Morgunblaðið - 04.07.1984, Qupperneq 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
150. tbl. 71. árg.
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Norsk vorgots-
sfld fer á flakk
Ósló, 3.júlí. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Mbl.
NÚ VIRÐIST sfldin vera að taka upp gamla göngulagið að nýju og það gæti
haft í för með sér slæmar afleiðingar í utanríkismálum Norðmanna.
í frétt frá norsku fréttastofunni
NTB sagði, að brátt yrðu Norð-
menn að láta af þeirri skoðun
Air Florida
gjaldþrota
Mimmi. 3. jólf. AP.
FLUGFÉLAGIÐ Air Florida, sem éx
á skömmum tíma úr litlu félagi með
takmörkuð umsvif I umsvifamikið
flugfélag á alþjóðavettvangi, lýsti sig
gjaldþrota í dag.
Air Florida var stofnað 1972 og
voru þrjár tveggja hreyfla flugvél-
ar í flota þess til að byrja með.
Flogið var eingöngu innan Flór-
ída, en þremur árum seinna jók
það umsvif sin með því að hefja
flug til norðausturríkjanna, Kar-
íbahafsins og loks Evrópu. Þegar
bezt lét flaug félagið til 40 borga í
15 löndum.
En 1982 tók að halla undan fæti
hjá Air Florida, og óx þá ekki
lengur hraðar en önnur, eins og
um tima, heldur hnignaði hraðar.
Tap á rekstri Air Florida sið-
ustu þrjú árin nam 134,8 milljón-
um dollara. Að undanförnu hefur
félagið selt 12 flugvélar, sagt upp
1.200 starfsmönnum og fækkað
flugleiðum.
sinni, að norska vorgotssildin væri
innlend auðlind, sem landsmenn
gætu sjálfir ákveðið, hversu mikið
yrði veitt úr, án tillits til annarra
landa.
Þetta hefur orðið ljóst eftir nýj-
ustu rannsóknir fiskifræðinga.
Þær sýna, að smásíld úr árgangin-
um frá 1983, sem var mjög sterk-
ur, hefur yfirgefið efnahagslög-
Noregs.
skýrslu fiskifræðinganna kem-
ur fram, að verulegur hluti ár-
gangsins heldur sig nú innan sov-
éskrar efnahagslögsögu i Bar-
entshafi.
Lausir úr haldi
AP/Símamynd
Fimm farþegar af níu sem fsraelar hnepptu í varðhald er þeir téku ferjuna Alisur Blanco á leið frá Kýpur til
Líbanon í sL viku. Fjórir farþeganna eru enn í haldi, en fimmmenningunum var sleppt í dag og var meófylgjandi
mynd tekin er þeir hvfldust á samyrkjubúi áéur en þeir béldu til Líbanon.
Viðræður í Moskvu.
„ekki hughreystandi
WjLHhington, MoNkvu, 3. júlí. AP.
ANATOLY Dobrynin, sendiherra Sov-
étrikjanna í Washington, rsddi í 90
mínútur við George P. Shultz utanrík-
isráðherra og hélt síðar til Moskvu.
Geoffrey Howe, utanríkisráðherra
Breta, lauk tveggja daga viðræðum
við ráðamenn þar í borg og sagði að
„Gagnlegur fundur‘
AP/Símamynd
Anatoly Dobrynin sendiherra yfirgefúr bandaríska utanríkisráðuneytið
eftir fund með George Shultz. Dobrynin kvað fund þeirra hafa verið
gagnlegan.
þsr hefðu ekki verið hughreystandi,
þar sem Rússar virtust meiri áhuga
hafa á að koma ákveðnum vestrænum
ríkjum í mikla klípu en vinna að frið-
samlegri sambúð austurs og vesturs.
Dobrynin ræddi ýms ágreinings-
efni stórveldanna ýtarlega við
Shultz, þ.á m. bann við geimvopn-
um, og sagði fund þeirra, hinn
fjórða á þremur vikum, gagnlegan.
Dobrynin og Ronald Reagan forseti
spjölluðu einnig lengi saman í garð-
veizlu forsetans á sunnudagskvöld.
I opinberri tilkynningu Rússa um
viðrséður Howe sagði að enda þótt
þær hefðu verið gagnlegar hefði
hann engar jákvæðar tillögur fært,
aðeins endurtekið afstöðu NATO til
ágreiningsefna austurs og vesturs.
Howe ræddi við Chernenko flokks-
leiðtoga og Gromyko utanrikisráð-
herra. Sagði hann tóninn í Kreml-
verjum neikvæðan, og væru þeir
fráhverfir því að taka upp viðræður
að nýju um fækkun meðaldrægra
kjarnaflauga í Evrópu.
Howe sagði Rússa í sérvizku sinni
ekki vilja fylgja eftir eigin frum-
kvæði í afvopnunarmálum. Hefði
hann sjálfur borið Gromyko þau
skilaboð yfirvalda i Washington að
Bandarikjamenn væru reiðubúnir
til viðræðna um bann við geim-
vopnum án skilyrða, en Rússar
hefðu svarað með því að segja til-
boð þeirra „með öllu ófullnægjandi.
1 fyrri viku hvöttu Rússar til við-
ræðna um geimvopnabann, en
Bandarikjamenn voru neikvæðir i
fyrstu vegna örðugleika varðandi
eftirlit, auk þess sem Rússar hefðu
nú þegar framleitt vopn til að eyða
gervihnöttum. Hafa Bandarikja-
menn nú söðlað um og öllum hindr-
unum verið rutt úr vegi.en þá ger-
ast Rússar fráhverfir hugmyndinni
í sérvizku sinni og órökvisi, að sögn
Howe.
Hættulegir glæpamenn
handteknir í Frankfurt
I rmnkfurt, 3. júlí. AP.
LÖGREGLA náði fjérum eftirlýst-
ustu hryðjuverkamönnum Vestur-
Þýzkalands í áhlaupi á íbúð þeirra í
íbúðahverfl I Frankfurt í dag.
Fannst þar mikið magn vopna. Fjér-
Bardagasveitir
brott frá Beirút
Beirút, 3. júli. AP.
KRISTNIR menn og shítar hófu í
dag brottflutning þungavopna sinna
frá Beirút og 8.000 stjórnarhermenn
tóku sér stöðu víða í borginni, en
búist er við að bardagasveitir hinna
stríðandi fylkinga verði á brott og
stjórnarherinn í nýjum stöðvum á
morgun, miðvikudag.
Mikill fögnuður ríkir meðal íbúa
í Beirút með brottflutning bar-
dagasveita kristna manna, shita
og drúsa, og var stjórnarher-
mönnum fagnað er þeir óku um
götur borgarinnar til nýrra stöðva
þar.
Shítar drógu sín hergögn til
suðurútborga Beirút, drúsar yfir-
gáfu vesturhluta Beirút og héldu
með sitt hafurtask til fjalllendis-
ins austur af borginni, og kristnir
menn hurfu frá Austur-Beirút til
heimkynna kristinna manna norð-
ur af borginnni.
Leiðtogar shíta, drúsa og krist-
inna manna sögðust verða á brott
fyrir miðnætti og hétu þeir að af-
vopnast og kasta einkennisklæð-
um, samkvæmt friðaráætlun fyrir
Beirút.
menningarnir voru m.a. eftirlýstir
vegna morðanna á Siegfried Buback
saksóknara, Jiirgen Ponto banka-
stjóra og iðnjöfrinum Hans-Martin
Schleyer árið 1977.
Fjórmenningarnir, tveir karl-
menn og tvær konur, eru félagar í
Rauða hernum, öfgasamtökum
vinstrimanna. Ekki var hleypt af
skoti í áhlaupinu á ibúð þeirra, en
það sem kom lögreglunni á sporið
var að slysaskot hljóp úr byssu
eins fjórmenninganna í fyrra-
kvöld, og lét íbúi á næstu hæð
fyrir neðan vita.
Sjö stórvirkar byssur, þ.á m.
colt-skammbyssa, sem rænt var af
vopnasala í Frankfurt 1977, fund-
ust í íbúðinni, einnig handsprengj-
ur, miklir peningar, innlend og út-
lend persónuskilríki, fjarskipta-
búnaður og sex tímasprengjur.
Hryðjuverkamennirnir eru
Christa Eckes, 34 ára, Ingrid Jak-
obsmeier, 30 ára, Stefan Frey, 24
ára og Helmut Pohl, 40 ára. í íbúð-
inni voru einnig Barabara Ernst
frá Hamborg, 29 ára, og óþekktur
karlmaður, en Ernst er félagi í
samtökum sem nefnast „Konur
gegn styrjöldum heimsvalda-
sinna“, sem á náið samstarf við
Rauða herinn.
Guatemala:
Kristilegir
demókratar
taka forystu
(■Batemalaborg. 3. júlí. AP.
KRISTILEGIR demókratar höfðu
tekið forystuna er lokið var taln-
ingu 63% atkvæða í kosningum til
stjórnlagaþings í Guatemala, en
kosningabandalag hægri manna,
sem spáð hafði verið sigri, hefur
dregist aftur úr.
Þegar talin höfðu verið 63%
atkvæðanna, höfðu Kristilegir
demókratar hlotið 17,7%
greiddra atkvæða, Miðflokkur-
inn, nýr flokkur, sem efndi til
sniðugrar auglýsingaherferðar,
hafði hlotið 14,9% greiddra at-
kvæða og kosningabandalag
hægrimanna 12,4%.