTTEINAR.
•
VATNA- OG INN-
FJARÐARBÁTAR
úr trefjagleri 9 og 14 fet.
VIDLEGUBAUJUR.
SÚOHLÍFAR, MARGAR ST.
VÆNGJADÆLUR,
BÁTADÆLUR.
•
Garðyrkjuáhöld
ALLSKONAR.
ORF, LJÁIR, LJÁBRÝNI.
HEYHRÍFUR.
GRASKLIPPUR.
GARÐSLÁTTUVÉLAR.
•
Handverkfæri
ALLSKONAR.
RYOEYÐIR — RYÐVÖRN.
•
Bátalakk og
málning
FERNISOLÍA, VIÐAROLÍA.
HRÁTJARA.
CARBÓLÍN.
BLAKKFERNIS.
PLASTTJARA.
PENSLAR, KÚSTAR.
Utigrill
GRILLTENGUR —
GAFFLAR.
VIÐARKOL —
Gasferðatæki
STEINOLÍA, 2 TEG.
PLASTBRÚSAR.
MINKAGILDRUR
MÚSA OG
ROTTUGILDRUR
STILL-LONGS
ULLARNÆRFÖT
NÆLONSTYRKT
DÖKKBLÁ FYRIR
BÖRN OG FULLORDNA
SOKKAR
MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI
REGNFATNAÐUR
KULDAFATNAÐUR
VINNUFATNAÐUR
VINNUHANSKAR
KLOSSAR
GÚMMÍSTÍGVÉL
ÖRYGGISSKÓR
FERÐASKÓR
SPORTSKÓR
ANANAUSTUM
SÍMI 28855
Opiö föstudaga
til kl. 7.