Morgunblaðið - 23.10.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.10.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1984 Tíu manns hafa látist af slysförum á rúmum mánuði MorgunblaðiA/Gunnar Hallsson. Frá slysstað í fjöninni við Óshlíð. Bifreiðin, sem tvítug kona var farþegi í og beið bana, hrapaði um 30 metra niður snarbratta hlíðina. TÍU MANNS hafa látist af slysfór- um hér á landi á rúmum mánuði. Þriðjudaginn 18. september lést Elías Hjartarson, til heimil- is að Lundi við Nýbýlaveg í Kópavogi, eftir að hafa þann 13. september orðið fyrir bifreið á Kringlumýrarbraut, skammt fyrir norðan Nesti. Elías heitinn var 69 ára gamall, fæddur 7. október 1914. Aðfaranótt sunnudagsins 23. september lést tvítug kona, Svava Þorláksdóttir, eftir að bif- reið, sem hún var farþegi í, fór út af Óshlíðarvegi. Ekki er ljóst hvað olli slysinu en allstórir steinar höfðu fallið á veginn og er helst talið að ökumaður bif- reiðarinnar hafi misst vald á henni vegna grjótsins. Bifreiðin hrapaði þrjátíu metra niður í fjöru. Þrennt var í bifreiðinni og náði ökumaðurinn að krafsa sig upp á veg og gat stöðvað bifreið sem leið átti um. Svava heitin var búsett í Bolungarvík og læt- ur eftir sig eitt barn. Laust eftir miðnætti aðfara- nótt sunnudagsins 29. september féll piltur í ölfusá. Hann hét Hilmar Grétar Hilmarsson til heimilis að Keilufelli 13 í Reykjavík. Hilmar var 16 ára gamall, fæddur 5. júlí 1968. Þrátt fyrir víðtæka leit hefur lík hans ekki fundist. Sömu helgi varð banaslys í Svínahrauni þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á hálkubletti skammt frá Litlu kaffistofunni með þeim afleið- ingum að bifreiðin valt. öku- maðurinn hét Valdimar G. Kristinsson, til heimilis að Lísu- bergi 5 í Þorlákshöfn. Hann var 62 ára gamall, fæddur 6. október 1921. Mánudaginn 1. október var eins skipverja af Matthildi SH 67 saknað þegar báturinn hélt í róður. Við eftirgrennslan kom í Ijós að maðurinn hafði átt erindi um borð daginn áður og hófst leit í höfninni. Lík mannsins fannst í höfninni þann 3. októ- ber. Maðurinn hét Guðmundur Geirsson, til heimilis að Mýrar- holti 7 í Ólafsvík. Hann var 64 ára gamall, ókvæntur og barn- laus. Laugardaginn 6. október varð banaslys á Akureyri þegar 18 ára gömul stúlka, Þuríður Jóns- dóttir, sem var við æfingar í fall- hlífarstökki, féll til jarðar án þess að fallhlíf hennar opnaðist. Þuríður var meðlimur í Fallhlíf- arstökkklúbbi Akureyrar og hafði verið á námskeiði hjá klúbbnum og var þetta hennar 16. stökk. Föstudaginn 5. október varð banaslys í Fljótshverfi . í V-Skaftafellssýslu. Sex ára göm- ul stúlka, Ágústa Inga Hannes- dóttir frá Hvoli í Hörglands- hreppi, lést þegar hún varð undir dráttarvél. Þann 12. október lést 38 ára gamall maður, Birgir Kristján Sigurbjörnsson, í hörðum árekstri í Kömbunum. Birgir heitinn ók Fiat-fólksbifreið upp Kambana. Hann missti bifreið sína yfir á öfugan vegarhelming í neðstu beygjunni með þeim af- leiðingum að hún lenti framan á vörubifreið. Birgir heitinn bjó að Smáratúni 1 á Selfossi. Hann fæddist 24. apríl 1946. Þriðjudaginn 16. október fór- ust tveir sjómenn um þrítugt þegar bátur þeirra, Sóley SK 8, fórst um 10 sjómílur út af Garðskaga. Þeir hétu Róbert Jónsson, til heimilis að Breið- vangi 13 í Hafnarfirði, og Sig- urður Jónsson, til heimilis að Borgarhrauni 10 í Grindavík. NeyðarkaH barst frá þeim á sjötta tímanum um að leki væri kominn að bát þeirra. Slysa- varnafélagi íslands var þegar gert viðvart og björgunarsveitir kallaðar út. Bátur þeirra félaga var sokkinn þegar á vettvang var komið. Sigurður fannst látinn um 10 sjómílur suð-vestur af Garðskaga, en lík Róberts hefur ekki fundist. Bókagerðarmenn samþykktu nýgerðan samning 447:68 Felur í sér 17% meðaltalshækkun launa á samningstímanum, sem er til ársloka 1985 RÚMLEGA 500 manna félagsfundur Félags bókagerðarmanna samþykkti í gær nýgerðan kjarasamning félags- ins og Félags íslenzka prentiðnaðar- ins með miklum meirihluta greiddra atkvæða. Samningurinn felur í sér um 17% hækkun til félaga í FBM á samningstímanum samkvæmt upp- lýsingum FÍP en að mati Magnúsar E. Sigurðssonar, formanns FBM, nemur hækkunin 20 til 24% til þeirra lægstlaunuðu. Félagsfundur í FÍP mun fjalla um samningana í dag, þriðjudag. Vegna þessa var verkbanni, bæði á prentara og biaða- menn, aflétt og verkfalli FBM aflýst í gær. Vinna hófst á dagblöðunum í gær og í almennum prentsmiðjum hefst hún í dag eftir rúmlega 6 vikna verkfall FBM. Atkvæði urp samninginn féllu þannig að 447 voru honum fylgj- andi, 68 á móti og auðir og ógildir atkvæðaseðlar voru 10. Atkvæða- greiðslan var skrifleg. Samningur FBM og FÍP felur í sér 10% launa- hækkun frá og með 22. október, 3% launahækkun fyrsta desember næstkomandi og fyrsta júní 1985 og fyrsta september sama ár. Auk þess fá félagar í FBM, sem eru í fullu starfi, 3.000 króna sérstaka greiðslu 30. nóvember og 1.500 krónur 29. marz 1985. Sérstakar launauppbætur koma á laun að- stoðarfólks í prentiðnaði. Nema þær 600 krónum mánaðarlega frá og með 1. janúar næstkomandi og taka sömu hækkunum og aðrir launaliðir samningsins á samn- ingstímabilinu. Þá er í samningn- um ákvæði um að verði samningar heildarsamtaka vinnumarkaðsins um grunnlaunahækkanir að við- bættum hugsanlegum verðbótum hærri en launahækkanir samn- ingsins skulu laun samningsins endurskoðuð. Samningurinn gildir til ársloka 1985. „Ég get lítð sagt um þessa samninga nú. Það verður fundur í félagi okkar á morgun, þar sem afstaða verður tekin til þeirra. Þó get ég sagt það, að við erum sæmi- lega ánægðir með þessa samninga miðað við þær aðstæður, sem nú eru f þjóðfélaginu í samningamál- um á vinnumarkaðnum almennt eftir langt verkfall, og þá samn- inga, sem gerðir hafa verið í sveit- arfélögum víða um land,“ sagði Magnús Vigfússon, formaður Fé- lags íslenzka prentiðnaðarins, í samtali við blm. Morgunblaðsins. Magnús sagði einnig, að FlP hefði í upphafi stefnt að samning- um um minni launahækkun og skattalækkanir. Fyrstu fjórar vik- urnar hefðu að miklu leyti farið í að ræða þá hluti, en því miður hefði það allt farið úr böndunum. Mikil áherzla hefði verið lögð á leiðréttingu til handa hinum lægstlaunuðu, sem að undanförnu hefðu orðið nokkuð útundan, og teldi hann að þar hefði tekizt all- vel til. Þá skipti miklu máli, að samningurinn gilti út næsta ár, þvi bókaútgefendur yrðu þá tæp- lega fyrir skakkaföllum vegna vinnudeilna seinni hluta árs eins og nú. Ég held að við getum verið þokkalega sáttir við þessa samn- inga miðað við aðstæður. Þeir eru gerðir undir dálítið miklum þyngslum frá atviunurekendum. Vinnuveitendasambandið beitti sér fyrir ákveðinni launastefnu í þessum kjaramálum almennt og að sjálfsögðu fylgdi FÍP þeirri stefnu í hvívetna framan af. Þessi stefna brast síðan með þessum samningi eins og ljóst er. Þetta setti sín ákveðnu mörk á lengd deilunnar að mínu rnati," sagði Magnús Einar Sigurðsson, for- maður Félags bókagerðarmanna, í samtali við blm. Morgunblaðsins. Magnús sagði ennfremur, að ugglaust hefði deilan getað orðið styttri, hefðu menn sameinazt um þau sjónarmið, sem þeir hefðu sett fram í upphafi hennar, það er að samningamálin færu í þennan far- veg. Forysta félagsins hefði fengið góðan stuðning í atkvæðagreiðsl- unni um samninginn eins og á öðr- um fundi fyrir skömmu. Það hefði verið ánægjulegt við þessa deilu, að mikill einhugur hefði ríkt í fé- laginu og haldizt út hana alla. Hefði hann átt sinn þátt í árangr- inum. Ríkiseinokun á fjölmiðlun tímaskekkja segir Ragnhildur Helgadóttir mennta- málaráðherra „EFNISATRIÐI frumvarpsins eru auóvitað aðalatriðið," sagði Ragn- hildur Helgadóttir menntamálaráð- berra í samtali við blm. Morgun- blaðsins í gær. Hún var spurð að því hvort bún byggist við að nýju út- varpslögin gstu öðlast gildi þann 1. nóvember nk. eins og gert hefur verið ráð fyrir. „Ég hafði satt að segja von- ast til þess að svo yrði. En ef það tekst ekki, verður ákvsði frumvarps- ins um gildistíma að sjálfsögðu breytt. En það dregst vonandi ekki langt fram eftir nóvembermánuði." Ragnhildur var spurð að því hvort yfirlýsing Páls Péturssonar, þess efnis að hann myndi ekki styðja frumvarpið, yrði til þess að tefja málið. Hún sagði: „Páll Pét- ursson er frumlegur maður og hef- ur sínar skoðanir. Þær fara ekki alltaf saman við skoðanir þorra þingmanna í hans flokki. Frum- varpið hefur þegar verið töluvert rætt því að það var lagt fram á síðasta þingi einnig og fékk þá um- fjöllun í nefnd. Ég vonast til þess að þingmenn stuðli að því að þessi rýmkun laganna nái sem fyrst fram að ganga. Það er auðvitað ljóst að hér er um málamiðlun að ræða. Sumir munu vilja ganga lengra, en aðrir skemur, en það er eins og ævinlega þegar stigin eru framfaraspor að þá verða einhverj- ir sem vilja fara hægar í sakirnar. En það hamlar því ekki að við verð- um að stíga fram á við. Ég vonast til þess að hægt verði að afgreiða þetta mál vel fyrir jólaannir. Ríkiseinokun á fjölmiðlun með nútímatækni í frjálsu þjóðfélagi er tímaskekkja," sagði menntamála- ráðherra að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.