Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984
55
SJONARVOTTAR
Sitthvað er að
sjá eða trúa
r
IBandaríkjunum gerist það æ
algengara, að lögfræðingar,
sem þurfa að verja mál manna
fyrir rétti, leiti hjálpar sérfræð-
inga þegar þeir þurfa að ómerkja
framburð sjónarvotta. Fyrir allt
að 4.500 kr. á klukkustund eru
sálfræðingarnir tilbúnir til að
segja kviðdómnum frá því, að
það sé sitthvað að sjá eða trúa og
að eins líklegt sé, að vitnin hafi
ekki séð það sem þau töldu sig
sjá.
Tveir prófessorar i sálfræði,
dr. Robert Buckhout og dr. Eliza-
beth Loftus, hafa á síðustu tíu
árum fundið upp ýmsar aðferðir
til að afhjúpa „falsminningarn-
ar“ svokölluðu og enginn efast
um þörfina á því að meta fram-
burð sjónarvotta á hlutlægan og
vísindalegan hátt. Sem dæmi um
það má nefna, að árið 1979 var
kaþólskur prestur í Delaware
kærður fyrir vopnað rán eftir að
nokkrir sjónarvottar höfðu bent
á hann sem hinn seka. Raunveru-
legi þrjóturinn játaði hins vegar
á sig glæpinn meðan á réttar-
höldunum stóð.
í mars sl. var Lenell Geter, 26
ára gamall, svartur vélsmiður,
látinn laus úr fangelsi þegar
Þeir segja að á næstu 50 árum muni
Þjóðverjum, sem nú eru tæplega sex-
tíu milljónir talsins, fækka niður í lið-
lega þrjátíU Og átta milljónir SJÁ: Barnseignir
„Sá það með mínum eigin augum.“
sannað þótti, að hann gat ekki
hafa framið glæpinn, sem hann
hafði fengið lífstíðardóm fyrir.
Þá hafði hann setið inni i 14
mánuði. Fimm vitni höfðu bent á
hann og sagt, að hann hefði
framið rán í einu úthverfa
Dallas-borgar, en seinna var
sannað, að hann hafði verið við
vinnu sína á sama tima i 75 km
fjarlægð.
Þegar Geter var látinn laus
sagði hann: „Fólk býst við, að
réttvísin í þessu landi sé óskeik-
ul. Ég veit að svo er ekki og það
eru margir á bak við lás og slá
sem ekki hafa til þess unnið."
Dr. Buckhout átti þátt í því að
ómerkja framburð vitnanna i
máli Lenells Geters. „Það er ekki
verið að draga heiðarleika vitn-
anna í efa heldur áreiðanleika
framburðarins. Það er hægt að
búa til minningar með því að
spyrja vitnið leiðandi spurninga
og vitnið fer að halda, að þannig
hafi atburðurinn einmitt gerst,“
segir Buckhout.
í tilraun, sem gerð var til að
prófa minni manna, var slys sett
á svið og vitnin spurð leiðandi
spurninga um stöðvunarskyldu-
merki. Ekki var um slíkt merki
að ræða en sum vitnanna
„mundu“ samt sem áður eftir því.
Dr. Buckhout segir, að ekki sé
um neina sérstaka manngerð að
ræða, sem auðveldara sé að rugla
í ríminu en aðrar. Falsminning-
um megi koma inn hjá öllum —
þar með töldum lögreglu-
mönnum.
— KF.N CRF.FFIFLD
VEIÐIÞJOFAR
Fílarnir fá
engan frið —
fyrir Japönum
Fílar í Afríku eru felldir í
hrönnum til þess eins að
seðja löngun fólks í fílabein. Jap-
anir eru manna áfjáðastir í fíla-
bein um þessar mundir, að því er
heimildir herma, og keyptu á síð-
asta ári helmingi meira af því en
árið áður. Talið er að beint sam-
band sé á milli þessara auknu
kaupa Japana og ólöglegs fíla-
dráps í Súdan, en þaðan er fíla-
beini smyglað.
Einn þeirra manna, sem barizt
hefur fyrir fílavernd, hefur sagt
að 100.000 fílar eða 8% af afríska
fílastofninum hafi verið drepnir
til þess að fullnægja kröfum jap-
anskra kaupenda. Helmingurinn
af því fílabeini, sem gengur
kaupum og sölum í heiminum,
fer um hendur Japana.
Sérfræðingar eru skelfingu
lostnir vegna þessara upplýsinga
og telja að þær hljóti að leiða til
þess að Bandaríkjamenn og Evr-
ópuþjóðir leggi bann við verzlun
með fílabein, þar sem útrým-
ingarhætta vofi yfir afríska fíla-
stofninum.
Ástæðan fyrir fílabeinsæðinu í
Japan er umfram allt spákaup-
mennska. Prófessor Mideo
Obara, framkvæmdastjóri Jap-
ansdeildar World Wildlife Fund,
segir af þessu tilefni: „Spákaup-
menn sanka að sér fílabeini og
mikið af því fer í hálsfestar sem
skrifstofustúlkur geta látið eftir
sér að skarta með.“ Þá er mikið
um það að gerð séu innsigli úr
fílabeini, sem Japanir nota
gjarnan í stað undirskriftar.
„Þetta er hræðilegt," segir
prófessorinn, „en ég held að
menn geri sér ekki almennt grein
fyrir því, að það þarf að slátra
dýrum til þess að koma höndum
yfir náttúruefni. Við erum orðnir
of ríkir og of gráðugir."
— ROBERT WHYMANT.
100.000 fílar liggja í valnum.
PESTIR
Með illu skal
illt út reka
Þótt hljótt hafi farið eru Eg-
yptar um það bil að hrinda
af stað kjarnorkustyrjöld með
það eitt að markmiói að uppræta
ávaxtafluguna, sem stendur bæði
fæðuframleiðslu landsmanna og
heilsufari þeirra fyrir þrifum.
Herferðin á hendur flugunni,
sem mun kosta um 570 milljónir
isl. kr., er í því fólgin, að aldar
eru upp milljarðar flugna og
þeim síðan sleppt þegar þær hafa
verið gerðar ófrjóar með kjarna-
geislun.
Þetta starf er fyrsti ávöxtur-
inn af samningi Egypta og Kan-
adamanna um starf í kjarnorku-
málum en samkvæmt honum
vinna háskólar í báðum löndun-
um saman að rannsóknum og
þjálfun starfsliðs. Hvað viðkem-
ur stríðinu gegn ávaxtaflugunni
er það þó Alþjóðakjarnorku-
málastofnunin, sem þar hefur
lagt Egyptum íið.
Með geislunaraðferðinni er
hægt að hafa áhrif á arfbera
skordýra án þess mikla kostnað-
ar, sem er við venjulegt skor-
dýraeitur, svo ekki sé þá talað
um hættuna, sem mönnum starf-
ar af eitrinu, og yfirleitt óæski-
leg áhrif þess á allt umhverfið.
Ávaxtaflugan leggst á sítrus-
ávöxtinn og aðrar ávaxtategund-
ir á öllum ræktunarsvæðum f
Egyptalandi og gerir mjög erfiða
nauðsnylega aukningu í fæðu-
framleiðslunni. Á 1,25 milljón
ekrum lands í Egyptalandi eru
ræktaðar jurtir, sem fiugan herj-
ar á, og til að halda henni í skefj-
um er notað innflutt skordýraeit-
ur, sem kostar um 1.800 kr. á
hverja ekru.
' Þeir sem að þessu starfi vinna
fullyrða að eftir fjögur ár verði
búið að útrýma ávaxtaflugunni í
Egyptalandi.
Með því að sleppa ófrjóum
ávaxtaflugum hefur tekist að út-
rýma henni á ítölsku eyjunum
Procida og Kaprí og halda henni
í skefjum á stórum svæðum í
Mið-Ameríku, t.d. í Mexíkó þar
sem hún var alveg gerð útlæg.
— THOMAS LAND.
Þetta gerðist líka ...
Dúfur
á pillunni
Borgaryfirvöld í Feneyjum
hafa um nokkra hríð haft
áhyggjur af fjölgun dúfna þar
vegna þeirra óhreininda og
skemmda sem þær valda. í fyrri
viku greindi Mario Rigo borgar-
stjóri frá því að liður í barátt-
unni gegn þessum ófögnuði væri
að gefa dúfunum á skipulega
hátt fæðu sem inniheldur getn-
aðarvarnarefni. Hann sagði að
ástæða væri til að brýna fyrir
fólki sem hygðist veiða dúfur
borgarinnar sér til matar að láta
það ógert. Getnaðarvarnarefnin
sem í þeim væru kynnu að hafa
aukaverkanir.
Ekki hjarta-
styrkjandi
Þrítugur maður í Dyflinni, Ni-
all Rushe að nafni, sem bauðst
til þess að prófa hjartalyf, sem
þýskir lyfjaframleiðendur eru að
gera tilraunir með, lést fimmtán
mínútum eftir að hann tók það
inn. Atvik þetta átti sér stað í
júní og nú hafa stjórnvöld í irska
lýðveldinu ákveðið að setja sér-
stök lög sem takmarka það
hvernig að lyfjaprófun er staðið.
Fjársjóður
Napóleons
Kafarar eru nú komnir á slóð-
ir flaggskips flota Napóleons
Bónapartes, L’Orient, sem Nel-
son flotaforingi Breta lét sökkva
fyrir utan strendur Egyptalands
árið 1798. Þeir hafa fundið forna
mynt og kanónur úr skipinu og
þegar þeir hafa komið auga á
flakið sjálft hyggjast þeir reyna
að ná því upp og hlakka vænt-
anlega til að handleika dýrmæt-
an farminn.
Skipst
á skotum
Lestarvörður lét lífið og far-
þegi særðist alvarlega þegar til
skotbardaga kom fyrir nokkru
milli lögreglu og vopnaðra
skæruliða í lest sem var að fara
frá Santíagó, höfuðborg Chile.
Lögregluyfirvöld segja að reynt
hafi verið að stöðva 20 manna
hóp skæruliða sem voru að
dreifa flugritum gegn stjórninni
í lestinni og hafi þá komið til
bardaga.
Þið munið
hann Gelli
ítalir hafa beðið stjórnvöld á
Montserrat-eyju í Karabíahafi
að handtaka strokufangann Lic-
io Gelli, sem er leiðtogi hinnar
illræmdu frímúrarastúku P2 á
Ítalíu, en orðrómur er á kreiki
um að Gelli hafi sést á eynni.
Italir eru ekki sérlega trúaðir á
að þær sögur séu á rökum reist-
ar, en allur er varinn góður ...
Sitt lítið
af hverju
Flóttamönn-
um fækkar
Flóttamönnum í Blálandi —
Afríku — hefur fækkað um tvær
milljónir á einum áratug, úr
fimm mílljónum í þrjár, og er
ástæðan sú hve stór hópur
manna hefur snúið á ný til fyrri
heimkynna sinna, einkum
Zimbabwe, Eþíópíu, Angóla og
Chad.
Frú Jeane Kirkpatrick, sendi-
herra Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum, mun láta af
störfum fyrir Bandaríkjastjórn
eftir forsetakosningarnar í nóv-
ember og hyggst snúa sér að há-
skólakennslu á ný... Fyrsta
barnið sem getið er í tiirauna-
glasi í kommúnistaríki fæðist
væntanlega í Austur-Þýskalandi
síðar á þessu ári... Franski
heimspekingurinn og sagnfræð-
ingurinn Michael Foucault er
látinn, 57 ára að aldri...
Menntamálaráðuneytið í Kína
hefur bannað líkamsrefsingar í
skólum landsins ...