Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 48

Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 48
OPIÐALLA DAGA FRA KL. 11.45-23.30 ÁuSTURSTRÆI 22 INNSTRÆTI, SIMI ' 1633 „Bond- þyrlan“ í sjúkra- flutningum ÞYRLA sú sem bresku kvikmyndagerðarmennirnir á Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi nota við gerð James Bond-mynd- arinnar „A View to a Kill“ sótti í gærkvöldi slasaðan mann á Krist- ínartinda í Skaftafelli. Hafði mað- urinn ökklabrotnað. Hann var fluttur á Höfn í Hornafirði til læknismeðferðar. Að sögn Svanhildar Jóhannesdóttur, landvarðar, gerðist óhappið um fimmleytið. Samfylgdarmaður hins slasaða fór þá niður í stöð landvarða til að sækja hjálp og sneri brátt aftur á Kristínartinda ásamt þremur mönnum frá Skaftafelli, en þangað hugðust þeir bera hinn slasaða. Til hins slasaða var komið eft- ir tvo tíma, en þessi ganga tekur hátt í fjóra tíma. Svanhildur sagði að hugmyndin um að leita eftir aðstoð þyrlunnar hefði komið til þar sem örðugt væri að bera slasaðan mann niður bratt- ann, ekki síst þar sem víða væru krákustígar. Landverðir Nátt- úruverndarráðs í Skaftafelli hefðu vitað um þyrluna og hefði hún náð sambandi við búðirnar við Jökulsárlón. Beðið var um aðstoð og var það auðsótt mál. Kom flugmaðurinn, Mark Wolff, um kl. 20.00 á Kristínartinda. AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTI, SÍMI 11340 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. VeKtmannaeyjum, 27. júní. RÚMLEGA eitt þúsund manns taka þátt í tveimur umfangsmiklum mótum æskufólks hér þessa dagana. Auk þess verður hér á ferð fjöldi innlendra og erlendra ferðamanna, eins og verið hefur um hverja helgi í sumar. Útlit er fyrir að hingað komi fleiri ferðamenn í sumar en áður. í dag komu hingað um fjögur hundruð ungir knattspyrnumenn frá Símamynd Mbl./Skúli. 19 félögum víðs vegar af landinu. Keppt verður frá morgni til kvölds frá fimmtudegi til sunnudags og á myndinni sjást tveir ungir kappar undirbúa sig fyrir setningarathöfnina í gærkvöldi. Á morgun kemur svo annar hópur hingað með Herjólfi, um 600 skátar af Suðvesturlandi. - hkj. / MorminblaAiú/ RAX. Kal á Hólsfjöllum Benedikt Sigurðsson bóndi í Grímstungu á Fjöllum sýnir Ijósmyndaran- um arfahrúgu í kaltúni en eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu eru tún á Hólsfjöllum illa kalin. Sjá: „Ottast að byggðin grisjist...“ á miðopnu blaðsins í dag. Fundur íslendinga og Alcan: Samningsgerð vegna álvers rædd nyrðra Aknrovri 97 mní Akureyri, 27. júní. AÐALFORSETI og framkvæmda- stjóri kanadíska fyrirtækisins Al- can áttu í dag viðræður við stjórn Iðnþróunarfélags Eyjafjarðarsvæðis- ins og bæjarstjóra Akureyrar, Helga M. Bergs, um byggingu álvers við Eyjafjörð, sem fyrirtækið hefur sýnt áhuga á að reisa þar. Einnig sátu fundinn fulltrúar stóriðjunefndar og Landsvirkjunnar. Sámkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér var á fundinum rætt um gerð samn- ings um byggingu álverksmiðju á íslandi, en að svo stöddu ekki rætt um staðsetningu hennar, og er ákvörðunar í því efni fyrst að vænta haustið 1985. Mun það m.a. vera haft í huga að bíða niður- stöðu mengunarrannsókna sem fram fara á Eyjafjarðarsvæðinu í sumar. Þá mun hafa verið ákveðið að halda annan fund í haust, þar sem til umræðu verður orkuverð það sem kanadíska fyrirtækið mun greiða verði af samningum. Um það atriði var ekki rætt á fundinum í dag. G.Berg. Framkvæmdasjóðiir: 9 milljóna hluta- fé í Stálfélagið STJÓRN Framkvæmdasjóðs sam- þykkti á fundi sl. mánudag að gerast hluthafi í Stálfélaginu að vissum skilyrðum uppfylltum. Að sögn Kristins Siemsen, framkvæmda- stjóra sjóðsins, nemur hlutafjárlof- orðið 9 milljónum króna en alls verður hlutafé Stálfélagsins 30 millj- Krefjumst ekki fiskveiðiréttinda — segir utanríkisviðskiptaráðherra Portúgals í samtali við blm. Morgunblaðsins Limabon, 27. júní, frá Jóhönnu KristjónsdóU- ur blm. Mbl. „ÞAÐ hefur aidrei komið til tals að krefjast fískveiðiréttinda af íslend- ingum, okkur er vel kunnugt um hvað íslendingar glíma við mikla erfiðleika á því sviði nú,“ sagði Al- var Barreto, utanríkisviðskiptaráð- herra Portúgal, í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins í Portúgal í gær. Ráðherrann kemur í opinbera heimsókn til fslands 9. júlí næst- komandi og eitt helsta umræðu- efni hans við íslenska ráðamenn verður væntanlega sú ákvörðun Portúgala að setja 12% innflutn- ingstoll á saltfisk frá fslandi í stað 3%, sem verið hafa í gildi frá 1974. Um það atriði segir ráðherrann meðal annars, að vonandi tækjust samningar við fslendinga sem gerðu Portúgölum kleift að halda 3% tollinum. „Við viljum ekki liggja undir því að við mismunum fslendingum eða brjótum EFTA- lög. Við erum að setja aftur á skatt, sem hafði lagagildi, en var síðan felldur tímabundið niður eftir 1974 og við gerum þetta af þeirri nauðsyn, sem blasir við hverjum þeim sem vill kynna sér máiin af sanngirni," sagði Barr- eto. Sjá nánar á mióopnu. Skilyrðin sem Stálfélagið verð- ur að uppfylla eru að framtíðar- lántökur þess séu tryggar og að viðskiptabanki sé fyrir hendi. Þá verður einnig að safnast nægilegt hlutafé annars staðar o.fl. Framkvæmdastjóri Stálfélags- ins, Friðrik Daníelsson, vildi ekk- ert segja um þá fyrirvara sem Framkvæmdasjóður hefur sett, þegar blm. Morgunblaðsins hafði samband við hann í gær. „Málefni Stálfélagsins eru á mjög við- kvæmu stigi og ekki rétt að ræða þau á opinberum vettvangi, sagði Friðrik að lokurn."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.