Morgunblaðið - 23.10.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.10.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1984 7 Landhelgisgæslan: Franska þyrlan kom til landsins í gær ÞYRLAN sem Landhelgisgæslan hefur tekið i leigu fri Frakklandi kom til landsins í gær, minudag. í ihöfn þyrlunnar voru franskur flug- stjóri, Pill Halldórsson, flugstjóri, Benóný Ásgrímsson, flugmaður, og einn franskur flugvirki. Að sogn Sig- urðar Árnasonar, skipherra hji Landhelgisgæslunni, var lagt upp fri Færeyjum í gærmorgun, millilent á Hornafirði og lenti þyrlan í Reykja- vík klukkan 14.23 í gær. Þyrlan er af gerðinni Dauphin og hefur Landhelgisgæslan hana á leigu frá Aerospatialie-verksmiðj- unum í Frakklandi fram á mitt næsta ár. En þá er von á þyrlu þeirri sem gæslan hefur fest kaup á frá verksmiðjunum og er hún sömu gerðar og sú sem kom í gær. Þyrlan hefur enn ekki hlotið is- lenska skráningarstafi en franskir skráningarstafir hennar eru F-WXFJ. Verður strax hafist handa við að þjálfa íslenskar áhafnir sem fljúga eiga þyrlunni. Askriftarsiminn er 83033 Ný stjórn Launasjóðs rithöfunda Morgunblaðið/Árni Sæberg. Nýja þyrlan á Reykjayíkurfhigyelli í gær, rétt eftir komuna. Á STJÓRNARFUNDI Launasjóðs rithöfunda sem haldinn var í sept- ember sl. var skipuð ný stjórn sjóðsins til þriggja ára. I stjórn- inni eiga sæti Jóhanna Sveinsdótt- ir bókmenntafræðingur, Brynjólf- ur Bjarnason forstjóri BUR og Sverrir Tómasson bókmennta- fræðingur. Össur Skarphéðinsson, nýráðinn rit- stjóri Þjóðviljans. Össur Skarphéð- insson ritstjóri Þjóðviljans ÖSSUR Skarphéðinsson hefur nú tekið við störfum sem ritstjóri Þjóð- viljans í stað Einars Karls Haralds- sonar sem nú hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Alþýðubanda- lagsins. Össur er fæddur árið 1953. Hann lagði stund á líffræði við Háskóla íslands og lauk þaðan prófi árið 1979. Þá starfaði hann um skeið sem blaðamaður á Þjóð- viljanum en hélt utan til Englands til náms í fiskalífeðlisfræði. Hann lauk doktorsprófi í þeim fræðum sl. vor og hefur starfað sem blaða- maður á Þjóðviljanum síðan. Eig- inkona Össurar er Árný Erla Sveinbjömsdóttir, jarðfræðingur. Þá hefur sú breyting verið gerð á ritstjórninni, að Oskar Guð- mundsson fréttastjóri hefur verið ráðinn ritstjórnarfulltrúi. Frétta- stjóri verður sem hingað til Val- þór Hlöðversson. Metabo Endlng - Kraf tur - Öryggi A EINNI SEKÚNDU.. PRENTAR GEMINI ALLT STAFRÓFIÐ FJORUM SINNUM ★ Gemini nálaprentararnir frá Star vinna afar hratt. 120 stafir á hverri sekúndu — allt stafrófið 4 sinnum og gott betur — er þeim leikur einn. ★ Gemini prentararnir hafa sitt eigið minni. Þeir geyma því og prenta upplýsingar um leið og þeir létta á minni tölvunnar sem þeir eru tengdir við. Gemini prentararnir skila skýrri og áferðarfallegri prentun með íslensku letri í mörgum stærðum og leturgerðum — á rúllupappír, gataðan tölvupappír og lausar arkir. ★ Þú tengir Gemini prentara jafnt við litlar og stórar tölvur af flestum gerðum og verðið er ótrúlega hagstætt. GEMIN110Xi kostar aðeins kr. 13.400,- (með vinnslubreiddina 21 sm.) GEMIN115Xi kostaraðeins kr. 19.850,- (með vinnslubreiddina 38 sm.) Hérer tækifærið fyrirþá sem vilja eignast alvöru prentara. ék TOLVUDEILD ■w SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Hverfisgötu 33 — Simi 20560 pós.hólf 377 • - >•-t)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.