Morgunblaðið - 08.07.1984, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLI1984
tröppum Péturskirkjunnar og
hlýddu þar messu sameiginlega í
einni kapellunni. Norðurlanda-
biskupar sungu messuna. Að
henni lokinni var haldið til
áheyrnarsalar uppi f Vatíkanhöll-
inni og þar ávarpaði Jóhannes
Páll II hópinn. Eftir ræðuna heils-
aði hann biskupunum og öðrum
fyrirmönnum, sem sátu í fremstu
röð, en þar eftir gekk henn fram
salinn, meðfram sætaröðinni, og
heilsaði því fólki sem til hans náði
og var leitað fast eftir því að geta
a.m.k. snert hönd hans. Þessi
áheyrnarfundur var í rauninni há-
punktur ferðarinnar, því að hvaða
skoðun sem menn hafa á páfa-
dómi, verður því ekki neitað að
leiðtogi heimskirkjunnar og eftir-
maður Péturs postula nýtur virð-
ingar um allan heim og á orð hans
er hlýtt, hvort sem menn eru hon-
um sammála eða ekki. Stjórn hans
tryggir einingu í kirkjunni og þótt
hann hafi ekki hersveitir eða
vetnissprengjur til að skaka fram-
an í fólk, eru völd hans mikil. Og
þótt á ýmsu hafi gengið í Vatíkan-
inu í rás sögunnar, hefur eining
kirkjunnar og kenning varðveist
ósködduð og er það út af fyrir sig
kraftaverk. Og til allrar guðsmiidi
hafa páfar okkar tíma allir verið
úrvalsmenn sem við getum verið
stolt af.
Næsta dag voru skoðaðir ýmsir
alkunnir staðir borgarinnar eilífu,
svo sem spænsku tröppurnar
frægu, en þar sem vorverk voru
eiginiega fyrst um þetta leyti að
hefjast í Róm, voru engin blóm
ennþá á tröppunum og engir lista-
menn komnir á kreik með verk
sín. Sum okkar fleygðu smápen-
ingi aftur yfir vinstri öxl sína í
Trevi-brunn, til að tryggja endur-
komu sína til Rómar en ég þurfti
þess ekki því ég var nýbúinn að
týna regnhlífinni minni. Þá geng-
um við í Ignatíuskirkju, sem heitir
eftir stofnanda Jesúítareglunnar,
sem Nonni tilheyrði, og byggð var
á 17. öld, eða um svipað leyti og
Hallgrímur Pétursson orti Passíu-
sálmana. Þá var skoðuð kirkjan S.
Maria sopra Minerva, eina gotn-
eska kirkjan í Róm, sem byggð var
seint á 13. öld á rústum Mínervu-
musteris. Þar hvílir helgur dómur
Katrínar frá Siena, dominikanas-
ystur sem uppi var á 14. öld,
kjarnakonu sem hlutaðist til um
stjórnmál og kirkjumál af svo
miklu kappi að valkyrjur nútím-
ans hefðu þótt hreinar postu-
línsdúkkur í samanburði við hana.
Önnur Jesúítakirkja var skoðuð og
nefnist hún II Gesú. Torgið fyrir
framan hana kvað vera veðrasam-
asti staður Rómaborgar og er sú
saga til af því að djöfullinn og
vindurinn hafi eitt sinn verið á
gangi fyrir framan kirkjuna. Bað
þá kölski vindinn að hafa sig af-
sakaðan augnablik, hann þyrfti að
skreppa inn í kirkjuna. En hann
kom ekki út aftur og vindurinn
bíður þarna eftir honum enn þann
dag í dag. Skreyting þessarar
kirkju er enginn hégómi, þar glóir
hvarvetna á gull og gimsteina, súl-
urnar við gröf Ignatíusar eru
klæddar lapis lazuli, sem gengur
næst gimsteinum og er verðlagður
samkvæmt því, og efst er stóreflis
hnöttur úr þessum dýra steini,
stærsta stykkinu sem vitað er um
í heiminum.
Þá var gengið um Navonatorg
þar sem er hinn stórfenglegi
gosbrunnur fljótanna fjögurra,
eftir Bernini sem uppi var á 17.
öld. Þar var enn ekkert um að
vera, engir listamenn eða kaupa-
héðnar, engar manneskjur nema
við og hrúgald tötralegra auðnu-
leysingja sem biðu þess að tíminn
liði.
1. apríl var sunnudagur. Þá las
séra Hjalti messu á íslensku í
kirkju hl. Appollinare og mun það
teljast til undantekninga að messa
sé lesin á þeirri tungu í borginni
eilífu.
Síðdegis var ekið út fyrir Róm-
arvelli, til Villa Adriana. Adrian
var keisari í Róm, spænskur að
ætt og var þarna hvíldarsetur
hans. Hann dó 138 e. Kr. Til þessa
staðar safnaði hann listaverkum
og góðum gripum sem hann fann á
hinum mörgu ferðalögum sínum
og lét byggja dýrleg hús eftir þeim
sem honum fundust fegurst með
öðrum þjóðum og höggmyndir
voru hvarvetna. Löngu eftir hans
dag hlaut þessi fagri staður að
þola rán og húsbrot ýmissa sið-
leysingja, hallir voru jafnaðar við
jörðu og urpust mold en á síðari
öldum hefur margt af þessu verið
grafið upp og minna nú veggja-
brot, súlnasamstæður og skaddað-
ar höggmyndir á fegurð og mikil-
leika liðinna alda.
Skammt þaðan er borgin Tivoli,
sem kunnir staðir í öðrum löndum
draga nafn sitt af. Í útjaðri henn-
ar er Villa d’Este, sumarsetur Ipp-
olito d’Este kardínála frá Ferrara
en hann var sonur þeirrar frægu
konu Lucretia Borgia, dóttur Al-
exanders VI páfa, sem fræg var
fyrir gáfur og fegurð og dó 1519.
Kardínálinn lét byggja höll þessa
þegar hann var skipaður land-
stjóri í Tivoli og sýnir höllin og
garðurinn við hana að eigandann
hefur ekki skort skotsilfur um
dagana. Höllin er skreytt lista-
verkum og garðurinn gosbrunn-
um, vatnslindum og höggmyndum
svo listilegum að ferðamaðurinn
stendur og starir orðlaus.
Daginn eftir las dr. Hinrik Fre-
hen biskup okkar messu fyrir
okkur í kirkju Montfortpresta en
síðdegis fylgdi frú dr. Peter okkur
um nokkra merkisstaði borgarinn-
ar. Frúin er austurrisk, hálærð í
tungumálum og vinnur m.a. að
hinni þýsku útgáfu af L’Osservat-
ore Romano, málgagni páfastóls-
ins.
Fyrst var skoðuð basilíka hl.
Klemensar páfa og er ekki víst
hvaða páfinn með því nafni það
var í röðinni sem kirkjan er kennd
við, en í rauninni er hér um að
ræða þrjár kirkjur sem byggðar
eru hver á rústum annarrar milli
1. og 12. aldar, en undir öllum
þessum kirkjum eru leifar af Mí-
þrasarmusteri. Kirkjan hefur ver-
ið í umsjá írskra svartmunka síð-
an 1667. Míþrasartrúin var þurrk-
uð út eins og önnur heiðin trú-
arbrögð seint á 4. öld. Míþras var
guð, fæddur af steini, sem hlýddi
þeirri skipun Appollós að drepa
naut er var tákn frjóseminnar.
Höggormur og hundur voru hon-
um til hjálpar en sporðdreki sveik
hann og skvetti niður nokkru af
blóði nautsins, sem allt það er lifir
var skapað af, og þannig komst
hið illa inn í heiminn.
Nú var komin hellirigning og
var því farið heldur fljótt yfir,
Sabínukirkja frá 5. öld skoðuð
lauslega, þar er svartmunka-
klaustur, síðan ekið með skamm-
vinnri viðstöðu á nokkrum stöðum
að S. Pietro in Montori, en sú
kirkja er á staðnum þar sem sag-
an segir að Pétur postuli hafi ver-
ið krossfestur.
Næsta dag var farið í Vatíkan-
söfnin og Sixtínsku kapelluna dýr-
legu, en hana var erfitt að skoða í
þetta sinn vegna mannmergðar og
eins vegna þess að verið er að gera
við hana. Síðan voru skoðaðar
páfagrafirnar í grafhvelfingum
Péturskirkjunnar.
Daginn eftir var ekið til Castel
Gandolfo, þar sem sumarsetur
páfans er, og byggist afkoma bæj-
arbúa þar mikið á ferðamönnum,
en þar sem Jóhannes Páll II gefur
sér lftinn tíma til að hvíla sig í
„sveitinni", er ekki margt þangað
að sækja, enda finnst bæjarbúum
Jóhannes Páll vera afleitur páfi að
vanrækja staðinn svona. Á heim-
leið var komið við í Grottaferrata,
þar sem Franciskusystur hafa all-
stórt klaustur og kirkju og hittum
við þar systur Jóhönnu frá Stykk-
ishólmi, en hún hafði áður komið
til móts við okkur í Róm.
Nú var farið að líða á Rómar-
dvölina og sinnti hver sínu áhuga-
máli síðustu dagana, sumir fóru í
búðir, aðrir að Colosseum og á
Forum Romanum og Palatínhæð,
en af nafni hennar eru komin Evr-
ópuorðin yfir höll — Palace, Pal-
ast, palads — svo og „latína", en
hún var mál Palatínanna, þeirra
sem bjuggu á hæðinni.
Þegar menn kveðja Róm er
þeim efst í huga hversu ótal margt
er enn óséð og hversu flest hið
séða var aðeins lauslega skoðað,
enda er sagt að til þess að kynnast
Róm að einhverju gagni, þurfi
menn að dveljast þar að minnsta
kosti í tvö ár og „vinna" 10 stundir
á dag að skoðun hennar. En þess
var nú ekki kostur og því lifði sá
vonarneisti hjá sumum að smá-
peningarnir, sem þeir köstuðu aft-
ur yfir vinstri öxl sína í Trevi-
brunninn, mundu beina för þeirra
á ný til borgarinnar eilífu.
ISUZU Pallbíll
Á ISUZU PALLBÍLNUM ERU ÞÉR EKKI AÐEINS ALLIR VEGIR FÆRIR - ÞÚ FERÐ YFIR
STOKKA OG STEINA, FJÖLL OG FIRNINDI. ÞAÐ HAFA RÖSKLEGA MILLJÓN BÍLAR SEM
FRAMLEIDDIR HAFA VERIÐ AÐ ÞESSARI GERÐ, SANNAÐ UM HEIM ALLAN.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR:
LENGD: 4,42m, PALLENGD:
1,85m,
LENGD MILLI HJÓLA: 2,6m,
LENGD: 4,86m, PALLLENGD:
2,29m,
LENGD MILLI HJÓLA: 2,99m,
BREIDD: 1,6m, HÆÐ: 1,6m,
LÆST MISMUNADRIF, SJÁLF-
STÆÐ FJÖÐRUN AÐ FRAMAN,
BENSINVÉL, DÍSELVÉL, AFL-
STÝRI.
VERÐ:
M/BENSÍNVÉL 386.000,-
M/DÍSELVÉL 413.000,-
ÞETTA ER BÍLL SEM KEMUR
ÞÉR Á ÓVART - OG ÞAÐ Á LlKA
VIÐ UM GREIÐSLUKJÖRIN SEM
VIÐ BJÓÐUM.
VERÐ ER MIÐAÐ VID GENGI 20 6 1984
AN RYÐVARNAR OG SKRANINGAR
BÓLSTRUÐ SÆTI KLIFURHALU 35 BURÐARGETA ER1050KG SJÁLFSTÆÐ FJÓÐRUN
STOKKUR MILLISÆTA GRÁÐUR HÆÐ UNDIR LÆGSTA AÐFRAMAN
PUNKT 21 sm
BiLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300