Morgunblaðið - 04.11.1984, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.11.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984 69 / kokteUkeppai í MaBora 1967. góðu skapi og fara út aftur jafn vel á sig komið." Og það versta? „Verst af öllu er að þurfa að neita of drukknu fólki um af- greiðslu. Það er sem betur fer sjaldgæft, en kemur þó fyrir. Annað er það, sem fer alveg sérstaklega í taugarnar á mér, og það er þegar gesturinn kem- ur á barinn og veit ekki hvað hann vill. Auðvitað reynir mað- ur að liðsinna mönnum í slíkum tilfellum, en það segir sig sjálft, að það er afskaplega erfitt fyrir barþjóninn að ákveða fyrir fólk hvað það á að drekka. Það er svo einstaklingsbundið hvað hentar mönnum í það og það skiptið." fyrstu fnunreidshimenn i Naustinu, rið opnunina & nóvember 1954, f.v- Sigurður Pátasoa, Birgir Ámason, PíB Amljótsson, Bjami Guðjónssoo, Súnon Sguijónsson og Grétar Hafsteinsson. ar og viðurkennir að það sé ekki beint hægt að vera ánægður með vinnutímann. En auðvitað verður ekki á allt kosið í þessu lífi. I framhaldi af þessu spyr ég Símon um tómstundir og hann Á ferð í Olpunum í boði ítakka barþjónaktúbbéms 1961 var einn af stofnendum Bar- þjónaklúbbs íslands, formaður klúbbsins fyrstu árin og árið 1983 var hann gerður að heið- ursfélaga klúbbsins, sá fyrsti og eini sem hlotnast hefur sá heiður. Ég spyr hann nánar út í félagsstörfin. „Ég hef alltaf álitið það mikilvægt að hafa gott sam- band við fagfélög og starfsbr- æður erlendis, og strax fyrir 1960 vorum við farnir að leita út fyrir landsteinana, fyrst og fremst með það fyrir augum að læra af reynslu annarra og bæta okkur í starfi. Síðan hefur maður farið í ferðir út, tekið þátt í alþjóðlegum barþjónam- ótum, verið dómari í keppnum og þess háttar. Svo er ég með- limur í enska og danska bar- þjónaklúbbnum." Þú ert líka margverólaunaður úr hinum og þessum keppnum. Er einhver verðlaunadrykkur, sem þér þykir vænna um en aðra? „Nei, ég vil helst ekki gera upp á milli þeirra. En það má kannski segja að „Stranger" Súnon ásamt núverandi eiganda Nausts, Ómari HaBssynL Hstu starfsmenn Naustáns, sem báðt bafa starfað frá því húsð opnaði, Súnon og Gísti Pihnason birgðavörður. Tekið i móti viðurkenningu i alþjóðlegu harþjónamóti i ftatiu. Starfsfótii Naustsins, sem starfað haíði við húsið tri upphafí i 15 ára afmætinu 1969. ídómnefnd á alþjóðlegu barþjónamóti. hvort það væri virkilega þess virði að leggja þetta á sig. Ég kveið stundum fyrir því að fara í vinnuna. Og enn kemur það fyrir, eftir erfiðar vaktir, að það tekur mig talsverðan tíma að ná mér niður. Ég þarf oft að „lesa mig niður" í tvo til þrjá tíma áður en ég get farið að sofa. En svo hefur maður auðvitað átt skemmtilegar stundir á móti og það er eitt sem mér dettur í hug, þegar talað er um sálfræðilegu hliðina á þessu starfi. Það er, að eftir öll þessi ár er maður orðinn býsna glöggur að sjá út manngerðina, sem kemur á barinn. Nú orðið þarf ég stundum ekki annað en að tala við manninn í tvær til þrjár mínútur til að fara nokk- uð nærri um hvers konar manngerð hér er á ferðinni." Hvað er skemmtilegast við starfið? „Það ánægjulegasta við starfið er að sjá fólk koma inn í FÉLAGSSTÖRF OG VIÐURKENNINGAR Frúin ber fram kaffi og kök- ur og ég nota tækifærið og spyr hana hvernig það sé að vera gift barþjóni. „Helgarkvöldin geta verið ansi lengi að líða og þetta er oft einmanalegt. Ég fann minna fyrir þessu hér áð- ur fyrr, þegar strákarnir voru litlir. En eftir að þeir fóru að heiman finnst mér þetta alveg ómögulegt. Ef ég væri ung stúlka í dag myndi ég sennilega ekki velja barþjón," segir hún og lítur brosandi á mann sinn, sem verður hálf vandræðalegur undir þessu ámæli. Hann tekur þó undir þessa skoðun konunn- dregur þá fram safn eitt mikið og digurt, þar sem finna má vindlamerki alls staðar úr heiminum. „Ég hef verið að safna þessu síðastliðin 20 ár og er í samböndum út um allan heim, enda eru merkin nú orðin um 300 þúsund," segir hann og fer varfærnislegum höndum um möppurnar, sem geyma þetta mikla safn. Hann segir að það fari ótrúlega mikill tími í þessa tómstundaiðju og greini- legt er að mikið hefur verið nostrað við safnið. Af öðrum áhugamálum nefnir Símon ferðalög, og hafa þau hjónin ferðast víða, bæði á eigin veg- um og á vegum félagasamtaka barþjóna víða um heim. Símon hafi verið hvað vinsælastur. í honum eru % Contreause. 'A Cream deCacao og '/s ferskur sítrónusafi. Einnig má nefna „Hot Pants" sem fékk silf- urverðlaun á alþjóðlegu barþjónamóti í Japan." Símoni hefur verið sýndur ýmiss konar sómi í starfi sínu og meðal annars hlotið orður frá forseta Islands, Svíakon- ungi og Noregskonungi. Ég spyr hann nánar út í þessar viðurkenningar. „Forsetaorðuna fékk ég frá Ásgeir Ásgeirssyni, en ég vann um skeið við margar forseta- veislur á Bessastöðum. Kónga- orðurnar fékk ég hins vegar í tengslum við heimsóknir þess- ara þjóðhöfðingja og mér skilst að það sé venjan að veita svona orðu ýmsum þeim sem koma nálægt slíkum heimsóknum." Ég spyr Símon að lokum hvað hann haldi að hann eigi eftir að vera lengi enn fyrir innan barb- orðið í Naustinu. „Það er ómögulegt að segja til um það. Það má kannski segja að það sé kominn tími til að breyta til, bæði fyrir mig og viðskiptavinina. Þó er ég ekki viss um að ég gæti skotið rótum annars staðar úr því sem komið er. Mér hefur liðið vel í Naust- inu og mér þykir vænt um stað- inn, starfsfólkið og kúnnana, og ég vona að það sé gagnkvæmt." Sv.G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.