Morgunblaðið - 13.07.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ1984
39
Fethiye-ftöinn vid Tyrkland.
Myndirnar tók Olafur Sigurösson.
Tveir flotar hittaat í Júgóslavíu.
sem tekið hefur okkur með kost-
um og kynjum.
i síðustu ferö okkar, sem viö
fórum í byrjun júní sl„ flugum viö
frá London tíl Dalman í Tyrklandi.
Þaöan var ekiö í ágætis rútum til
borgar, sem heitir Marmaris. Þá
borg kannast margir íslendingar
viö, því gríska eyjan Rhodos er í
nokkurra mílna fjarlægö og dag-
legar feröir þar á milli. Þarna biöu
bátarnir okkar. Þetta voru 29 feta
bátar, vel hreinir og vel viö haidiö.
Þaö er mikiö lagt upp úr því aö
bátum sé skilaö í góöu standi í lok
hverrar feröar.
Frá Marmaris sigldum viö á
þremur dögum austur til Fethiye-
flóans, en hann er paradís sigl-
ingamanna á þessu svæöi, ótelj-
andi víkur og vogar, og í mörgum
þeirra er litill veitingastaöur, sem
byggöur er eingöngu til þess aö
þjóna bátafólki, því oftar en ekki
eru þessi svæöi ekki í neinu vega-
sambandi viö bæina í kring.
Þarna sigldum viö um í fjóra
daga. Aö kvöldi síöasta dagsins
hittist allur flotinn loksins aftur i
bænum Fethiye. Þetta er mjög
gamall bær, talinn vera frá því
400 fyrir Krist. Hann hét þá Telm-
essos. Á þessu svæöi er vart
þverfótaö fyrir stórkostlegum
fornminjum frá ólíkum tímabilum.
í 60 km. fjarlægö frá Fethiye eru
rústir lykísku höfuöborgarinnar
Xanthos og hafnarborgarinnar
Patara. Þessar rústir eru 2500—
3000 ára gamlar.
Mjög mikiö er af lykískum gröf-
um á öllu þessu svæöi en allar
í siglingum er
allskonar fólk.
Þaö er mikill misskiln-
ingur aö einungis auö-
ugt fólk stundi sigling-
ar enda eru bátar af
öllum stæröum og
geröum í förum
hafa þær veriö rændar fyrir óra-
löngu. Frá Fethiye sigldum viö eft-
ir eins dags töf vegna storma til
Kalkan. Þetta er eina skiptiö, sem
allur flotinn sigldi saman í hóp.
Leiöin er um 50 sjómílur, og þótti
því ráölegt aö haida hópinn ef
eitthvað brygöi út af meö veður. Á
svæöinu frá Kalkan til Kekora er
eins og í Fethiye-flóa, fjöidinn all-
ur af víkum og vogum, sigling-
amönnum til ánægju. Þó komiö
sé þetta austarlega eru ennþá
nokkrar grískar eyjar þarna, alveg
uppi í landsteinum. Ekki er ráö-
iegt aö sigla of nærri þessum eyj-
um, því þó Grikkir og Tyrkir séu
hvorir tveggja í Atlantshafs-
bandalaginu, geta bátar, sem
sigla með tyrkneska fánann viö
hún, lent í erfiöleikum ef gríska
strandgæslan telur þá hafa komiö
of nærri grísku landi.
f lok feröarinnar hittust allir
bátarnir aftur og þá í smábæ, em
heitir Kas. Þar voru þeir þrifnir og
geröir klárir fyrir næsta hóp, sem
væntaniegur var strax næsta dag.
Heimferöin var svipuö og út-
leiöin. Farið var snemma morguns
frá Kas til Dalan og til London var
komiö um kl. 6 aö kvöldi.
Bátalíf er heimur útaf fyrir sig. f
fyrstu finnst manni allt svo þröngt
og lítið, en á nokkrum dögum lær-
ist aö búa um borö.
Mikill munur er á bátum eftir
stærö. Þó lengdarmunur sé
kannski ekki mikill, breikka bát-
arnir mikiö viö hvert fet, sem þeir
lengjast, og rýmka aö sama
skapi. Sigiingin sjálf er sjaldan
erfiö, en oft getur veriö snúiö aö
varpa akkeri og leggjast aö
bryggju, sérstaklega ef þröngt er.
f þrengslum geta akkeri oft flækst
saman og veröur þá aö kafa niöur
aö þeim til aö greiöa úr flækjunni.
Kostnaöur viö svona ferö eins
og viö fórum í sumar getur veriö
frá 239 pundum og upp í 826
pund á mann, allt eftir stærö bát-
anna og á þeim tíma sem fariö er.
Dýrasti tíminn er í byrjun ágúst og
á 33 feta bátum.
Á þeim tíma sem við fórum
kostar fariö fyrir manninn, ef fjórir
eru um borö, 368 pund. Innifaliö í
verðinu er flug fram og til baka frá
Gatwick, rútuferöir, bátaleiga,
leiösögn, öll hafnargjöld og þess
háttar. Mjög ódýrt er aö lifa í
Tyrklandi. Við hjónin eyddum í
mat, skemmtanir og minjagripi
um 600 kr. þessar tvær vikur, sem
ferðin tók.
Af þessu má sjá aö flestir ættu
aö geta veitt sér þá ánægju aö
sigla ef hugur stendur til þeirra
hluta. b,
FYRR OG NU
Það hefur jafnan verið sagt, að höfnin sé lifæð
Reykjavikur. Hafnargerðin, sem hófst ( Reykjavlk
árið 1913, var umfangsmesta gerð mannvirkis (allri
íslandssögunni. Höfninni fylgdu mikil umsvif og
bærinn varð æ umfangsmeiri verslunarmiðstöð
allra landsmanna. Má segja, að hún hafi tengt
Reykjavlk við umheiminn á nýjan og frjórri hátt.
Höfninni fylgdi ný byggð meðfram henni, Tryggva-
gata frá Kalkofnsvegi og vestur eftir, og Skúlagata
fram með sjónum fyrir austan hafnargarðinn eystri.
Tryggvagata er I dag tákn velsældar og iðandi
mannllfs. Mörgum þykir sem hún sé I vaxandi mæli
að taka á sig mynd Hafnarstrætis og Austurstrætis
eins og þau áður voru. Maður er manns gaman, og
sannast það hér. Veitingastaðir af óllkustu
gerðum hafa sprottið upp. Fólk kemur I Tryggva-
götu til að njóta góðra veitinga, hvort sem það er
„bæjarins bestu“, pönnukjúklingar hjá Þórði, öl-
glas, Ijúf tónlist og léttur málsverður á Gauki á
Stöng, dulmögnun Hellisins eða frönsk rómantík
Sjávarsíðunnar. Hefði þá grunað þetta þá, sem
gengu götuna fyrir 50 árum eða skemur? Þar sem
nú eru bflastæði milli Vesturgötu og Tryggvagötu
voru árið 1890 bátar I fjöru. Fyrir ofan bæjarbryggj-
una var fisksölutorgið, þangað komu karlar og kon-
ur til að kaupa fisk eða til að sýna sig og sjá aðra.
Fortlðin kennir okkur oft að meta nútlðina, og um
leið að spá (framtlðina. Hvernig verður Tryggva-
gata eftir 70 ár? Eldri myndirnar eru úr Ijósmynda-
safninu en nýju myndirnar tók Friðþjófur.
116
Séð suöur yfir Kvosina úr kola-
krananum (Hegranum) kring-
um 1930. T.v. er Zimsensbryggj-
an en Bœjarbryggjan er fyrir
miöri mynd. Botnía liggur viö
Grófina. Á Grófinni þar sem nú
er Tollhúsiö eru vöruskemmur
Eimskips, H. Benediktssonar og
Ásgeirs Sigurössonar.
Bátar viö Bæjarbryggjuna
kringum 1930. Fremst t.h. er
pissoirinn (eöa mígildið).
Iðandi mannlíf á fisksölutorgi
ofan viö Bæjarbyggjuna 1919.
Sáö yfir Reykjavíkurhöfn ofan
af Austurstræti 16 í kringum
1917.
Sáö yfir Hafnarstræti, Tryggva-
götu og Reykjavíkurhöfn kring-
um 1917.
Vesturhluti Tryggvagötu sáöur
frá Grófinni kringum 1920.
Bátar í fjörunni viö Vesturgötu,
þar sem nú eru bflastæöi á milli
Vesturgötu og Tryggvagötu.
Myndin er tekin 1890. Húsiö
fyrir miöri mynd er Vesturgata
4, þar sem verslun Björns
Kristjánssonar er og hefur veriö
í áratugi. T.v. er Sjóbúð (Vest-
urgata 7) en það hús var rifiö.
2489