Morgunblaðið - 08.07.1984, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 08.07.1984, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984 63 nokkrir Danir hafi lagt þetta á sig og má vel vera að þeim hafi dottið í hug að bæta þannig fyrir einok- unina þegar þeir sáu okkur. Uppi á pallinum er kapella þar sem geymt er margt helgra dóma. Þaðan var ekið eftir Appiavegi hinum forna sem fullgerður var 312 f. Kr. Nokkur hluti hins forna vegar er enn sýnilegur, lagður hellusteinum, og hefur varla verið notalegt fyrir Rómverja hina fornu að aka eftir honum í hest- vögnum sínum, enda óku þeir allt- af standandi. Farið var fram hjá grafhýsi Sesselju Metella, sem var ríkiskona, tengdadóttir auðkóngs- ins Licinusar Crassusar sem græddi á því að kaupa jarðeignir dæmdra manna ódýrt. Árið 1300 gaf Bonifatius VIII páfi ættingj- um sínum grafhýsið en þeir gerðu sér þar virki og heimtuðu vegar- skatt af þeim sem leið þessa fóru. Skattheimta þessi varð þó óvin- sæl, eins og skattheimtur eru jafnan, og af þeirri ástæðu var lagður Appiavegurinn nýi sem lá að dyrum Lateranhallarinnar. Við Appiaveginn stendur líka kapellan Domine Quo Vadis. Sagan segir að Pétur postuli hafi lagt á flótta frá Róm undan ofsóknaræði Nerós keisara og hafi hann þá mætt Kristi. Spurði þá Pétur: „Domine, quo vadis?“ (Drottinn, hvert ætl- arðu?) en Kristur svaraði: „Inn í Róm að láta krossfesta mig aftur." Pétur skildi sneiðina og sneri aft- ur til Rómar þar sem hann leið píslarvættisdauða. í kapellunni er eftirmynd af steini með fótspori og á það að vera fótspor Krists. Upphaflegi steinninn er þó geymdur í kirkju hl. Sebastians. Árla næsta morgun var haldið til Assisi, borgarinnar fornu í vesturhlíðum Subasio-fjalls, þar sem hl. Frans fæddist 1181 eða 1182 og dó 1226. Þar er klaustur grámunka (Franciskana) og kirkja dýrlingsins, eða réttara sagt kirkjur, því þær eru tvær, á efri og neðri hæð. Las séra Hjalti messu í efri kirkjunni. Eru þetta geysi- stórar og veglegar byggingar og finnst manni þær eiginlega nokk- uð risavaxinn minnisvarði um þennan alsnauða prédikara sem hataði og fyrirleit peninga og munað, vildi ekkert eiga og tignaði fátæktina. Þar hvíla bein hans og tötrar hans eru þar til sýnis. Neðan við hlíðarræturnar er kirkjan S. Maria degli Angeli. Þar var Portiuncula, staðurinn þar sem bræðurnir höfðust við fyrstu þrjú árin af sambúð sinni, og stendur kapella þeirra inni i sjálfri kirkjunni og fer ekki mikið fyrir henni þar, frekar en litla sjúkraskýlinu þar sem Frans dó. En til Portiuncula sneru bræðurn- ir aftur og byggðu þar kirkju litla og kringum hana kofaræfla handa sér. Uppi í borginni er kirkja hl. Klöru. Klara var fögur stúlka, fædd til auðs og munaðar en afsal- aði sér því öllu og vildi lifa eins og hl. Frans. Hún var upphafsmaður Klarissanna (The poor Clares) sem tóku líf grámunka sér til fyrirmyndar. Helgur dómur Klöru hvílir í kirkju hennar. Næsti dagur átti að vera fyrsti samvistardagur pílagrímanna norrænu en fyrir einhver torskilin mistök biðum við árangurslaust eftir vagni þeim sem átti að sækja okkur til sameiginlegrar messu og áheyrnarfundar á Péturstorgi. Daginn eftir tókst þó að ná sam- bandi við frændþjóðirnar og fór- um við með þeim að skoða Domit- illakatakomburnar og Pálskirkju utan múra (hinna fornu borgar- múra), þar sem gengið var inn um dyrnar helgu með bænalestri og sálmasöng. Inni í kirkjunni er skuggsýnt en þó mátti greina, hátt uppi, páfamyndirnar sem eru fest- ar hringinn i kring undir loftinu. Enn er autt bil eftir, fyrir nokkrar myndir, en sögnin segir að þegar myndhringurinn sé kominn alla leið í kring og ekki sé rúm fyrir fleiri myndir, sé komið að enda- lokum heims. Næsta dag, sem var föstudagur, mættust fulltrúar norðursins á SJÁ BLS. 66 100 daga áætlun Macintosh tölvan var kynnt 24. janúar 1984 og hafa menn síðan keppst við að lofa þessa nýju tölvu. Apple gerði djarfa 100 daga áætlun. Aætlað var að selja 50.000 tölvur fyrstu 100 dagana. Áætlunin stóðst engan veginn, salan varð 70.000 stykki. Nú er ljóst að Macintosh tölvan frá Apple er mest selda nýja einkatölva sögunnar. En hvers vegna er Macintosh tölvan svona vinsæl? Megin ástæðan er sú að það er svo auðvelt að nota Macintosh. Það tekur ekki nema u.þ.b. 2 klst. að læra svo vel á hvert forrit að hægt er að nota það af fullum krafti í stað margra daga eða vikna. Þegar þú ert búinn að læra eitt forrit þá er auðvelt að læra fleiri því skipanirnar eru alltaf eins. Macintosh er fyrirferðarlítil og kemst auðveldlega á skrifborð og tekur lítið meira pláss en sími. Ekki skortir Macintosh tölvuna hraða né getu því hún er búin einni öflugustu örtölvu sem um getur. Motorola 68000 sem er 32 bita. Það er enginn vafi á því að það verður rifist um þessar fáu tölvur sem við höfum fengið. Sjón er sögu ríkari. Komdu og kynnstu Macintosh frá Apple. KYNNINGARVERÐ KR. 75.000 ÚTBORGUN KR. 15.000 EFTIRSTÖÐVAR Á ALLT AÐ 10 MÁNUÐUM Skipholti 19 Sími 29800

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.