Morgunblaðið - 08.07.1984, Side 20

Morgunblaðið - 08.07.1984, Side 20
► wfif t /tVr q arT*’ > riTTT/T/ría ntn * TaT/r?naA»r MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984 68 68 Helgistaður allra íslendinga samkvæmt lögum. Hvað þýðir það? Getur það verið að venjulegt þinghald helgi staðinn þar sem það fer fram? Er það sagan sem helg- ar? Eöa kirkjan? Guð? Helgi Að vera helgaður er að vera frátekinnn fyrir ákveðinn til- gang eða aðila. Þingvöllur var helgaður fyrir þing, bæði í kristnum og heiðnum sið, og breyttist þá fallegur gróðurreit- ur í þingstað. En nú hittist Al- þingi í Reykjavík. Og þótt ýmis- legt mætti segja um það, getur það ekki talist heilög samkoma, nema í þeirri merkingu að þar vinni menn að þeirri heilagri skyldu sinni að stjórna löggjöf landsins. Til eru lög sem talin eru heilög, grunnmannréttindi eru meðal þeirra, en þau eru ekki heilög í sjálfu sér, heldur verður reynslan að skera úr um það, hversu góð þau eru. Sagan sýnir okkur hvort menn eða hiutir voru heilagir. Þegar við horfum aftur sjáum við sam- hengið í öðru ljósi en á þeirri stundu þegar þau gerast. Við sjáum eftir á hvort atvik eða ákvörðun hafi verið til góðs eða ills, þjónað tilgangi sínum eða ekki. Tilgangur Alþingis á öllum tímum er að efla lög og reglu í landinu, en það er forsenda þess að menn lifi samfélagslífi með samlöndum sínum og öðrum. Líf í samfélagi krefst friðar og sáttagerðar manna í millum. Við getum deilt um hvort Alþingi á Þingvöllum hafi staðið undir þessum tilgangi sínum, en vert er að nefna að helstu ákvarðanir þess, miðuðu að friði og einingu þeirra manna sem byggðu land- ið. í heiðnum sið helgaði alsherj- argoði Þingvöll til þinghalds, en í kristni færðist það í hendur kirkjunnar. Þar með var þing sett í samhengi alheimsreglunn- ar; tilgang Ásanna í heiðni, en Guðs föður, sonar og heilags anda í kristni. Hvort helgunin náði fram tilgangi sínum verður sagan að skera úr um, hér sem annars staðar. Kirkjan helgaði þing, og þar með veitti hún blessun Guðs yfir störf þess. Helgunin náði líka yfir staðinn sjálfan, og mátti því segja að Guð sjálfur væri þar nærstadd- ur. Við hljótum að spyrja: Er það satt? Og svarið vitnar til reynslunnar, sögunnar og Biblí- unnar. Helgistaöur Hinn sígildi ritningartexti kristinna helgistaða er I Móse- bók 28:10 nn, þar sem Jakob leggst til svefns í Betel og dreymir himnastigann. Þar fær hann fyrirheit frá sjálfum Guði um blessun hans og nærveru, og þegar Jakob vaknar segir hann: „Vissulega er Guð á þessum stað og ég vissi það ekki.“ Afkomend- ur Jakobs voru sammála forföð- ur sínum um helgi þessa staðar og tilbáðu Guð þar um langa hrið. Áherslan hér er á nærveru Guðs. Guð valdi að gefa sig til kynna á þeim stað fyrir augum Altaristöflurnar tvær í Þingvallakirkju. Báðar eru táknrænar fyrir Þingvelli að því leyti að þær tjá hluta af friðar- og sáttargjörðarboðskapi Jesú Krists til okkar, miskunn hans og samfélag við sig og aðra menn. manna. Sú birting Guðs gerði menn hæfari að takast á við líf- ið. Jerúsalem var aðalhelgistaður (og er enn) Hebrea og gyðinga. Samkvæmt 46. Davíðssálmi bjó Guð í borginni. Hann var sífellt nærstaddur. í Jerúsalem fór fram reglubundið helgihald og dómur í málum manna voru upp kveðnir, í nafni Guðs. Getur verið að Þingvellir séu á einhvern hátt íslensk hliðstæða slíkra helgistaða? Þegar Jónas Hallgrímsson yrkir um Þingvelli sér hann for- sjón Guðs í þeim. Hann talar um „alþjóð minni helgað bjarg" í ljóðinu „Fjallið Skjaldbreið", að Guð sjálfur hafi búið til og gefið íslendingum staðinn, svo að jafnvel heiðinginn Geitskór komst ekki hjá því að greina dýrð Guðs þar. Og nú eru Þing- vellir helgistaður allra Islend- inga samkvæmt lögum. Okkar 'er þá að njóta staðarins, að hlusta á söguna renna þar um í sameig- Vatnsvík og Hallvík. Við Vellankötlu í Vatnsvík mættust flokkar kristinna manna á leið til þings árið 999 eða 1000. „Þeir Gizurr (hvíti) riðu þar til, er þeir kómu til Vellankötlu við Ölfusvatn. Þá gerðu þeir orð til alþingis, at vinir þeira ok venzlamenn skyldu ríða í mót þeim. Þeir höfðu spurt, at óvinir ætluðu at verja þeim þingvöllinn." (Úr Kristni sögu.) inlegum farvegi og greina hönd Guðs þar. Leyfa þeirri hönd að fara um okkur og umbreyta okkur í líkingu Guðs. Hvers vegna helgistaöi? „Hinir sönnu tilbiðjendur skulu tilbiðja föðurinn í anda og sannleika,” sagði Jesús er sam- verska konan við brunninn innti eftir hinum rétta tilbeiðslustað. Jesús lagði áherslu á að ekki staður eða stund skipti tilbeiðslu máli, heldur hjartalag þess sem biður. Samt hafa fjölmennustu kirkjudeildir jarðar haldið upp á helga staði. En þeir eru ekki til að takmarka tilbeiðslu hins kristna heldur auka og glæða hana. Á stað þar sem Guð hefur svo greinilega verið að verki er gott að koma og endurnýja, styrkja og glæða trú sína. Þar sem fyrri kynslóðir kristinna bræðra og systra gerðu heit sín og bænir verðum við vör við að við erum hluti kirkju sem var áður en við urðum til og verður eftir að við erum farin. „Alþjóö minni helgaö bjarg“ ísland er harðbýlt land og hef- ur alltaf verið. Maðurinn hefur nóg með að kljást við höfuð- skepnurnar, án þess að vera líka að kljást við samlanda sinn. Til þess að efla einingu þjóðar var þingað. Þingvellir voru því helg- aðir friðarbaráttu manna í mill- um, í heiðni og kristni. Þessi helgun er verkefni hverrar kynslóðar að viðhalda og láta verða að raunveruleika. Hún er kristið verkefni, því kristni er trúarbragð friðarins, sáttargjörðarinnar þæði við Guð og milli manna. Við tökum þátt í henni með því að lifa þá trú sem við skírðumst til og játuðum í fermingu til fulls, og leyfum Guði þar méð að gera okkur að verkfæri sínu, verkfæri þess friðar, sem aðeins hann getur gefið. C. V Krossskarð. Lögberg er undir fánanum. „Þormóðr hét prestr sá, er Óláfr konungr hafði fengit þeim Hjalta ok Gizuri. Hann söng messu um daginn eftir á gjábakka upp frá búð Vestfirðinga. Þaðan gengu þeir til Lögbergs ... Þá var þat uppsaga Þorgeirs, at allir menn skyldu vera skírðir á Íslandí ok trúa á einn guð, en um barnaútburð ok hrossakjötsát skulu haldast in fornu lög. Menn skyldu blóta á laun, ef vildi, en varða fjörbaugsgarði, ef váttum kæmi við. Sú heiðni var af tekin nökkrum vetrum síðar." (Úr Kristni sögu.) Kynning á bókum biblíunnar: Jobsbók Af hverju er öll þessi þjáning og böl í heiminum? Börn hungr- ar. Vanfærar konur ristar á kvið. Bræður berast á banaspjót. Ungt fólk sem gamalt fellur fyrir hendi sjúkdóma. Hví skyldi sak- laust fólk líða? Er þá ekkert rétt- læti í heiminum? Ein af perlum Biblíunnar og þar með heimsbókmenntanna er Jobsbók. Hún fjallar um vandamál þjáningarinnar. Þar segir frá Job, grandvörum og réttlátum manni, sem verður fyrir því óláni að missa allt sitt á einum degi. Nautunum og úlföldunum er stolið. Synir hans og dætur deyja í fellibyl. Og síðar er hann sjálfur einnig sleginn illkynjuðum kaunum frá hvirfli til ilja. í þessum raunum Jobs koma vinir hans til að hugga hann, þeir Elífas, Sófar og Bildad. Ennfremur kemur síðar til sögunnar Elíhú nokkur. Mestur hluti Jobsbók- ar snýst svo um orðræður þeirra félaga. Job bölvar fæð- ingardegi sínum. Vinir Jobs, sem eru nokkurs konar full- trúar rétttrúnaðarins, átelja Job og segja að hann hljóti að hafa syndgað og það sé ástæða þrenginga hans. En Job heldur fram sakleysi sínu og hrópar til Guðs. Svar Jobsbókar virð- ist vera það að maðurinn eigi engar kröfur á Guð. Ranglæt- ið? Ja, það bara er. Þó er „happy ending" í bókinni. Hvernig væri nú að hrista af sér slenið og opna Gamla testamentið og lesa dálítið? Jobsbók er fyrir framan Dav- íðssálmana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.