Morgunblaðið - 08.07.1984, Side 28

Morgunblaðið - 08.07.1984, Side 28
rr 76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984 A. Opnum bát ár\ rr\CKÍOor og voins." ■ 6(3 Þú ert ekkert að hlusta eftir því sem ég segi þér. Það þarf að ganga frá eftir allar útihátíðir, hvort sem þær eru í Þórsmörk eða Þjórsárdal. Hver á að ganga frá í Þjórsárdalnum Tjaldbúi hringdi og vildi koma eftirfarandi á framfæri: Við erum hér þrjár fjölskyldur sem förum oft í Þjórsárdalinn og svo var einnig um síðastliðna helgi. Það var í fyrsta sinn síðan útihátíðin var haldin á flötinni gegnt Skriðufellsskógi um hvíta- sunnuna. Þegar við komum á staðinn urð- um við fyrir ákaflegum vonbrigð- um með fráganginn eftir skemmt- unina. Jörðin er sviðin, rykmökk- urinn sem rís þegar keyrt er á tjaldstæðinu er eins og moldrok og síðan eru glerbrotin. Þau eru kap- ítuli fyrir sig. Það er hafsjór af þeim og nú í fyrsta sinn gátum við ekki verið berfætt vegna slysa- hættunnar. Skúrar, sem var klambrað saman fyrir ýmsa þjón- ustu, og kamrarnir, sem eru negldir aftur, standa enn. Þeir eru illa eða ómálaðir og mjög sóða- legir. Sviðið og danspallurinn hafa heldur ekki verið fjarlægð. Það er sama hvert maður lítur, alls stað- ar er sóðaskapur og illa gengið frá. Á flötinni er ekkert rennandi vatn, því það er búið að loka krön- unum sem komið var fyrir. Nú þarf að sækja vatn út í á. Ég veit, eins og allir landsmenn, að Héraðssambandið Skarphéðinn stóð að hátíðinni. Það er ung- mennafélag sem stefnir ungling- um saman á þennan stað og auð- vitað koma þeir. Ég er alls ekki að setja út á slíkt, hátíðirnar eiga fullan rétt á sér. Við vitum að unglingarnir haga sér alla vega, sumir miður, aðrir vel. En í þessu tilfelli snýr verri hliðin að héraðs- sambandinu að ganga ekki frá eft- ir sig. Ef Skarphéðinn ber ekki ábyrgð á fráganginum, þá langar mig að spyrja hver á að sjá um að koma hlutunum f samt lag, því núna er staðurinn í rúst. Ekki voru rukkuð inn tjaldleyfi en það segir sig sjálft að eitthvað kostar að hreinsa svæðið. Það mætti halda að hlutaðeigandi aðilar væru að reyna að forðast ábyrgð- ina, með því að hafa fri tjaldstæði. Ástandið var slæmt eftir verslun- armannahelgina í fyrra en nú var það verra. Við erum um tuttugu sem förum reglulega og tjöldum á flötinni. Okkur er annt um staðinn því hann er paradís og það er sárt að sjá hvernig búið er að fara með hann. Lítil saga um þursabit HÖGNI HREKKVÍSI „ pETTA ER FALL£6 PLANTA ■ ■■ EN Hx/AK ER GULLFISKUfZINH?* Skúli Helgason skrifar. Kæri Velvakandi. Þú ert einn af þeim fáu vett- vöngum þar sem venjulegt fólk getur stórfyrirhafnarlaust komið skoðunum sínum og áhugamálum fyrir sjónir annarra. Auk þessa er maður þess nokkuð fullviss að orð manns og boðskapur komist fyrir sjónir mikils hluta þjóðarinnar. Það sem ég hef fram að færa á einmitt erindi til ansi margra. Ég varð fyrir því óláni síðastlið- inn sunnudag að fá með eindæm- um slæmt tilfelli af þursabiti í hálsinn. Ég náði til heimilislæknis míns og fékk hjá honum kvala- stillandi töflur en því miður voru áhrif þeirra á mig ekki meiri en þótt ég hefði fengið mér vatnssopa að drekka. Ég æddi um íbúðina viðþolslaus af kvölum allan sunnudaginn og þar sem ég átti nóg af áfengi á heimilinu reyndi ég að stilla kvalirnar með því. En því miður með lélegum árangri. Seint á sunnudagskvöldið kom til mín læknir og gaf mér sprautu svo mér yrði unnt að sofa. Sú dýrð stóð ekki nema einar tvær stundir. Það sem eftir lifði nætur hélt ég áfram sama tilgangslausa ráfinu fram og aftur. Um morguninn náði ég sambandi við heimilis- lækni minn sem hringdi til slysa- varðstofunnar og bað þá að lina þjáningar mínar ef mögulegt væri. Fyrir þá sem ekki vita hvað þursabit er, get ég upplýst að það hleypur oftast í bakvöðva manna og lýsir sér þá sem eins konar krampi. Þetta bakþursabit hafði ég sjálfur fengið oftar en ég fæ tölu á komið og er óskaplega kvalafullt. En að minum dómi er þursabit í baki nánast til þess að hlæja að samanborið við það sem ég fékk í hálsinn í þetta skipti. Seinni hluta nætur og um morg- uninn áður en farið var með mig á slysavarðstofuna saup ég þó nokkrum sinnum á vodka-flösku einni sem ég hafði undir höndum, til þess að reyna að lina þján- ingarnar en árangurinn var slæm- ur sem fyrr. Það má ef til vill liggja mér á hálsi fyrir þessa til- raun mína en það er nú einu sinni svo að áfengi er elsta deyfilyf sem maðurinn þekkir og hefur oft ver- ið notað. Ég reyndi hér í pistli mínum að útskýra hvað þursabit væri en mér hefur áreiðanlega tekist það óhönduglega. Ef til vill er til miklu betri lýsing en sú sem ég gaf. Ég er sannfærður um að in- quistadorar (pyntingameistarar) spánska rannsóknarréttarins á miðöldum kirkjunnar, sem síst er hægt að saka um ófrjótt hug- myndaflug hvað pyntingar snertir hefðu aldrei getað upphugsað hryllilegri aðferðir. Slysavarðstofu eigum við ágæta sem betur fer. Einkum ef maður hefur skorist eða lent undir bíl. En þegar ég kom þangað fyrrnefndan morgun, fékk ég hinar verstu mót- tökur og var hálfhent út. Með að- stoð góðs leigubílstjóra komst ég til Lamaðra og fatlaðra þar sem ég hef áður verið í meðferð. Þar gerðu stúlkurnar það sem þær gátu fyrir mig og stóðu sig með stakri prýði, voru hlýlegar og ættu að fá meira hrós fyrir stitt starf. Engir vankantar hefðu verið á því að liðsinna mér með sama hætti á slysavarðstofunni. Mér býður í grun að viðtökurnar þar séu að nokkru leyti heilbrigð- isráðherra að kenna. Þar vantar tæki, þekkingu og fólk til að sinna sértilfellum eins og t.d. þursabiti í hálsi. Það er búið að yfirkeyra þetta fólk, sem þar vinnur, þannig að nú er það tæpast starfi sínu vaxið. Tæknilega fullkomin færi- bandavinna er ráðandi en mann- legi þátturinn er horfinn í streit- unni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.