Morgunblaðið - 04.11.1984, Síða 4

Morgunblaðið - 04.11.1984, Síða 4
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984 AÐHL USTA OGGLE YMA það þannig að ein víntegund gekk svo að segja yfir alla lín- una. Einu sinni var það sjení- ver. Þá var þara drukkið sjení- ver. Svo má nefna tímabil ís- lenska brennivínsins og vo- dkans, og þannig má tengja hin ýmsu tímabil við ákveðnar víntegundir. Nú er fólk hins vegar farið að velja og hafna eftir því sem hentar því best og það er alveg ljóst, að vínmenn- ing hér hefur breyst mikið til batnaðar. Auðvitað verða alltaf til menn sem kunna ekki að fara með vín og ættu að láta það alveg vera, en það er annar handleggur." Talandi um vínmenningu, hvað finnst þér um þær breytingar sem orðið hafa í veitingahúsarekstri að undanförnu, t.d. „pöbbana“ svokölluðu? „Það er í sjálfu sér ekki nema gott eitt um það að segja. Það er viss aldurshópur, sem er móttækilegur fyrir þessum nýj- ungum og vill sækja þessa staði, og þótt þarna sé ekki um að ræða „alvöru-bjórkrár", get ég vel skilið þessa stemmningu. Eitt það skemmtilegasta sem ég geri þegar ég er erlendis er að fara á pöbba. En það er bara eitt, sem ég á erfitt með að átt sinn fasta sess í bæjarlífinu. Það verða allir að fara í Naust- ið, og ef þú ert t.d. með útlend- ing í heimsókn, þá ferðu með hann í Naustið." NÆRGÆTINN OG HLÝÐINN Símon kveðst hafa kynnst mörgum góðum manninum yfir barborðið. Hann nefnir m.a. að gott samband hafi jafnan verið milli sín og Morgunblaðsm- anna. „Það var oft mikið fjör hérna í gamla daga, en það hef- ur heldur dregið úr þessu á seinni árum.“ — Af ýmsum ást- æðum förum við ekki nánar út í þessa sálma, enda segir Símon að hann hafi það fyrir reglu númer eitt, tvö og þrjú, að segja aldrei sögur af barnum, eða því sem fer á milli hans og við- skiptavina. Ég spyr hann hvaða eiginleika hann telji að góður barþjónn þurfi helst að hafa. „Hann verður að vera afskap- lega þolinmóður, nærgætinn og allt að því hlýðinn við gesti sí- na, og ekki sakar að vera glað- vær og léttur í lund. Svo verður hann auðvitað að vita hvað hann er að gera, vera fagmaður í iðninni. Ég held að íslenskir Súnon blaðar í vindbunerkjasafninu, sem skilja í þessu sambandi, og það er, að eftir því sem minna er lagt í innréttingar og „huggulegheit", þeim mun vins- ælli eru þessir staðir. Og svona staðir eiga auðvitað ekkert skylt við fínni veitingahús, sem ég vil kalla „klassa-staði", eins og t.d. Naustið er að mínum dómi.“ Nú hefur Naustið haft ákveðna sérstöðu, og notið mikilla vins- ælda í gegnum árin. Hvaða skýr- ingu hefur þú á því? „Það er auðvitað númer eitt að staðurinn hefur alltaf lagt áherslu á góðan mat og fyrsta flokks þjónustu. En ég held að innréttingarnar hafi einnig haft mikið að segja. Það má flokka það undir eitt af meist- arastykkjum Sveins Kjarval að teikna staðinn svona, og það hafa svo til engar breytingar verið gerðar á innréttingunni frá því staðurinn opnaði. Stað- urinn hefur líka í gegnum árin er mikið að vöxtum. framreiðslumenn leggi yfirleitt faglegan metnað í starfið, þótt auðvitað megi alltaf finna svarta sauði innan um. Maður hefur svo sem heyrt það, að þjónar séu hér óliprir og jafn- vel dónalegir við kúnnana, en ég held að það heyri frekar til undantekninga. Þeir sem ekki geta sýnt þolinmæði og nærg- ætni í þessu starfi eiga að finna sér eitthvað annað að gera.“ Nú hefur stundum verið sagt, aö barþjónar séu bestu sálfræó- ingarnir og bjargi oft geðheilsu manna með því einu að hlusta. „Það er sjálfsagt margt til í þessu. Eitt það mikilvægasta við þetta starf er að kunna að hlusta og gleyma því síðan af- tur. Það er oft sem viðskipta- vinir finna þörf hjá sér til að losa á hjarta sínu og trúa manni fyrir raunum sínum, og þá verða þeir auðvitað að geta treyst því, að þetta sé einungis okkar á milli og fari ekki Fyrstu verðbum í hötn í ,Joag drink“-keppai Pepá Cola 1967. Esler og Stmon heima ístofii í ÁUbeimunum. Beðið eftir Svíakóngi 1975. Símon í fararbroddi féhga sinna í Nausánu. lengra. Ég hef það því fyrir reglu að hlusta vel og gleyma því svo um leið og ég fer af vaktinni." Þú ert sem sagt ekki tilbúinn til að segja mér neinar krassandi sögur af barnum? „Nei, ég held að það sé viss- ara að fara varlega í það. Sann- leikurinn er líka sá, að ég hreinlega legg þetta ekki á minnið. Hér hafa auðvitað skipst á skin og skúrir. Það hef- ur ýmislegt spaugilegt komið upp á og eins hef ég horft upp á harmleiki, sem hafa fengið af- skaplega mikið á mig. Én eins og ég sagði áðan var þetta meira áberandi hér áður fyrr og þegar hádegisbarinn var og hét hér í Naustinu var oft hreinasta hörmung að þurfa að horfa upp á þetta. Ég kom þá stundum niðurbrotinn maður heim og velti því oft fyrir mér, Á ganrla bamum í baðstofunni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.