Morgunblaðið - 23.10.1984, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.10.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1984 9 Til sölu TF-HRL, Piper Cherokee er til sölu. Heildarflugtími um 3000 klst. Vélin er búin blindflugstækjum og er í mjög góöu ástandi. Eftir eru um 1000 klst. af mótor. Vélin hefir alla tíö veriö í flugskýli. Upplýsingar í símum 11199 og 19813. GEfsiP? Þessir margeffirspurðu kuldaskór aftur fáanlegir SPÓNl eik, fu mahog 40, 50 > og 244\ Geröu þaö sjálfur eik eidd PLA með og& og 2 itu teak breid BJÖRNINN HF Skúlatúni 4 - Siml 25150 - Reykjavik IBSRÍ S-THMNW KRISTJÁN TH0RLACIUS! VERÐUM AÐ TRY6GJA KAUPMÁTTINN * 35s«£i,5si,s» - ZZSgr* BSSgjggC í blaöaleysinu í Staksteinum er í dag drepið á ýmislegt sem gerst hefur á sviöi íslenskrar fjölmiðlunar í blaðaleysinu. Sérstaklega er vitnað til mál- gagns opinberra starfsmanna, BSRB-tíöinda, sem hvaö eftir annaö hefur látið aö því liggja aö hvers kyns ófagnaöur setji svip sinn á launagreiðslur til opinberra starfsmanna. Safngrípir f bla&aleysinu hafa verið gefin út alls kyns dreifirit og blöð sem ef að líkum betur eiga eftir að öðlast gildi sem safngripir þegar fram líða stundir. Þeir sem áhuga hafa á söfnun slíkra dreifirita mega hafa sig alla við til að koma hönd- um yfir allt sem út hefúr komið. Dreifingunni hefúr verið háttað með margvís- legu móti og að útgáfú- starfseminni hafa staðið Ijölmargir aðilar sem litu á verkfall bókagerðarmanna sem uppgripatíma. Ritfrels- ið er stjómarskrárverndað og veitir mönnum rétt til að segja skoðun sína á prenti, hitt er svo Ueknilegt vandamál sem auðvelt er að leysa nú á tímum að fjölfaída ritað mál i þús- undum eintaka ef því er að skipta. Eins og vakið er máls á I forystugrein Morgunblaðe- ins í dag taldi blaðið sig bundið af þeim samning- um sem gerðir höfðu verið við samtök vinnuveitenda og verkalýðsfélög áður en til verkfalls kom i verkfall- inu sjálfu. Þess vegna fór blaðið ekki út á þá braut að nýta sér aðra Uekni til fjölföldunar I verkfallinu en fclst í hefðbundinni prentun. Blaðið hefur þvl ekkert lagt til í þann flokk safngripa sem framleiddir hafa verið á síðustu sex vikum. Af Qölmiðlaverkfallinu leiddi einnig að margir tóku að b'ta á sjálft Ríkis- útvarpið sem hálfgerðan safngrip þegar þeir sáu hve auðvelt var að koma á fót útvarpsstöðvum sem gátu með fámennu starfsliði veitt þá þjónustu sem brýn- ust var á líðandi stund. Oft hefur verið grunnt á óvild útvarpsstarfsmanna í garð frjáls útvarps og eftir að því var hrundið af stokkun- um vegna ólögmætrar lok- unar Ríkisútvarpsinr magnaðist þessi óvild 0| breyttist í sumum tilvikum iheift Eftir að neyðarréttar- sjónarmiðin sem for- svarsmenn frjálsra út- varpsstöðva lögðu til grundvallar starfsemi þeirra höfðu I raun verið viðurkennd með því að hafist var handa af hálfu rikisins að senda út tvo fréttatíma á dag vaknaði sú spurning i hugum margra hvort í þessum fréttum væri gætt ákvæða í 3. málsgrein 3. greinar út- varpslaganna þar sem starfsmönnum Ríkisút- varpsins er gert skylt að halda í beiðri lýðræðislegar gnindvallarreglúr, virða tjáningarfrelsi og gæta fyllstu óhhitdrægni gagn- vart öllum flokkum og stefnum í opinberum mál- um, stofnunun, félögum og einstaklingum. Þessi laga- grein er ekki safngripur beldur felst í henni starfs- regla sem sett er af ríkri nauðsyn, regia sem þeim mun brýnna er fyrir starfs- menn útvarpsins að fylgja þegar þeir sitja einir að fjölmiðhin í landinu. Baráttublað BSRB Það dreifiblað sem mest befúr borið á í verkfallinu siðustu daga heitir RSRB-tíðindi. Enginn sem þessi tíðindi les getur efast um að þeir sem í það rita vilja sækja fram af miklu kappL Enginn lesandi BSRB-tíðinda þarf beldur að efast um hverja það tel- ur höfuðandstæðinga sína, því að á síðum blaðsins eru einstaklingar, einkum úr röðum sjálfstæðismanna, teknir til bæna og þeim ekki vandaðar kveðjurnar. f þessum skrifum hefur verið lögð stund á persónu- legan skæting í garð stjórn- málamanna og annarra sem flestir hafa talið að heyrði sögunni til. Að hefja slík skrif til vegs í nafni opinberra starfsmanna get- ur eltki verið þeim öllum að skapi og fráleitt er að ætla að þau verði til þess að lokum að Ijölga krónun- um i launaumslögum þeirra. Markmið BSRB-tíðinda er að vinna þeirri kröfu skilyrðlslaust fylgi að laun opinberra starfsmanna verði hækkuð um 30% og frá þvi hvergi hvikað. Hver er rökstuðningurinn fyrir þessari kröfu? Hér verður gripið niður í þrjár forsíðu- greinar tiðindanna. f 12. töhiblaði 12. októ- ber segir „Með kröfum okkar erum við að gefa um það yfirlýsingu með hvaða hætti við teljum að eigi að greiða kaup á fslandL Ekki í greiðslum fyrir óunna yf- irtíð eða sporslum til hinna útvöldu, heldur á hreinan og beinan hátt, samkvæmt umsömdum kauptöxtum. Ríkisstjórnin talar óljóst um skattalækkanir. Við er- um til viðtals um þær. En hér erum við á varðbergi. Við spyrjum hvað á að skera niður í ríkisútgjöld- um til að mæta þessari skattalækkun. Á að taka á þeim stóru og spilltu eða hinum smáu og veikburða? Á að beita hnífnum á spilL ingu í sjóðakerfi eða á að beita bonum á skólakerfi og sjúkrahús? Það er auð- veldara að loka gigtardeild en taka á Qármálaspillingu. Og við minnumst þess að íslenskir stjórnmálamenn gera það sem er auðveld- ast, ekki það sem er hag- kvæmast og réttasL l*ess vegna erum við á varð- bergL“ f 15. tbl. 17. október seg- ir „í sumar vöknuðu opinberir starfsmenn upp við vondan draum. Þeir gerðu sér grein fýrir hvert stefndi. Þeir ákváðu að segja þessum falsheimi (sem ríkir í launagreiðslum til opinberra starfsmanna, innsk. Staksteina) stríð á hendur, þeir vildu hreinar og beinar línur. Þeir ákváðu að hafna kerfi und- irlægjunnar, Sporshikerf- inu. Því kerfi sem var ann- að í orði en á borði. Þeir settu fram hófsamar kröfur og minntu jafnframt lands- lýð á hver laun þeirra væru.“ Og í 17. tbl. 19. október segja BSRB-tíðindL „Til þess að fá rétt út úr dæm- inu þarf að stilla því rétt upp. Svo geta menn farið að reiltna. Þetta verkfall snýst meðal annars um það. Að stilla dæminu rétt upp. — Við kreljumst þess að það sé reiknað hvað þurfi að breytast til að fyrirhafnarlaust sé hægt að greiða okkur þrjátíu pró- sent ofan á launin. Og við krefjumst þess að það sé reiknað hvað þurfi að breytast til að þessi þrjátiu prósent verði ekki tekin burt í einni svipan með gengisfellingu, eða öðrum fídúsum verðbólgukynslóð- arinnar á Alþingi.“ Allt árið um kring - í hvaða veðri sem er getur fjölskyldan sólað sig í Soltron frá JK. —^ f ^ JÁ 16 X 100 wall 26 X 100 watt 20 X 100 watt 26 X 160 watt Átt þú ekki skilið smá vítamín í kroppinn - og fallegan hörundslit! JK vestur-þýsku sólarlamparnir standast ýtrustu gæðakröfur v-þýska öryggis- og heilbrigðiseftirlitsins. Þér er óhætt að slappa af í JK sólarlampa hvort sem hann er stór eða smár, einfaldur eða „samloka“, með sérstökum andlitslampa eða án. Að auki eru bekkirnir loftkældir. Bekkimir standast vel kröfur þeirra sem vilja sólbaða sig heima og þeirra sem reka sólbaðstofur. Dekraðu við sjálfan þig í JK sólarlampa og árangurinn er vellíðan og fallegur hömndslitur á öllum tímum ársins. JK = mest seldu sólarlampar í Evrópu. ÞYZK-ISLENZKA Lyngháls 10, símí 82677

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.