Morgunblaðið - 13.07.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ1984 41
Staersta vatnsrennibraut í Evrópu var opnuð á Algarve-ströndinni sl. vor, en
bún naut mikilla vinsælda f ferðinni.
Brautir voru við allra h«fi, háar,
langar, stuttar o.s.frv. en allar báru
þ«r viðeigandi nöfn. Haukur Geirs-
son skýst hér úr brautinni „Cannon
Ball“ eða fallbyssukúlunni.
Elísu þótti öruggara að halda um
nefið, enda supu margir drjúgt á.
eiginkonunum og aö þeirra sögn
voru þaö mjög góö kaup, en þeir
höföu kynnt sór málin hér heima
áöur en þeir fóru út. Mikiö var
keypt af skóm, vörur úr kopar og
eir eru ódýrar. Fataverzlanir voru
vinsælar, en úrvaliö nokkuö ein-
hæft hvaö varöar tízkufatnaö, aö
sögn þeirra sem kynntu sér þaö til
hlrtar.
4—5 SINNUM ÓDÝR-
ARA í PORTÚGAL
Portúgalska myntin ber heitin
centavo og escudo. 100 centavo
eru í einum escudo. Til aö finna
samsvarandi verö í íslenzku var í
þessari ferö deilt meö 4,4 eöa
margfaldaö meö 2,2 og tvö núll
tekin aftan af. f lok feröar heyröi ég
á máli manna aö flest mætti fá í
Portúgal fyrir sömu upphæö í
escudos og i íslenzkum krónum
heima, þ.e. þá 4,4 sinnum ódýrara
i Portúgal.
Frí-klúbbsstarfsemin í Portúgal,
undir stjórn Hildigunnar Gunn-
arsdóttur íþróttauppeldisfræöings,
naut hvaö mestra vinsælda yngstu
kynslóðarinnar, en boöiö var upp á
eitthvaö fyrir alla aldursflokka svo
sem morgunskokk og leikfimi,
tennisleiki og keppn;, leiki i sund-
laugum síödegis, aö ógleymdum
feröum í vatnsrennibrautina. Þá
voru spilakvöld og barnatímar
3—4 sinnum í viku. Hildigunnur
sagöi í viötali í lok feröarinnar, aö
starfiö heföi verið sér mikil lífs-
reynsla. Þetta væri mikil vinna, en
mjög skemmtileg. Aöallega reyndi
á annaö aöalmarkmiö Frí-klúbbs-
ins, þ.e. aö auka félagsleg tengsl
og fá fólk til aö kynnast betur inn-
an hópsins. Því markmiöi sagöist
hún bezt ná meö því aö blanda
geöi viö fólkiö, meö leikjum og
keppni og fara meö því út á kvöld-
in. Um reynslu sína af landanum í
útlöndum sagöi hún eftirtektarvert
hversu Islendingar stæöu saman
sem einn maöur í útlöndum. Hún
sagöi og, aö velheppnuö ferö sem
þessi virtist sér byggjast á veörinu.
„islendingar eru óbeint aö kaupa
sólina þegar þeir kaupa feröir sem
þessa, þó auövitaö sé ekki hægt
aö kaupa hana. Um leiö og veöriö
veröur slæmt veröur fólk eiröar-
laust og veit ekki hvaö þaö á aö
gera,“ sagði hún.
Auk Frí-klúbbsstarfsins býöur
feröaskrifstofan upp á margar
feröir undir leiösögn fararstjóra
staöarins, sem voru í þessari ferö
þau Ásta Ragnheiöur, Einar örn
og Jesús. Boöiö er upp á langar
feröir og stuttar, svo allir ættu aö
finna eitthvaö viö sitt hæfi.
Þess má geta aö lokum, aö
júní-hópurinn í Portúgal ætlar aö
hittast á ný í Þórsmörk aöra helgi i
ágúst og er undirbúningur aö ferö-
inni í fullum gangi. Hópurinn hefur
■ hyggju aö endurnýja þar hin góöu
kynni og ná upp hinni skemmtilegu
Portúgalsstemmningu á ný.
Efst á bréfMfni *r Mttur „fjögurra" laufa smári, sam gefur pappírnum j staöinn fyrir aö skrifa kveöju í
meira gildi, af svo má aö oröi komast. Smárar eru sjaldnast meö fjögur bók, sem er ætluö til gjafa (þaö
lauf, anda ar þaö fjóröa hár fongið aö láni af öörum. er reyndar ailtaf áhætta, því þá ar
ekki hægt aö skila og fá aöra) er
fallegt þurrkaö blóm fast á lítið
hvítt gjafakort, gleym-már-ei
myndi t.d. taka sig vel út á hvítu.
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Þurrkuö blóm og blöð
Þaó er gamall siöur aö taka blóm og blöö til aö
þurrka og pressa og nota þau síöan til skreytinga.
Þegar að því kemur, aö öll blóm eru sprungin út
er hægt aö tína villtan gróöur á víðavangi eöa fá
gróöur úr ræktuöum reitum. Þaö sér áreiöanlega
enginn garöeigandi eftir nokkrum blómum til
þessara nota.
Blööum trjánna er þó best aö safna um þaö
leyti sem þau taka aö falla á haustin, þá eru
litbrigöi ótrúiega mikil.
Úr þurkuöum blómum er hægt aö búa til mynd-
ir, borðskreytingar, þau er hægt aö líma á kort og
bréfsefni svo eitthvaö sé nefnt. í Heimilishorni
hefur áöur verið sagt frá hvernig bera á sig aö við
þurrkun, svo það veröur ekki endurtekiö hér.
En hér fylgja meö nokkur sýnishorn af því
hvernig koma má fyrir fallegum þurrkuöum blóm-
um og blööum.
Blómum og blööum komiö fyrir oftir fyrirfram goröu mynstri.
Blöö af ýmsum geröum og í öllum
mögulegum litatónum oöa „sátt-
eringum“.
Grænmetissalat og sósur
Þegar mest er úrvaliö af grænmetinu okkar
freistast víst flestir til aö búa til grænmetisrétti
og salöt.
Því miöur er grænmeti sannkallaöur munaöur
hérlendis, þaö er ótrúlega dýrt og þaö þurfa
áreiöanlega margir aö láta á móti sér aö hafa
þaö hvern dag á meðan þaö er fáanlegt.
Samsetning á grænmeti í salat getur veriö
meö ýmsu móti, allt eftir smekk og því hvaö er
fáanlegt í þaö og þaö skiptið. En þaö þarf ekki
síöur aö vanda til viö sósuna, sem sett er út á.
Hér koma nokkrar tillögur:
SÓSUR ÚR
SÝRÐUM RJÓMA
Út í 2V4 dl af sýröum rjóma er
hægt aö hræra:
1. 2 matsk. chilisósu, 3 matsk. af
fínt saxaöri steinselju og %
tsk. af pipar.
2. 1 tsk. worcestershiresósu, 2
tsk. karri, V4 tsk. salti og % tsk
pipar.
3. Agúrku, smátt brytjaöa, 1
matsk. smátt brytjaö kapers
og 1 tsk. sykur.
4. 2 matsk. sinnep, 3 matsk. dill,
'h tsk. salt og '/* tsk. pipar.
5. 2 dl af fínt rifnum osti, 1
matsk. sítrónusafa og 1 tsk.
sykur.
SÍTRÓNUSÓSA
2 matsk. sítrónusafi, 3 matsk.
olía, vatn, salt, pipar, örlítill sykur
og 2 matsk. söxuö steinselja.
Þarf aö hrista vel saman.
SALATIÐ ÞARF AÐ
VERA KALT
Þaö er kunnara en frá þurfi aö
segja, aö grænmetissalat bragö-
ast best ef þaö er vel kælt. Þaö
er hægt aö kæla skálina, áöur en
grænmetiö er sett í hana. Ef þaö
gleymist er hægt aö setja sal-
atskálina ofan í ílát meö ísmolum
eöa stinga henni í kæiiskápinn í
smátíma áöur en sest er aó
boröum.
KOT ASÆLU-SÓS A
'h dl kotasæla, V4 dl sýröur rjómi,
4 matsk. vínedik, 1 tsk. sykur, 6
matsk. olía, 4 matsk. fínt söxuö
steinselja, 1 matsk. estragon og
1 tsk. basillauf. Hrært vel saman
og bragöbætt aö smekk.
OLÍU-EDIKSÓSA
1 dl sojaolía (eöa önnur gerö), 'h
dl vínedik eöa venjulegt edik, 2
matsk. vatn, salt, pipar, hvít-
lauks- eöa paprikuduft. Hristist
vel saman og bragöbætt aö
smekk.