Morgunblaðið - 08.07.1984, Síða 14

Morgunblaðið - 08.07.1984, Síða 14
r*v •«♦ »jí > i r *'• y *: 11 :> #v n nvrvnnrn a ,xvnrm< 62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984 Síðastliðið ár, 25. mars 1983 til páskadags á þessu ári, var heilagt ár, fagnaðarár til minn- ingar um að þá voru lið- in 1950 ár frá endurlausninni, krossdauða Krists. Þann sið, að halda heilagt ár, má rekja allt til Móselögmálsins í Gamla testamentinu (sjá 3. bók Móse, 25, 10). Talan 7 var heilög tala meðal gyðinga, og þar sem 7 sinnum 7 ár eru 49 ár, var 50. árið heilagt. Þá átti að friða allt rækt- arland, hvorki mátti sá né skera upp, þá átti að skila jarðeignum aftur í hendur fyrri eigenda, gefa þrælum frelsi og mönnum voru annaðhvort gefnar upp skuldir eða þær voru afgjaldslausar það árið. Þessi merkilegi siður kom í veg fyrir að jarðeignir söfnuðust á hendur fárra manna og að nokkur gæti fæðst til örbirgðar, þar sem allir hlutu land að erfðum. Vegna þessara lögmálsgreina mynduðust ekki auðstéttir og engir sukku heldur í fátækrafen. Þrælahald var í reyndinni leyst upp, þar sem ekki mátti halda mönnum enda- laust í ánauð. Innan kaþólsku kirkjunnar var þessi siður, að halda heilagt ár, tekinn upp aftur árið 1300, á dög- um Bonifatiusar VIII páfa, eftir því sem best er vitað. Þá var boðið aflát þeim sem skriftuðu og heim- sóttu kirkjur Péturs og Páls. Lat- erankirkjunni var bætt við 1350 og Maríukirkju hinni meiri 1390. Þá taldi Urban VI páfi að halda mætti heilagt ár á 33 ára fresti, enda kæmi sá tími heim við aldur Krists. Páll II páfi ákvað svo að halda skyldi heilagt ár á 25 ára Frá áheyrnarfundi norrænna pílagríma í Róm 30. mars sl. Á fremsta bekk sitja, talið frá vinstri: dr. Hinrik Frehen Reykjavíkurbiskup, Hubertus Brandenburg Stokkhólmsbiskup, John W. Gran Oslóarbiskup (hefur látið af störfum sem biskup), Jóhannes Páll II páfi, Paul Verschuren Helsinkibiskup, Hans L. Martensen Kaupmannahafnarbiskup og Gerhard Schwenzer Oslóarbiskup. slendingar í suðurgöngu eftir Torfa Ólafsson fresti og hefur svo verið síðan, að undanteknum smátilfærslum. Árið helga hefst á því að páfi opnar dyrnar helgu á Péturskirkj- unni, sem önnur ár eru lokaðar, og felur kardínálum að opna samtím- is hinar helgu dyr hinna höfuð- kirknanna þriggja. Þetta gerðist nú 25. mars 1983. Á árinu helga reyna sem flestir að heimsækja Róm, ganga í höfuð- kirkjurnar fjórar og endurnýja líferni sitt í anda Krists. Þá líta menn jafnan á það sem hápunkt pílagrímsferðarinnar ef þeim gefst tækifæri til að hitta páfann, leiðtoga rómverskrar kristni. Þegar nokkuð var liðið á árið helga, fóru Norðurlandamenn að bera saman ráð sín, hvort þeir gætu ekki efnt til sameiginlegrar suðurgöngu, eins og Rómarferðir voru kallaðar fyrr á öldum. Þróað- ist sú fyrirætlun þann veg að norrænir pílagrímar skyldu verja þrem dögum sameiginlega i Róm en vera að öðru leyti á eigin snær- um, hvert Iand út af fyrir sig. Hópurinn héðan, 20 manns, lagði upp að morgni 23. mars og kom til Rómaborgar um kvöldið. Séra Hjalti Þorkelsson fór með hópnum og annaðist leiðsögn, enda var hann sá eini sem bjárg- álna var á ítalska tungu. Fyrsta daginn var skoðuð Maríukirkja hin meiri (S. Maria Maggiore). Hún var byggð á 5. öld. Ytri gerð hennar er þó frá 18. öld, en hið innra er hún besta dæmið um klassíska „basilíku" sem völ er á. Basilíkubyggingarformið er ævagamalt og markaðstorg voru til forna byggð með því lagi. Yfir kirkjuskipinu er flatt, upphafið þak, en súlnaraðir, sín til hvorrar handar, marka af hliðarstúkur sem eru með lægra þaki. Heitið basilíka fór þó með tímanum að merkja stóra og veglega kirkju, þótt hinu forna byggingarlagi væri ekki alltaf haldið. Þá var gengið í kirkjuna S. Prassede sem byggð var á 9. öld. Hún ber nafn hella^'-ar Prassede sem átti þarna hús, að því er sag- an segir, og leyndi knstnum mönnum á ofsóknatimunum. í henni er kapella hl. Zenone, fræg fyrir dýrlegar mósaikskreytingar. Kirkja þessi þykir ekki mjög göm- ul í Róm, ekki eldri en það að þeg- ar hún var byggð, vissi enginn að ísland væri til nema fáeinir írskir munkar, en þó þykir hún endur- spegla með afbrigðum einfaldleika og trúarvissu löngu liðinna alda. Daginn eftir, sunnudaginn 25. mars, hlýddum við messu í kirkju rússneska prestaskólans, Ponti- ficio Collegio Russo, sem i daglegu tali er kölluð Russicum. I slíkri kirkju er altarið skilið frá fremri hluta kirkjunnar með fullháu þili sem kallast „ikonostas" og er það skreytt helgimyndum. Bak við það fara fram helgustu þættir mess- unnar, svo sem gjörbreytingin — helgun brauðs og víns. Fagurlega var sungið alla messuna, sem tók 1 klst. og 45 mín., hljómmiklar karlaraddir, og stóðu kirkjugestir lengst af svo að okkur þótti meira en nóg að gert. Við bergingu er brauðið, sem brotið hefur verið niður í vínið í kaleiknum, látið upp i altarisgesti með skeið en seint í méssunni er úthlutað „antidoron", hinu blessaða brauði, sem er allt annað en hið helgaða brauð altar- issakramentisins, og er til reiðu fyrir alla. Síðdegis fórum við í Péturs- kirkjuna en þar var þá mesta mannþröng sem nokkurt okkar hafði séð þar, svo að fé í skilarétt hafði þrjú herbergi og eldhús til umráða fyrir hverja kind í sam- jöfnuði við það. Ástæðan var sú að páfinn hafði bænahald í kirkjunni skömmu eftir komu okkar þangað. Hann hafði daginn áður helgað heiminn Maríu Guðsmóður og stóð Maríustytta, eftirmynd styttunn- ar frá Fatíma í Portúgal, á páfa- altarinu. Næsta dag fórum við í Lateran- kirkjuna, sem er dómkirkja páf- ans, Rómarbiskups, en þar var þá sama mannmergðin og í Péturs- kirkjunni daginn áður og af sömu ástæðu, svo að við héldum sem snarast út aftur. Þó skoðuðum við stigann helga, Scala Sancta, sem er hinumegin við götuna. Sagan segir að það sé stiginn sem Jesús gekk upp, þegar hann var leiddur fyrir Pílatus í Jerúsalem, og hafi heilög Helena látið flytja hann til Rómar. Upp þennan stiga ganga margir trúaðir á hnjánum og er þar stöðug mannaferð með þeim hætti. Ekkert okkar lét þó í ljós ósk um að leggja á sig þetta yfir- bótarverk og lái okkur það hver sem vill. Þó hef ég sannfrétt að Páfi heilsar dr. Hinrik Frehen Reykjavíkurbiskupi. Bak við þá stendur Hubertus Brandenburg Stokk- hólmsbiskup.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.