Morgunblaðið - 04.07.1984, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLl 1984
Metár í brezkum
ferðamannaiðnaði
á þremur vikum. Á sama tíma í
fyrra nam gengi pundsins 1,53
dollar.
Bandarískir ferðamenn í Bretlandi senni-
lega fleiri nú en nokkru sinni áður
London. 3. jéH. AP.
ÞETTA er uppgangssumar fyrir ferðamannaiönaðinn i Bretlandi og þá sér-
staklega með tillitl til bandarískra ferðamanna. Sterlingspundið hefur fallið
gagnvart Bandaríkjadollar að undanförnu og því er það hagstcðara en áður
fyrir bandaríska ferðamenn að heimsækja Bretland. Af þessum sökum virð-
ast iíka allar horfur á því, að sumarið 1984 verði metsumar i Bretlandi, að því
er varðar fjölda ferðamanna fra Bandaríkjunum. Skýrði blaðið The Times
frá þessu í gær.
Við lokun á kauphöllum sl.
föstudag nam gengi pundsins 1,35
dollar og hafði það fallið 4V4 cent
Moskvæ
Hartman fær
ekki að tala
Mookro, 3. jálí. AP.
RÚSSAR hafa neitað Arthur Hartman,
sendiherra Bandarikjanna ( Sovétríkj-
unum, um heimild til þess að flytja
reðu ( sjónvarpi þar (tilefni af þjóðhá-
tíðardegi Bandarlkjamanna, sem er a
morgun, miðvikudaginn Ijórða júl(.
Skýrði talsmaður bandaríska sendi-
ráðsins i Moskvu frá þessu (dag.
„Það verður engin ræða flutt,“
sagði talsmaður sendiráðsins. „Sov-
ézk stjórnvöld hafa neitað að verða
við beiðni sendiherrans.“
Árið 1980 mótmæltu sovézk
stjórnvöld athugasemdum Thomas
J. Watsons, þáverandi sendiherra
Bandaríkjanna, þar sem hann gagn-
rýndi herferð Sovétmanna inn i Afg-
anistan. Watson neitaði að breyta
ræðu sinni og þv( var hætt við sjón-
varpsútsendinguna.
^KIæðum og bólstrumj
jömut húsgögn. Gottfj
^úrval af áklæðum
BÓLSTRUNi
■ÁSGRÍMS,
Bergstaðastræti 2,
Sími 16807.
Japaninn Shigeciyo Izumi er
sagður elzti núlifandi maður
beims samkvæmt heimsmetabók
Guinness. Hann varð 119 ára (
síðustu viku og býr við góða
heil.su til sálar og líkama.
Japanir
langlífastir
Tékjé, 3. júlf AP.
JAPANIR hafa tekið við af íslend-
ingum sem langlffasta þjóð heims-
ins samkvæmt frásögn fréttastof-
unnar KYODO. Samkvæmt opin-
beru yfirliti, sem japanska heil-
brigðismálaráðuneytið hefur látið
fara frá sér, eru meðal Kfslíkur jap-
anskra karlmanna 74,2 ár og jap-
anskra kvenna 79,78 ár.
Samkvæmt frásögn KYODO
voru meðal lifslikur 73,91 ár fyrir
fslenzka karlmenn og 79,45 ár
fyrir fslenzkar konur á árunum
1981-1982.
Á föstudaginn var bætti Shig-
echiyo Izumi, sem skráður er sem
elzti maður heims ( heimsmeta-
bók Guinnes, enn einu kertinu á
afmælistertu sfna, en þá varð
hann 119 ára. Hann á heima f
Suður-Japan.
Brezka ferðamálastjórnin gerir
ráð fyrir, að um 2,5 millj. Banda-
rikjamanna muni koma til Bret-
lands á þessu ári. „Bandaríkja-
menn skera sig ekki bara úr með
skræpóttum klæðnaði. Þeir eyða
einnig meiri peningum, dveljast
hér lengur og eru líklegri en aðrir
ferðamenn til þess að koma
hingað aftur,“ segir The Times.
Segir blaðið ennfremur, að þeir
dveljist um 11 daga i landinu að
jafnaði og eyði 2lÆ sinnum meiri
peningum en ferðamenn fra
Vestur-Evrópu.
Nær allir bandarískir ferða-
menn verji að minnsta kosti einni
nótt f London og þeir eru fleiri en
áður, sem einnig fari til fjarlægari
staða f landinu. Þannig er Yorks-
hire mjög vinsælt í ár og á það
rætur sínar að rekja til sjón-
varpsmyndaflokksins „Brideshead
Revisited", sem tekinn var i
Howard-kastala í Y'orkshire.
Kona varaforseti
Verður hún varaforsetaefni demókrata? Þetta er spurning, sem er
orðin mun raunhæfari en áður, eftir að Walter Mondale lýsti því yfir, að
frú Geraldine Ferraro kæmi „mjög til greina" sem varaforsetaefni hans
í forsetakosningunum ( haust. Mynd þessi var tekin af þeim frú Ferraro
og Mondale á heimili hans í Minnesota nú f vikunni.
Salan hershöfðingi,
leiðtogi OAS, látinn
Parfa, 3. júlt AP.
FRANSKI hershöfðinginn Raoul
Salan, sem stofnaði hermdarverka-
samtökin OAS (Leynisamtök hers-
ins) þegar tilraun hans og fleiri
franskra hermanna til að hrifsa til
sín völdin í Alsfr árið 1961 mistókst,
lést á hersjúkrahúsi í Parfs í dag 85
ára að aldri.
Salan var einn fjögurra hers-
höfðingja franska hersins f Alsir,
sem i andmælaskyni við stefnu de
Gaulles þáverandi forseta Frakk-
lands gerðu uppreisn og náðu þar
völdum nokkra daga f aprfl 1961
til að freista þess að halda áfram
borgarastyrjöldinni milli Frakka,
sem þá stjórnuðu landinu, og als-
frskra skæruliða. Upreisnin var þó
fljótlega bæld niður, enda studdi
meiri hluti franska hersins hana
ekki.
í framhaldi þess stofnaði Salan
hermdarverkasamtökin OAS. Þau
stóðu meðal annars fyrir morðum
og sprengingum bæði f Alsfr og
Frakklandi, sem beint var gegn
þeim sem fylgjandi voru sjálf-
stæði Alsirs. Sem kunnugt er
veitti de Gaulle Alsir sjálfstæði
árið 1962, og var Salan handtekinn
sama ár fyrir hryðjuverkastarf-
semi. Hann var dæmdur af her-
dómstóli f Iffstfðarfangelsi, en de
Gaulle náðaði hann og gaf honum
upp sakir árið 1968.
Salan fékk skjótan frama innan
franska hersins. Hann var yfir-
maður franska herliðsins í Indó-
kína á árunum 1945—47, og aftur
áríð 1952. Sósíalistastjórn Guys
Mollets skipaði hann siðan f stöðu
yfirhershöfðingja franska hersins
f Alsír árið 1956.
I maímánuði 1958 hóf hann
áróðursherferð f Alsír undir kjör-
orðinu „franskt Alsfr“ („Algerie
francaise"). Lýsti hann ennfremur
yfir stuðningi sínum við valdatöku
de Gaulles í þeirri von að hann
mundi halda áfram strfðinu við
serkneska skæruliða. Sama ár var
Salan skipaður landstjóri í Alsír,
en var þó færður til í starfi nokkr-
um mánuðum siðar og fékk
ónefnda virðingarstöðu.
Skömmu siðar settist hann þó f
helgan stein og tók að berjast hat-
ramlega gegn stefnu de Gaulles f
Alsír. Hann var gerður brottræk-
ur úr landinu árið 1960 og dvaldist
á Spáni þar til hann sneri aftur til
að taka þátt i uppreisninni gegn
de Gaulle árið 1961 f Alsfr.
Loks má geta þess að Mitter-
rand Frakklandsforseti veitti
þrátt fyrir talsverða andstöðu inn-
an franska sósfalistaflokksins öll-
um þeim sem stóðu að hreyfing-
unni „franskt Alsír“ sakaruppgjöf
árið 1982, og fengu þeir aftur inn-
göngu í franska varaherinn.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
STANGAÁL
(ALMgSi 0,5) Seltuþolið.
Fjölbreyttar stærðir og þykktir.
ÁLPRÓFÍLAR FLATÁL
VINKILÁL SÍVALT ÁL
LlLLL
SINDRAi iSTÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222
Kreppa í norsk-
um sjávarútvegi
Ösló, 3. jóll. Frá Ju Krik Uure,
frétUriUra Mbl.
ENN Á ný rfkir kreppa í norskum
sjávarútvegi. í yfirliti frá útvegsbanka
landsin.s sést, að ógreiddar skuldir út-
gerðarinnar hjá bankanum nema um
100 milljónum n.kr. og hafa hækkað
um 30 milljónir frá þvf f fyrra.
Þetta hefur þegar leitt til þess, að
um 30 útgerðarfélög hafa orðið
gjaldþrota. Nokkrar beiðnir um
gjaldþrotaskipti hafa verið dregnar
til baka.
í ríti norska sjómannasambands-
ins, „Me’a“, kemur fram, að i mai og
júnf voru haldin nauðungaruppboð
á 17 fiskibátum. Af þeim voru 13
bátar boðnir upp vegna vanskila-
skulda við útvegsbankann.
Þessi alvarlega staða skapast
þrátt fyrir að bankinn hafi upp á
Biðkastið lengt greiðslufrest illa
staddra útgerðarfyrirtækja.
„Aukning vanskilaskulda er
greinileg bending um slælega af-
komu i sjávarútveginum. Eg man
ekki eftir verra ástandi en nú,“ seg-
ir Reidar Johannessen, aðstoðar-
bankastjóri í útvegsbankanum.
Orsakir vandræðanna eru m.a.
minnkandi aflakvótar.
Noregur:
Verð hækkar
á matvöru
CMÓ, 3. jólf. Frí frétUriUr.
MorpiabUMiu, Jta Erllt Luré
NORSKIR neytendur vöknuðu upp við
það á mánudag, að matvörnr höfðu
hækkað meira en nokkru sinni um
langan tima. Þessi mikla hækkun á
fyrst og fremst mjólk, smjöri og osti
stafar af auknum uppbótum til bænda.
Mjólkurlftrinn kostar eftirleiðis
4,73 n.kr. og hækkar um 55 aura. Frá
áramótum hefur verð á mjólk hækk-
að um 12 %.
Margir hafa brugðist öndverðir
við þessum hækkunum. Foreldrafé-
iagið hyggst efna til eins dags kaup-
banns á mjólk. Auk mjólkurvara
hækkar verð á eggjum, kjöti, ávöxt-
um og grænmeti.