Morgunblaðið - 08.07.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984
71
Björgvin Halldórsson, einn HLH-manna undir stýri í bfl frá 1956.
„Brilljantín og
leðurjakkar"
HLH-flokkurinn er nú aftur
kominn á kreik eftir um 5 ára
hlé. Þeir piltar, Björgvin Hall-
dórsson, Haraldur Sigurósson
(Halli) og Þórhallur Sigurðsson
(Laddi), hafa nýlokið upptökum
á breiðskífu og brugðu sér í upp-
tökusal Saga-fílm og gerðu aug-
lýsingakvikmynd í vikunni.
1 auglýsingunni syngja
HLH-menn eitt laga skifunnar
Ljósm. Mbl./RAX.
Sigríður Beinteinsdóttir býr sig undir að vísa Björgvini á bug. Sóley dans kennari og Björgvin gefa góð ráð.
og fengu þeir til liðs við sig
dansara ásamt söngkonu
hljómsveitarinnar KIKK, Sig-
ríði Beinteinsdóttur. Björgvin
Halldórsson er harðsvíraður
„brillj antín-gæj i“, sem reynir
hvað hann getur til að ná at-
hygli draumastúlkunnar (Sig-
ríðar). Hún kveðst hins vegar
ekki vera „eins og allar stelp-
urnar, sem hoppa upp í bíla
með hverjum sem er“, eins og
segir í texta lagsins.
Meira verður ekki uppi látið,
en landsmenn fá að sjá hvern-
ig til tókst í sjónvarpinu á
næstunni.
Glatt á hjalla í Þórsmerkurferð
Það var glatt á hjalla í ferð
vistmanna af Hrafnistu í
Reykjavík og Hafnarfirði í
Þórsmörk á dögunum. Um
170 manns tóku þátt í ferð-
inni að fararstjórum og
starfsfólki meðtöldu. Veðrið
var eins og bezt verður á kos-
ið og stigu ferðalangarnir
dans við skála Ferðafélags-
ins í Þórsmörk um miðjan
dag.
Meðfylgjandi myndir tók
Eyjólfur Halldórsson í ferð
Hrafnistufólksins.
A innfelldu myndinni er Guðmundur Sigurðsson ásamt konu sinni Susanne, í móttöku sem haldin var í tlefni opnunar verslunarinn ar.
Framtakssamur íslendingur í Kaupmannahöfn
Ungur íslendingur, Guðmundur flutti nýlega verslun sína j þrisvar löngu skilti sem sett var upp. Þetta húsgögnum og skrifstofuvélum.
Sigurðsson, sem hefur rekið fyrir- sinnum stærra húsnæði. Á mynd- er verslun sem sérhæfir sig í öllu Helstu mcrki verslunarinnar eru
tæki í Kaupmannahöfn í átta ár, inni sést hann t.h. með níu metra varðandi skrifstofur, s.s. tölvum, Adler og Toshiba.
Jón bóndi
í Brokéy
Stykkíshólmí, 29.júní.
ÞESSA mynd tók fréttaritari af
Jóni V. Hjaltalín, bónda í Brokey,
sem nú er kominn hátt á 90. ár.
Þeir bræður, hann og Vilhjálmur,
tóku við búi foreldra sinna, Krist-
jönu og Vigfúsar, sem þar bjuggu
um langt skeið.
Brokey hefir verið vel setin en
síðustu ár hafa þeir bræður haft
vetrardvöl í Stykkishólmi, enda
erfitt um eyjabúskap að vetri til,
en strax og hlýindin og gróand-
inn eru í nánd, eru þeir komnir í
eyjahug og kannski fyrr. Jón
hefur eins og fleiri lifað breyti-
lega tíma, bæði í eyjabúskap sem
tækni og minnist margra daga
og kann frá mörgu að segja.
Þeir verða ekki taldir ferða-
mennirnir sem lagt hafa leið
sína f Brokey um daga þeirra
bræðra og má segja um það að
„þar er nú ekki í kot vísað“. Jón
leit til veðurs eins og hann gerði
svo oft hér á fyrri tíð, þegar veð-
urspár og útvarp voru ekki til, en
lítið vildi hann segja um horf-
urnar.
Árni