Morgunblaðið - 23.10.1984, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLÁSID, !»FlOJUDAGUR 23. OKTÓBER 1984
Júlía Sveinbjarn-
ardóttir
JÍJLÍA Sveinbjarnardóttir, fyrrver-
andi formaður Félags leiðsögu-
manna, lést í Reykjavík 21. október,
53 ira að aldri.
Júlía fæddist árið 1931, dóttir
Sveinbjarnar Sigurjónssonar,
fyrrum skólastjóra og konu hans
Soffíu Ingvarsdóttur. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík árið 1950 og BA
prófi í dönsku og þýsku frá Há-
skóla íslands árið 1955. Hún starf-
aði sem flugfreyja á árunum 1955
til 1957 og fékkst síðan við stunda-
kennslustörf í Verslunarskóla ís-
lands og Kennaraskóla íslands.
Árið 1970 lauk hún prófi sem leið-
sögumaður frá Ferðaskrifstofu
Ríkisins og starfaði að leiðsögn á
meðan að heilsan entist.
Júlía átti lengi sæti í stjórn Fé-
lags leiðsögumanna og gegndi
starfi formanns félagsins frá 1979
til febrúarmánaðar sl. Þá átti hún
um þriggja ára skeið sæti í stjórn
Alþjóðasambands leiðsögumanna
á Norðurlöndum, IGC.
látin
Júlía Sveinbjarnardóttir
Eftirlifandi eiginmaður Júlíu er
Baldvin Tryggvason, sparisjóðs-
stjóri.
Haraldur V. Olafsson
í Fálkanum látinn
Haraldur V. Ólafsson, fyrrverandi
forstjóri Fálkans hf., lést í Reykja-
vík 18. september sl. 83 ára að aldri.
Haraldur lauk prófi frá Versl-
unarskóla íslands árið 1920. Frá
árinu 1922 til 1923 dvaldist hann í
Danmörku og Þýskalandi við nám
og störf. Á árunum 1921 til 1948
starfaði sem aðstoðarmaður föður
sins, Ólafs Magnússonar kaup-
manns, við verslunina Fálkann i
Reykjavík og var framkvæmda-
stjóri hennar frá 1948 til 1955.
Hann var forstjóri Fálkans hf.,
fyrst einn 1955 til 1964 og síðan
með bræðrum sínum Braga og
Sigurði, uns hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir árið 1975.
Haraldur var formaður stjórnar
Fálkans hf. frá 1948 til 1955 og
stjórnarformaður 1955 til 1976.
Hann var meðstjórnandis Stáls
hf. frá stofnun 1956 og stjórnar-
formaður frá 1976. Hann var for-
maður íslandsdeildar alþjóðasam-
bands hljómplötuframleiðenda
(ÍÁH) frá stofnun 1966 til ársins
1978. Hann var fyrsti formaður
Sambands flytjenda og hljóm-
plötuframleiðenda á íslandi
(SFH) þegar það var stofnað árið
1973 og gegndi því starfi annað
hvert ár frá þeim tfma. Haraldur
var aðalræðismaður Lýðveldisins
Kóreu frá 1970 og endurskoðandi
Félags íslenskra kjörræðismanna
frá 1973. Hann var gerður að heið-
ursfélaga f deild íslendingafélags-
ins í Winnipeg árið 1968. Þá var
hann gerður heiðursfélagi Karla-
kórsins Vísis árið 1969 og Lúðra-
sveitarinnar Svans árið 1969.
Eftirlifandi eiginkona Haraldar
er Þóra Finnbogadóttir.
Benedikt Þ. Gröndal
verkfræðingur látinn
Benedikt Þ. Gröndal verkfræðing-
ur, fyrrverandi forstjóri Hamars hf.,
lést í Reykjavík þriðjudaginn 11.
september sl. 85 ára að aldri.
Benedikt lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum f Reykjavfk árið
1917 og cand. phil.-prófi frá Hafn-
arháskóla árið 1918. Árið 1924
lauk hann prófi í vélaverkfræði
frá Den Tekniske Höjskole í
Kaupmannahöfn. Sama ár starf-
aði hann sem verkfræðingur hjá
A/S Flydedokken í Kaupmanna-
höfn og hjá vélsmiðjunni Hamri
hf. í Reykjavík. Á árunum 1925 til
1931 starfrækti hann eigin verk-
fræðistofu í Reykjavík og var þá
meðal annars ráðunautur húsa-
meistara rfkisins við hitalagnir.
Benedikt starfaði sem verk-
fræðingur hjá Hamri hf. f Reykja-
vík frá árinu 1931 og gegndi starfi
forstjóra fyrirtækisins frá 1932 til
ársins 1972. Hann var fram-
kvæmdastjóri Stálsmiðjunnar hf.
og Járnsteypunnar hf. í Reykjavík
frá stofnun þeirra árið 1933,
ásamt framkvæmdastjóra frá vél-
smiðjunni Héðni hf. Benedikt átti
sæti í framkvæmdanefnd Vinnu-
veitendasambands íslands frá
stofnun þess árið 1934 og einnig
átti hann sæti í stjórn Iðnaðar-
málastofnunar íslands frá 1962.
Hann var formaður VFÍ 1946—48
og formaður Meistarafélags járn-
iðnaðarmanna 1942—44 og 1953—
54. Hann var heiðursfélagi í VFl
og Rótaryklúbbi Reykjavíkur.
Eftirlifandi eiginkona Bene-
dikts er Halldóra Ágústsdóttir
Flygenring.
Morgunbladid/Júlíus.
Kjaradeilunefnd að störfum í Rúgbrauðsgerðinni í gær, en þar hefur nefndin haft aðsetur í verkfalli BSRB.
Fær SKÝRR undanþágu
til að reikna út laun?
Kjaradeilunefnd tekur væntan-
lega ákvörðun um það í dag hvort
kalla eigi starfsfólk Skýrsluvéla
ríkisins til vinnu, og annað það fólk
sem vinnur á einhvern hátt við að
afla forsendna til launaútreiknings,
til að hægt verði að greiða út laun
um næstu mánaðamót. Skýrsluvélar
ríkisins reikna út laun fyrir rikið og
Reykjavíkurborg. Ef erindinu verður
synjað og verkfall BSRB dregst enn
á langinn gæti svo farið að ýmsir
aðilar sem ekki eru í verkfalli fái
ekki laun sín greidd um mánaða-
mótin.
Helgi V. Jónsson, formaður
kjaradeilunefndar, sagði i samtali
við Mbl. í gær, að nefndin hefði
fengið að glíma við ýmis prófmál í
þessu verkfalli og þetta væri eitt
af þeim. Sambærileg staða kom
ekki upp í verkfalli BSRB árið
1977. Spurningin væri hvort það
heyrði undir verksvið kjaradeilu-
nefndar að fjalla um mál af þessu
tagi, en samkvæmt lögum á nefnd-
in aðeins að sinna erindum sem
varða nauðsynlega öryggisvörslu
og heilsugæslu.
Kjaradeilunefnd hafði í gær
fengið 462 erindi inn á borð til sin,
kveðið upp rúmlega 300 úrskurði
og þar af synjað rúmlega 50.
Félagsdómur:
Frávísimarkröfu hafnað í
máli BSRB og borgarinnar
Félagsdómur hafnaði í gær frávís-
unarkröfu lögmanns Reykjavíkur-
borgar í máli því er BSRB höfðaði
gegn Reykjavíkurborg vegna þess að
laun borgarstarfsmanna voru ekki
greidd að fullu 1. október sl. Krafð-
ist lögmaður Reykjavíkurborgar
þess að málinu yrði vísað frá Félags-
dómi, en sú krafa var ekki tekin til
greina og féllu atkvæði þannig í Fé-
lagsdómi að þrír höfnuðu frávísun-
arkröfunni en tveir vildu vísa málinu
frá dómi. Lögmaður Reykjavíkur-
borgar hefur ekki tekið afstöðu til
þess hvort hann kærir þennan úr-
skurð til Hæstaréttar.
Nokkur önnur mál hafa komið
fyrir Félagsdóm í kjaradeilum
þeim er nú standa yfir, að því er
formaður Félagsdóms, Bjarni K.
Bjarnason, borgardómari, tjáði
blm. Mbl. i gær. En auk Bjarna
eiga þeir Björn Helgason, hæsta-
réttarritari, og Gunnlaugur
Briem, yfirsakadómari, fast sæti í
Félagsdómi og einnig sitja nú i
honum þeir Ragnar Halldór Hall,
borgarfógeti, skipaður af fjár-
málaráðherra, og Sigfinnur Sig-
urðsson, skrifstofustjóri, skipaður
af BSRB.
Nýlega dæmdi Félagsdómur í
máli þvi er BSRB höfðaði gegn
Selfossbæ á þeim forsendum, að
byggingafulltrúa Selfossbæjar
væri skylt að fara í verkfall og var
úrskurður dómsins á þá leið að svo
væri.
Einnig var kveðinn upp dómur i
máli sveitarstjóra Borgarnes-
hrepps f.h. hreppsins gegn BSRB
vegna félagsmanna þess, er hjá
hreppnum starfa. Þar var þess
krafist að verkfall þeirra starfs-
manna yrði dæmt ógilt, sökum
þess að ekki hefði verið löglega til
þess boðað. Félagsdómur dæmdi
verkfallið ólögmætt og mun talið
að sá dómur geti haft fordæmis-
gildi, þar sem samskonar kjara-
samningar og eru á milli BSRB og
Borgarneshrepps gilda a.m.k. hjá
eftirtöldum sveitarfélögum:
Bessastaðahreppi, Stykkishólmi,
Ólafsvík, Patreksfirði, Dalvík og
Höfn í Hornafirði.
Þá hafa tvö mál sem blaðamenn
höfða gegn útgefendum vegna
þess að laun voru ekki greidd
fyrirfram 1. oktober sl. verið þing-
fest fyrir Félagsdómi og er Blaða-
mannafélag Islands stefnandi í
báðum tilvikum. Varnaraðili i
öðru málinu er Vinnuveitenda-
samband Islands fyrir hönd Ár-
vakurs hf. og í hinu Nútíminn hf.
Lögmaður Blaðamannafélags
Islands í báðum málunum er
Guðni Á. Haraldsson, hdl. Lög-
maður Árvakurs er Þórarinn V.
Þórarinsson, lögfræðingur, og lög-
maður Nútímans Eiríkur Tómas-
son, hdl.
Óánægja medal
sjómanna
Kjaradeilunefnd úrskurðaði sl.
fimmtudag að sjómenn skyldu
njóta eðlilegs símasambands við
fjöldskyldur sínar f landi, en
nefndinni barst erindi þar um
mánudaginn 15. október. Höfðu
sjómenn þá verið meira og minna
sambandslausir við fjöldskyldur
sínar frá þvf er verkfall BSRB
skall á þann 4. október, vegna lok-
unar strandstöðva, sem eingöngu
sinntu neyðarþjónustu.
Þeir óskar Vigfússon, formað-
ur Sjómannasambands Islands,
og Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, sögðu í samtali við
Mbl. í gær, að það væri geysileg
óánægja meðal sjómanna um
þessar mundir, bæði vegna þessa
fjarskiptamáls og eins vegna
þeirrar tregðu sem var á að
hleypa sjómönnum í land á þeim
skipum sem legið hafa við ytri
höfnina í Reykjavik í verkfall-
inu. Er talið að þegar mest var
hafi yfir 50 sjómenn verið inn-
lyksa í skipum sínum við höfn-
ina.
„Þá eru okkar umbjóðendur
undrandi á því hve seint gekk að
kippa fjarskiptamálinu í liðinn,"
sagði ðskar, „en þessi seina-
gangur stafaði að nokkru leyti af
misskilningi; BSRB-mönnum
barst aldrei formleg beiðni um
að aflétta þessu og það var ekki
fyrr en á mánudaginn í síðustu
viku sem kjaramálanefnd fékk
erindið inn á sitt borð. Hún af-
greiddi erindið hins vegar ekki
fyrr en á fimmtudag."
Guðmundur Hallvarðsson
sagði að sjómenn hefðu margir
hverjir náð sambandi til Islands
í gegnum Færeyjar fyrstu verk-
fallsvikuna, en síðan hefði verið
tekið fyrir það að mestu leyti.
„Það er mjög afleitt að þetta
ástand skuli hafa skapast," sagði
Guðmundur, „því það hefur eng-
in áhrif á gang kjaradeilunnar
að halda sjómönnum sambands-
lausum við fjöldskyldur sínar.“