Morgunblaðið - 23.10.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.10.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1984 21 Óvíst hvaða embætti Ogarkov tekur við Moskm, 22. október. AP. SERGEI F. Akhromeyev, nýskipaöur yfirmaður sovézka herráðsins, sagði í sjónvarpsviðtali við NBC-fréttastof- una í dag, að skipun hans í embætti í síðustu viku ætti ekki að verða til- efni til neinna sérstakra getgátna. Hann fékkst hins vegar ekki til þess að skýra frá því, hvaða starfi fyrir- rennari hans, Nikolai V. Ogarkov, ætti að taka við né hvers vegna sá síðarnefndi væri látinn víkja úr emb- ætti forseta herráðsins nú, eftir að hafa gegnt þeirri stöðu í 7 ár. Akhromeyev og Grigory Korni- enko aðstoðarutanríkisráðherra ræddu við fréttamenn NBC í hálfa klukkustund í dag um margvísleg málefni, en það er mjög fágætt, að háttsettir sovézkir valdamenn veiti vestrænum fréttamönnum slík viðtöl. Sagði Kornienko, að Andrei Gromyko utanríkisráð- herra væri reiðubúinn til þess að ræða við Ronald Reagan Banda- ríkjaforseta síðar í þessum mán- uði, er Gromyko færi til Banda- ríkjanna. Akhromeyev var spurður um heilsufar sovézka leiðtogans Konstantins Chernenkos, sem að- eins befur komið fram við eitt tækifæri undanfarna tvo mánuði. Svaraði Akhromeyev því til, að Chernenko hefði verið í orlofi, en væri nú kominn til starfa á ný. Launakerfið stokk- að upp í Kína Pekíng, 22. október. AP. UMBÆTUR í kínversku efnahags- lífi standa nú fyrir dyrum og er m.a. fyrirhugað að stokka upp allt launa- kerfið í landinu. Menntamenn og þeir, sem tæknifróðir eru, hafa lengi borið skarðan hlut frá borði miðað við aðra en nú á að verða breyting á því. Er þetta haft eftir kínverskum embættismanni, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Hingað til hafa verið í gildi lágmarkslaun í Kina en mennta- menn hafa hins vegar engin tök haft á því að auka laun sín með bónusgreiðslum eins og gerist með verksmiðjufólk og verka- menn, sem oft og tíðum bera þre- falt meira úr býtum en þeir, sem hafa lagt á sig langskólanám. Nýja launakerfið verður þannig, að áfram verða i gildi lágmarks- laun og eftirlaun en hér eftir verður tekið tillit til ábyrgðar i starfi og þess hvernig verkið er af hendi leyst. Meðal annarra breytinga í efnahagslífinu, sem sagt var frá opinberlega sl. laugardag, má nefna, að dregið verður úr ríkis- afskiptum, slakað á verðlagseft- irliti, laun verða hækkuð og verk- smiðjustjórnum gert að taka upp sams konar samkeppni og á sér stað i kapitalískum löndum. AP/Símamynd. Bílsprengja í Stokkhólmi Leifar bifreiðar, sem sprengd var í loft upp í miðborg Stokkhólms árla á mánudagsmorgun. Bifreiðin var í eigu manns sem er af júgóslavnesku bergi brotinn, en ekkert er vitað um orsakir þessa atburðar. Engin slys urðu á fólki. Sprengjuhrina í Colombo ( 'olombo, 22. okt AP. NOKKRAR öflugar sprengjur sprungu í Colombo í morgun og her og lögreglulið landsins voru sam- stundis sett í viðbragðsstöðu. Einn maður beið bana er fyrsta sprengj- an sprakk og mun sá látni hafa verið að koma sprengjunni fyrir i grennd við lögreglustöð. Maðurinn var af ættflokk Tamila. Nokkru síðar sprakk svo önnur sprengja mjög voldug og slösuðust þá fjórir strætisvagna- farþegar. Sprengjunni hafði ver- ið komið fyrir í grennd við stræt- isvagnabiðstöð og segir í frétt- um, að það hafi verið mesta mildi að fáir voru á ferli vegna þess hve árla morguns þetta gerðist. Stjórnvöld á Sri Lanka eru sögð óttast að þessir atburðir kunni að vera undanfari frekari aðgerða Tamila gegn stjórn Jayawardene forseta og þar eð þeim þyki hann hafa gengið á bak orða um að reyna að jafna misrétti sem er með Sinhalesum og Tamilum í landinu. Sadofoss LÍM OG ÞÉTTIEFNI Rubberseal 1K Mióaóu vió IBMPC i Skjár án auka- endurkasts. Létt og auðvelt lyklaborð. Stórt minni. Hraðvirkur prentari. Söluumboð fyrir IBM PC einkatölvuna: Ef þú ert að hugleiða kaup á tölvu, hagaðu þér þá eins og þeir sem reynsluna hafa. Flestir tölvuframleiðendur og nær allir framleiðendur hugbún- aðar miða við IBM PC.tölvuna, sem tók beint strik á toppinn hér- lendis eins og hvarvetna í heimin- um. Betri meðmæli eru vandfund- in. IBM PC er ekkert frekar tölva fyrir byrjendur þó að hún henti þeim mjög vel. Þú þarft heldur ekki eingöngu að ætla henni byrj- unarhlutverk. Verkefnasvið IBM PC er afar víðfeðmt hvort sem hún er sjálfstæð eða í tengslum við aðrar tölvur. Við að kynnast kostum IBM PC kemstu fljótt að raun um hve dýr- mæt hún er. Pantaðu kynningu á IBM PC strax hjá næsta söluum- boði. Gísli J. Johnsen Skrifstofubúnaður sf., Smiðjuvegi 8, Kópavogi, simi 73111 Skrifstofuvélar hf. Ottó A. MicheUen, Hverfisgötu 33, Reykjavík, sími 20560 Örtölvutækni sf., Ármúla38. Reykjavík, sími 687220 -----------

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.